Vikan


Vikan - 03.12.1964, Page 63

Vikan - 03.12.1964, Page 63
að mótmaela þessu, Darko. — Jeeja, en skammaðu mig þó ekki, ef þér líkar þetta ekki. Kerim var vandræðalegur. — Þetta verður beint morð með köldu blóði. t mínu landi er sofandi hundum lof- að að liggia kyrrum, en þegar þeir vakna og bíta, eru þeir skotn- ir. Þeim er ekki boðið upp á ein- vígi. Skilurðu það? _ Ég skil allt sem þú segir, sagði Bond. — Ég ó eina kúlu eftir, ef ske kynni að þú hittir ekki. — Komdu þá, sagði Kerim hik- andi. — Við þurfum að ganga tölu- vert. Hinir tveir fara aðra leið. Kerim tók langan göngustaf af bílstióranum og leðurtösku. Hann sveiflaði hvorutveggja yfir öxlina og þeir lögðu af stað eftir göt- unni við gulan bjarmann af vitan- um. Fótatak þeirra bergmálaði tóm- lega í dimmum húsunum í kring. Það var ekki sál að sjá, jafnvel ekki kött, og Bond var feginn að hann skyldi ekki vera þarna einn á ferli í áttina að þessu glórandi auga í fjarska. Frá upphafi hafði hann haft á tilfinningunni, að Istanbul væri borg, þar sem hryllingurinn skríð- ur út úr steininum á nóttunni. Hon- um fannst þetta vera borg, sem aldirnar höfðu vökvað svo í blóði og ofbeldi, að þegar dagsljósið hyrfi, væru draugar hinna dauðu einu íbúarnir. Hann hafði á tilfinn- ingunni, eins og aðrir ferðamenn, að Istanbul væri borg, þar sem hann mætti þakka fyrir að komast burt lifandi. — Þeir komu að þröngu, daunillu stræti, sem lá nið- ur snarbratta hæðina til hægri. Kerim beygði inn í sundið og fet- aði sig yfir ósléttan flötinn. — Gættu að fótum þínum, sagði hann. — Sorp er mjög kurteislegt orð fyrir það, sem mín elskulega þjóð kastar hér út á göturnar. Tunglskinið glampaði á götustein- unum í sundinu. Bond var með lok- aðan munninn og andaði í gegn- um nefið. Hann gætti hvers fót- máls. Setti alla ilina niður í einu og gekk eins og hann væri að fara niður snjóskriðu. Honum var hugs- að til rúmanna í gistihúsinu og mjúkra sætanna í bílnum í skugga trjánna, sem ilmuðu svo dásamlega. Hann hugsaði með sér, hvað hann ætti eftir að komast í kynni við margskonar óþefjan við þetta verk, sem hann var nú að vinna. Þeir námu staðar við botn sunds- ins. Kerim sneri sér að honum og glotti. Hann benti á gríðarstórt, svart hús. — Þetta er Moska Ahmet sold- áns. Þarna eru fræg freskóverk frá býsanska tímabilinu. Því miður hef ég ekki tíma til að sýna þér meira af því fallega í landi mínu. Og án þess að bíða eftir svari Bonds beygði hann til hægri, eftir rykfallinni götu með mörgum ódýr- um verzlunum, niður hallann f átt- ina að Marmarahafinu. í tíu mínút- ur gengu þeir þegjandi. Svo hægði Kerim ferðina og benti Bond að koma inn í skuggann. — Þetta verður einfalt verk, sagði hann lágt. — Krilencu er þarna niður frá við hliðina á járn- brautarlínunni. Hann benti óákveð- ið í áttina á rauðu og grænu Ijósa- iðunni við enda götunnar. — Hann býr í kofa bak við háa girðingu. A kofanum eru framdyr. Þar eru líka hliðardyr út á götuna gegn- um girðinguna. Hann heldur að enginn viti um þær. Menn rriínir fara að framdyrunum. Hann reynir að sleppa út um girðinguna. Þá skýt ég hann. Er allt í lagi? — Ef þú segir það. Þeir gengu niður eftir götunni fast upp við vegginn. Eftir tíu mfn- útur sáu þeir tuttugu feta háan skíðgarð, sem myndaði vegg á móti gatnamótunum. Tunglið var hinum megin við skíðgarðinn og kastaði skugga fram fyrir hann. Nú gekk Kerim jafnvel af enn meiri varkárni, setti hvorn fót varlega fram fyrir hinn. Um það bil hundr- að metra frá skiðgarðinum endaði skugginn og tunglið skein skært á gatnamótin. Kerim nam staðar í síðasta dimma dyraskotinu og dró Bond til sín. — Nú verðum við að bíða, sagði hann. Bond heyrði að Kerim fitlaði eitthvað fyrir aftan hann. Það heyrðist daufur smellur, þegar lokið á leðurtsökunni opnað- ist. Hann þrýsti grannri, þungri stálstöng, um það bil tveggja feta langri, með kúlu sitt á hvorum enda, í hönd Bonds. — Myrksjá, þýzk, hvíslaði Kerim. — Infrarauðar linsur. Sér í myrkri. Horfðu á stóru kvikmyndaauglýsinguna þarna yfirfrá. Andlitið þarna, rétt fyrir neðan nefið. Þar sérðu móta fyrir leynidyrunum. í beinni línu frá merkjakassanum. Bond hvildi framhandlegginn upp við dyrakarminn og lyfti myrk- sjánni upp að hægra auganu. Hann beindi henni að dökka skugg- anum undir skíðgarðinum. Smám saman varð svart myrkrið að gráu. Hann sá útlínur af stóru kven- mannsandliti, og einhverjir stafir komu í Ijós. Nú gat Bond lesið hvað þarna stóð: Niagara — Mari- lyn Monroe ve Joseph Cotten og þar fyrir neðan: Bonzo Futbolou. Bond beindi sjónglerinu aðeins nið- ur fyrir hármakkann á Marilyn Monroe, niður á ennið, niður yfir tveggja feta nefið með gapandi svörtum nösum. Þar vottaði fyr- ir ferhyrningi í girðinguna. Fer- hyrningurinn náði frá nefinu, nið- ur á lokkandi varirnar. Hann var um þrjú fet á hæð. Það var tölu- vert fall þaðan og niður á jörð- ina. Bond heyrði nokkra daufa smelli fyrir aftan sig. Kerim hélt stafnum fram fyrir sig. Eins og Bond hafði búizt við, var þetta byssa, riffill. Nú var kominn hljóð- deyfir í staðinn fyrir gúmmíþóf- ann. — Hlaup af nýrri 88 Winchester, hvíslaði Kerim stoltur. — Sett sam- an fyrir mig hjá manni nokkrum í Ankara. Tekur 308 skötfæri Stuttu skotin. Þrjú í einu. Lánaðu mér sjónglerið. Ég þarf að vera VIKAN 49. tbl. — gg Rúskinnskápur Rúskinnsjakkar x N ap p askinnj akkar Nappaskinnkápur * /

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.