Vikan - 22.12.1964, Qupperneq 2
r
I fuilri alvöru:
Canadian Mist er
heimsþekkt vörumerki
Biðjið um vörur úr
Canadian Mist poplíni
Frumþarfir
og þjónusta
Ahril'amáttur orða er mismik-
ill. Sum hljóma nánast óhugn-
anlega, eins og milliliður og
miililiðastarfsemi. Getur verið
ástæða til að sýna slíkum lyrir-
Iirigðum miskunn? — varla. En
nú er milliliðástarfsemin fólgin
í verzlun, samgöngum og ann-
arri þjónustu. Ekki getum við
lagt allt slikt niður. Nei, að visu
ekki, en það er ofvöxtur í þess-
um gagnslitlu störfum, og þá
er eitthvað annað að vinna hörð-
um höndum.
Þetta er ekki eingöngu til-
búinn áróður, svona tala menn
og luigsa, og þessu trúa marg-
ir. Auðvitað eru frumatvinnu-
vegirnir liin mikla undirstaða,
sem þjóðfélagið byggir að veru-
legu leyti á, en þeir einir ná
skammt. Um aldir lifði nær allt
fólk hér á landi á fiskveiðum
og landbúnaði, en hvílíkt lif,
oft liafði það varla að borða og
stundaði þó matvælaframleiðslu.
Siðar hefur þjóðfélagið orðið
æ fjölbreyttara og ný og ný
starfsemi verið tekin upp, en
tiltölulega færri og færri stunda
frumatvinnuvegina, samt verð-
ur þjóðfélagið efnaðra ineð ári
livcrju. Framleiðslan heflir lika
margfaldazt. Tæknin, skipulagn-
ingin og verkaskiptingin hafa
séð um ]>að, en ekki fjöldi hand-
anna.
Auðvitað getur oft verið um
sóun á vinnuafli að ræða i þjón-
ustustarfsemi og slíkt þarf að
reyna að fyrirbyggja, en ]>að
er hægt að sóa á fleiri sviðum.
Hvers virði er sú framleiðsla,
sem er hálfgefin úr landi? Því
miður eru til dæmi um þetta.
Mikil gjaldeyrisöflun er undir-
staða þess, að liægt sé að lifa
nútíinamenningarlífi á íslandi,
en er sá dollar nokkuð meira
virði, sem kemur fyrir frosinn
fisk lieldur en sá, er kemur frá
farþega Loftleiða? Það er ein-
mitt, þegar frumþörfum okkar
hefur verið fullnægt, sem við
föru mað meta þjónustuna mik-
ils. Saddur maður vill lieldur
kaupa Vikuna en kíló af kart-
öflum, sem hann hefur ekkert
við að gera. Á hinn bóginn eiga
verzlun og samgöngur mjög
verulegan þátt í því, sem við
fáum fyrir framleiðsluna. Vissu-
lega þarf framleiðslan að ítuk-
ast, en aðeins til þess að við
getum nolið betri lífskjara ■—
mciri þjónustu. Peninga á að
nota ítf ráðdeild og liagsýni, en
þeir eru ekkert markmið í sjálfu
sér. Þeir eru aðeins mikilvægir
vegna þess, sem við getum feng-
ið fyrir þá. vk.
2 — VIKAN 52. tbl.