Vikan - 12.05.1966, Page 28
Hópur kynvillinga á gangstétt í New York. Sumir þeirra
hafa komið auga á Ijósmyndarann og skæla sig framan í
hann.
Barrett hefur staðið Murphy-mann að verki og handtekið
hann. Meðan Barrett (til hægri) kallar á fórnarlamb Murp-
hys, sem komið er spölkorn frá og hann vill nota sem
vitni, neytir dólgurinn færis til að henda bréfsnifsi með
heimilisfangi, sem hann ætlaði að afhenda næsta fórn-
ariambi. En félagi Barretts var á verði og tók miðann upp.
m ■ ii ■
að geta séð, hvort þar er á ferð eftirlitsmaður
með húsnæði eða innbrotsþjófur.
Murphy-mennirnir eru sumsstaðar fleiri en
ferðamennirnir, stundum að minnsta kosti. Þeir
setjast að skólapiltum og öðrum álíka sakleys-
ingjum, einkum ef þeir eru undir áhrifum áfeng-
is. Hann segist vita um hóruhús, en stelpunum
þar sé ekki trúandi fyrir peningum, svo ekki
megi borga þeim beint. Viðskiptavinurinn verði
því að afhenda húsfrúnni peningana í innsigl-
uðu umslagi, en ekki megi hann opna það, því
þá geti svo farið, að húsfrúin saki hann um að
hafa stolið einhverju af peningunum. Meðan
Murphy-maðurinn semur við viðskiptavininn,
sætir hann lagi að skipta á umslaginu með
greiðslunni og öðru, sem hann hefur á taktein-
um. Aumingja viðskiptavinurinn fer síðan beint
á staðinn, sem honum var vísað á, og finnur
þar vísast enga mellu, og þegar hann opnar
umslagið, eru aðeins í því nokkur pappírssnifsi.
— Sumir Murphy-menn eru meira að segja svo
traustvekjandi, að þeim tekst að fá viðskipta-
vinina til að fá sér til geymslu það fémæti, sem
þeir hafa á sér, svo ekki sé hætta á að stúlk-
an steli þv! af þeim.
Já, það er meira en nóg að gera hjá Barrett.
A svæðinu hans er meðal annars Rockefeller
Center, Radio City, leikhúsin flest og Times
Square. I hverjum mánuði eru þar að meðaltali
framin fimmtán rán, tuttugu glæpsamlegar ár-
ásir, þrjú hundruð og tuttugu þjófnaðir, tvær
nauðganir auk alls annars, sem enginn nennir
upp að telja, og er hér þó aðeins átt við það,
sem lögreglan fær skýrslur um.
Einn kvöldið var Barrett á vakki um umdæmi
sitt við annan mann og stóð þá smáþjóf einn
að verki við búðarhnupl. Þegar hann kom með
þann fingralanga á lögreglustöðina, var einn
starfsbræðra hans þar fyrir að yfirheyra mann,
sem tekinn hafði verið höndum fyrir að stinga
vegfaranda einn með hníf. „Hvað heitirðu"?
spurði lögregluþjónninn.
Framhald á bls. 34.
Vinnudagur Barretts hefst klukkan fimm eft-
ir hádegi og honum lýkur ekki fyrr en klukk-
an átta aS morgni. Hér sést Barrett hvila sig
smástund í varðstofu sinni að loknum þess-
um langa vinnudegi. Á veggnum á bakvið
hann eru festar upp myndir af fólki, sem
lögreglan hefur lýst eftir.
Tvær lesbíur (kynvilltar konur) spásséra um
götu aS kvöldlagi, báSar undir áhrifum her-
2g VIKAN 19. tbl,