Vikan - 03.12.1964, Page 53
frábær. Hann kom oft til okkar
að 'Bjarnarhöfn og var mesti au-
fúsugestur. Aldrei iieyrði ég
hann tala óvingjarnlega um fólk,
hvorki Snæfellinga né aðra. Auð-
vitað lét hann fólk njóta sann-
mælis og var opinskár og sagði
sína meiningu. Hræddur er ég
um að minni síra Árna hafi
nokluið verið farið að sljóvgast
er liann þuldi sögu sína fyrir
rithöfundinum Þórbergi eða þá
að Þórbergur liafi misskilið
sumt. Til dæmis lætur hann sr.
Árna segja að Snæfellingar liafi
gert föður minn að gangnafor-
ingja eða fjallakóngi! Sannleik-
urinn er sá, að faðir minn fór
aldrei í göngur, hvorki norðan
lands, né eftir að hann lét af
prestskap og gerðist bóndi.
Við fengum, sem sagt, beztu
viðtökur á Rauðamel. Daginn
eftir skoðuðum við liina frægu
ölkeldu og brögðuðum á þessu
einkennilega vatni. Séra Árni
reið með okkur niður sveitina,
en brátt gerðist sótsvört þoka.
Komum við loks að bæ einum.
Þar útvegaði séra Árni okkur
til fylgdar mann, er skilaði okk-
ur heilu og höldnu yfir Löngu-
fjörur og upp af þeim hjá Stakk-
hamri. Siðar fór ég þessar fjör-
ur riðandi í björtu veðri. Frá
Stakkliamri fórum við sem leið
lá út á nesið og létti nú til i
lofti. Komum við að Staðarstað
síðari hluta dags, þar voru góðir
vinir fyrir, síra Vilhjálmur
Briem og frú Steinunn kona
hans. Tóku þau okkur alúðlega.
Síra Vilhjálmur hafði verið ná-
grannaprestur föður mins, en
veiktist hættulega, og þjónaði
faðir minn Goðadalaprestakalli
fyrir hann í liálft ár eða meira.
Sem betur fór var síra Vilhjálm-
ur nú orðinn heill heilsu. Áttu
þau ágætu hjón eftir að lifa lengi,
því þau komust bæði yfir ni-
rætt. Okkur fannst mikið til um
hinar víðáttumiklu og grösugu
sveitir sunnan fjalla á Snæfells-
nesi og sáum að rétt var lýsing
Þórhalls biskups Bjarnasonar á
þeim landshluta. En greinar þær
er herra Þórhallur ritaði um
Snæfellsnes áttu vafalaust sinn
þátt í þvi að faðir minn hugsaði
til flutnings vestur þangað, er
hann lét af embætti, sökum bil-
unar í raddfærum. Ef til vill
hefur hann fremur viljað verða
bóndi annarsstaðar en í Skaga-
firði, þar sem hann liafði svo
lengi verið prestur. -— Staður
á Ölduhrygg, sem nú er jafnan
nefndur Staðarstaður er gamalt
höfuðból. Ölduhryggurinn er
langur isaldarmelur skammt frá
sjó. Stöðuvötn nokkur eru ofan
við Ölduhrygg og þar hólmar
með æðarvarpi t. d. frá Staðar-
stað. Var þar allmikið varp 1904.
Eftir eins dags hvíld á Staðar-
stað hófst svo síðasti dagur þess-
arar langferðar. Var fcrðinni
heitið að Fróðá, eða öllu heldur,
fyrst til Ólafsvíkur. En komið
hafði til orða að faðir minn
Fyrir 400,00 krónur á mánuði getið þér eignazt stóru
ALFRÆÐIORÐABÖKINA
Nordisk Korivsrsations
Leksikon
VerkiS samanstendur af:
8 stórum bindum (nú þegar eru
komin út 7 bindi) í skrautieg-
asta bandi sem -völ-er ó.J Hvert
bindi er yfir 500 síður, inn-
bundið í ekta ,,Fabiea" prýtt„22ja.
karata gulli og búið ekta gull-
sniði.
I bókina rita um 150 þekktustu
vísindamenn og ritsnillingar
Danmerkur.
VIÐBÆTIR: Nordisk Konversa-
tions Leksikon fylgist ætíð með
tímanum og því verður að sjólf-
sögðu framhald á þessari út-
gáfu.
VERÐ alls verksins er aðeins
kr. 5420,00, Ijóshnötturinn inni-
falinn.
sem nú kemur út að nýju á svo
ótrúlega lágu verði ásamt svo
hagstæðum greiðsluskilmálum,
að allir hafa efni á að eignast
hana.
Stórt raflýst hriattlíkan með ca.
5000 borga- og staðanöfnum,
fljótum, fjöllum, hafdjúpum,
hafstraumum o. s. frv., fylgir
bókinni en það er hlutur, sem
hvert heimili þarf að eignast.
Auk þess er slíkur Ijóshnöttur
vegna hinna fögru lita hin mesta
stofuprýði.
GRE1ÐSLU5K1LMÁLAR: Við mót-
töku bókarinnar, skulu greiddar
kr. 620,00, en síðan kr. 400,00
mánaðarlega, unz verkið er að
fullu greitt. Gegn staðgreiðslu
er gefin 10% afsláttur, kr.
542,00.
Undirrit.......sem er 21 árs og fjárráða, óskar að gerast
kaupandi að Nordisk Konversation Lexikon — með af-
borgunum — gegn staðgreiðslu.
Dags...........................
Nafn:.................................
Heimili: ..............................
................................Sími
Bókabúð NORÐRA
Hafnarstræti 4 - Sími 14281.
VIKAN 49. tbl.
53