Vikan - 12.05.1966, Síða 31
TEDDY-SlðllMJAKKINH
FYRSTA FLOKKS ULLAREFNI, SVART
OG BLÁTT.
FLÍK, SEM ALLIR UNGLINGAR ÓSKA
SÉR.
Seidur í verzlunum og kaupfélögum
um allt land. í Reykjavík: TeddybúS-
in, Aðalstræti 9 og Laugavegi 31.
Heildsölubirgðir: SOLIDO
Bolholti 4. — Símar 31050 — 38280
ur, fullur af mönnum, sumir æddu
fram og aftur eins og þeir ættu lif-
ið að leysa. Aðrir stóðu kyrrir og
störðu á eitthvað, sem enginn gat
séð nema þeir.
Mér féllust alveg hendur.
Nokkrir þeirra, sem þarna voru
skyldu að þarna var nýr maður að
koma, og vildu heilsa mér með
handabandi. Eg rétti þeim höndina,
en hætti þegar sá, sem ég heilsaði
fyrst vildi byrja aftur. Þrekvaxinn
náungi fór með mig inn í hliðar-
herbergi, þar voru þrjú baðker. Eg
veit varla hvernig ég fór að því
að fara úr fötunum, en það hafðist
einhvernveginn og skjálfandi eins
og gamalmenni komst ég í bað-
kerið, en svo gat ég heldur ekki
meira. Sá þrekvaxni varð að þvo
mér og virtist ekki vera óvanur
slíku. — Þú lagast við baðið vinur,
sagði hann hughreystandi.
Eftir baðið fékk ég hrein náttföt,
var síðan farið með mig upp í
rúm, sem stóð alveg við ganginn.
Þessi deild er nokkuð stór. Lík-
lega 15—20 menn, flestir rólegir,
en samt þessi einkennilegi órói í
þeim, sem lýsti sér í þessu stanz-
lausa ráfi þeirra. Mér datt í hug
fé ( rétt.
Eg reyndi að loka augunum og
slappa af, en það var ekki þægi-
legt, því alltaf voru einhverjir af
þessum vesalingum að koma að
rúminu til min, til þess að horfa
VIKAN 19. tbl.
á mig. Þeir brostu með þessu ein-
kennilega brosi óvitans, óafvitandi
að þeir voru að kvelja mig.
Eg varð því sárfeginn þegar vakt-
maðurinn kom og sagði mér, að
ég ætti að fara í skoðun.
Þetta var mjög nákvæm skoðun
að því er mér virtist og tók lang-
an tíma. Síðan var tekin skýrsla,
og svo farið með mig aftur á deild
10.
Nú kom kandidatinn með sprautu.
— Þetta er róandi, sagði hann. —
Reyndu nú að sofna.
Eg hef víst verið búinn að sofa
í 1—2 tíma, þegar ég hrökk upp.
Einn af þessum óvitum hafði ver-
ið að klípa mig í fæturna. Eg varð
alveg hamslaus, æddi fram úr rúm-
inu. Vesalingurinn setti upp skeifu
og forðaði sér út á ganginn, og ég
á eftir. Ég var rétt búinn að ná
honum, og veit ekki hvað hefði
sk:ð, ef vaktmaðurinn hefði ekki
komið aðvífandi og gripið föstum
tökum um mig. — Ég drep þessa
aumingja, ef þeir sjá mig ekki í
friði, öskraði ég. — Komdu upp í
rúmið vinur og jafnaðu þig. Vakt-
maðurinn var mjög rólegur, en á-
kveðinn þó.
Ég leit á fávitann, það var sorg-
arsvipur á and'.iti hans eins og á
litlu barni, sem veit að það hefur
gert eitthvað Ijótt.
Ég gekk með vaktmanninum og
fór upp i rúmið. Ég fann að taugarn-
ar voru að gefa sig og sagði hon-
um það. Hann sagðist skilja það
vel, það er ekki gaman að þurfa
að hafa drykkjusjúklinga hér, þetta
er bara til bráðabirgða, þú verður
fluttur strax og hægt er.
Að loknum kvöldmat afklæddust
allir sjúklingarnir, hnýttu saman föt-
in í böggul og afhentu vaktmann-
inum og hver fór upp í sitt rúm.
Eftir það leið mér mikið betur,
því þá var alger ró.
Rétt eftir miðnætti fékk ég svefn-
pillur og eitthvað róandi, ég held
ég hafi aldrei sofnað alveg, en lá
í móki fram undir morgun.
Strax eftir morgunmatinn byrjaði
rápið á sjúklingunum um gang og
stofu.
Ég fór nú að veita þeim meiri
athygli en daginn áður. Enginn
þeirra liktist neinum hinna, t.d. !
þessu endalausa ráfi þeirra, var
hver með sínu sniði, sumir fóru
fram og til baka á litlu ákveðnu
svæði, aldrei út fyrir það, aðrir
tóku ganginn eins og hann lagði
sig. Einn hálfhljóp, annar dróst á-
fram og dró fæturna eftir gólfinu.
Sumir þögðu, en aðrir höfðu ein-
hverja vissa setningu á heilanum
og stögluðust á henni sífellt, aldr-
ei sagði neinn setningu, sem ann-
ar átti.
Eins ömurlegt og það var að
horfa á þetta, gat ég varla annað
en brosað að þessum óvitum.
Þeir voru lika búnir að missa all-
an áhuga fyrir mér, kannske náði
minni þeirra ekki til gærdagsins og
þeim hafi fundizt ég vera búinn að
vera þarna alltaf?
Það var stofugangur um 10 leyt-
ið og þá var mér sagt að ég ætti
að fara á aðra deild.
Vaktmaðurinn kom með fötin
mín og hjálpaði mér að klæða mig.
Það verður mikið betra fyrir
þig cð vera á deild 1, það er allt
öðruvísi þar, sagði hann vingjarn-
lega.
Ég áræddi loks að spyrja hann
spurningar, sem var búin að kvelja
mig lengi, — hvaða dagur er í
dag?
— Þorláksmessudagur, svaraði
hann.
Ég reyndi að hugsa ekki neitt.
Ég var fluttur á deild eitt, og
var þar til næsta dags.
A aðfangadag var farið með mig
á drykkjumannahælið.
Mér líður vel núna, og ég get
hugsað um hlutina, rólega án þess
að fyllast sjálfsmeðaumkun.
Ég veit hvað ég á að gera, þeg-
ar ég fer héðan, en ég er ekki á
sjálfum vígvellinum. Þegar þangað
kemur, hef ég ekki þá, sem hjálpa
mér og styrkja mig hér, ég verð
einn, því þetta er eins manns styr-
jöld.
☆