Vikan


Vikan - 03.12.1964, Page 45

Vikan - 03.12.1964, Page 45
beina Johannis Babtiste. Þar er Umskurdr Christi ok miolk of briosti Mariu; af þarngiord Christz ok af kyrtli hans ok margir adrir helgir dómar vardir í einu gullkeri miklo." Það hefði kannski verið hægt að koma fleira fólki [ Péturskirkjuna að þessu sinni með því að faera sér 1 nyt aðferðir þær, sem Japanir hafa til þess að þjappa fólki i jórnbrautarlestir. Með talsverðri ýtni var hægt að skáskjóta sér inn í hliðarálmuna, framhjá mörgum fögrum kapellum og gröfum heil- agra manna. En þegar komið var undir hvelfingu þá hina miklu, sem hæst gnæfir og trónar yfir háalt- árinu, þá varð hver að standa þar sem hann var kominn. Það eru eng- in sæti í Péturskirkju. Styttan af Sankti Pétri gnæfði yfir þetta mann- haf, dökk ásýndum, en stóratáin máð og slitin eftir allar þær milljón- jr pílagríma, sem hafa snert hana eða kysst. Það fór kliður um mannfjöld- ann, lágvaxnar nunnur reyndu að teygja sig og fólk hafði börn á háhesti. Sumir reyndu jafnvel að halda á konunum sínum til þess að þær sæju þegar Páll páfi var borinn inn á burðarstóli. Hann var broshýr á svip og lyfti hægri hendi lítillega; rauðbrydduð skikkja hans nam við gólf stólsins. Hann gekk að míkrófóninum og flutti ávarp, talaði um samstöðu kristinna manna og fleira þar fram eftir götunum. Það fór nýlega að halda vöku fyr- ir kaþólikkum, að þeir hefðu ver- ið hinir verstu skúrkar í þessari samstöðu. Það var meira að segja samþykkt að biðja mótmælendur og aðra kristna söfnuði fyrirgefn- ingar á þeirri skammsýni. Páll páfi flutti ávarp sitt á latínu, spönsku, frönsku, þýzku og ensku. Hann er fremur skarplegur en góð- legur, svipur hans ber vott um festu og mikinn viljastyrk. Að af- loknu hverju ávarpi var klappað svo undir tók í hvelfingum kirkj- unnar og fannst sumum úr hópi íslendinga, að lítill helgiblær væri á klappinu. Að ræðuhöldunum loknum söng páfinn latneskan sálm í míkrafóninn og tókst það vel, jafnvel þótt hann vantaði raf- magnsgítarinn. Mannfjöldinn í kirkjunni tók undir; flestir virtust kunna þennan sálm, prestarnir, nunnurnar og ferðafólkið, sem ugg- laust hefur verið í stórum meiri- hluta þarna. Að söngnum loknum var enn klappað ákaflega og páf- inn síðan borinn út í sama burðar- stólnum. Þá var orðinn þrúgandi hiti í kirkjunni. - 12 - Ekki man ég til þess að ég hafi séð hús, sem mér hefur þótt mikil- fenglegra. Hvelfing Michelangelos er eitt af undrum veraldar, en ann- að undur er það, hversu stærðir allar og hlutföll innbyrðis koma því til leiðar, að kirkjan sýnist ekki líkt því eins stór og hún raunveru- lega er. Það er til dæmis mósaík- mynd uppi í hvelfingunni af spá- 09 1. Suðuþvottur 100° 2. Heitþvottur 90° 3. Bleijuþvottur 100° 4. Mislitur þvottur 60° 5. Viðkvæmur þvottur 60° 6. Viðkvæmur þvottur 40° 7. Stífþvottur/Þeytivinda 8. Ullarþvottur 9. Forþvottur 10. Non-lron 90° 11. Nylon Non-lron 60° 12. Gluggatjöld 40° * H/%l«y%FULUVIATIC BARA HREYFA EIHN HNAPP My%.**/%FUUMTIC SJÁLFVIRKA ÞVOTTAVÉLIN ÞVÆR, SÝÐUR, SKOLAR OG VINDUR ÞVOTTINN. H/%*4/%FULLMATIC H A K A ÞVOTTAVELIN FER SIGURFOR UM ALLA EVROPU. - GERIR ÞVOTTADAGINN AUÐVELDARI EN ÁÐUR ÞEKKTIST. or«rn‘ SJÁLFSTÆÐ ÞV0TTAKERFI AÐEINS M/%t4/%FULLMATIC ER SVONA AUÐVELD í NOTKUN. - SNÚIÐ EINUM SNERLI . OG H A K A SÉR ALGJÖRLEGA UM ÞVOTTINN OG SKILAR HONUM ÞURRUM TIL STRAUINGAR. - SJÁLFVIRKT HITASTIG OG VATNSMAGN, SEM HÆFIR HVERJU ÞVOTTÁKERFI. - SJÁLFVIRKAR SKOL- ANIR. - TÆMING OG ÞEYTIVINDUÞURRKUN. - MEÐ 2 KERFUM AF 12 ER HÆGT AÐ SJÓÐA ÞVOTT- INN SVO VÉLIN SKILAR JAFNVEL ÓHREINASTA ÞVOTTI TANDURHREINUM. - ÞVOTTURNN KEMUR AÐEINS VIÐ GLANSSLÍPAÐ, SEGULVARIÐ RYÐFRÍTT STÁL. —— ábyrgS KOBVIIÐ - SKOÐIÐ - SANNFÆRIST VIKAN 49. tbL —

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.