Vikan


Vikan - 19.05.1966, Page 7

Vikan - 19.05.1966, Page 7
Kínverskir réttir Framtiald frá síöasta blaði Sveppir, sætur pipar og svínakjöt. 200 gr. fremur stórir sveppir, 4 V2 matsk. olía, 1 grænt piparhulstur, 2 tesk. syk- ur, IV2 matsk. soya sósa, 250 gr. magurt svinakjöt, 1 matsk. hveiti, e.t.v. y2 matsk. sherry. , Skerið sveppina í sneiðar og sjóðið í 1 matsk. olíu í 2 mín. Skerið piparhulstr- ið í lengjur og steikið í V2 matsk. olíu og bætið 1 tesk. sykri í og V2 matsk. soyasósu og látið malla í 2 mín. Skerið kjötið í litlar lengjur, veltið því upp úr hveiti og steikið í því. sem eftir er af olíunni og hrærið stöðugt í á meðan. Hell- ið olíunni af kjötinu og bætið sherrýinu í, ef það er notað, ásamt því sem eft- ir er af sykrinum og soya sósunni. Látið sjóða í V2 mín. og hrærið í. Blandið sveppunum og piparnum í og látið malla aðra hálfa mínútu og berið fram strax. Soðin gúrka. ' 1 stór gúrka, 2 matsk. olía, V2 tesk. salt, pipar, '/4 tesk. þriðja kryddið. Flysjið gúrkuna og skerið í helming eftir endilöngu og takið kjarnana úr. Hitið olíuna og sjóðið gúrkuna þar í 1 mín. og hrærið í á meðan. Bætið krydd- inu í og sjóðið áfram í 1 mínútu. Bækjur mcð sætum pipar. 2 stór, græn piparhulstur, 41/2 matsk. olía, 2 tesk. soya sósa, 1 tesk. sykur, 1 bolli rækjur, 1 matsk. hveiti, svolítill saxaður hvítlaukur, e.t.v. V2 matsk. sherry. Takið fræin úr piparnum og skerið hann í litla ferhyrnda bita. Hitið IV2 tesk. olíu og steikið piparbitana þar í. Bætið soya sósunni I og sykrinum og látið malla í 3 mín. Veltið þurrum rækjunum upp úr hveiti og hitið það sem eftir var af olíunni, bætið hvítlauknum í og síðan rækjunum og steikið í V2 mln. Hellið olíunni, sem rækjurnar hafa ekki sogið í sig, ef þeim og hellið slierrýinu yfir og bætið piparhulstrinu saman við. Sjóðið í V2 mín. og berið fram strax. Toppkál. Saxið 4—6 blöð af toppkáli og sjóðið í 2—3 mín. í saltvatni. Síið vel. Rétt áður en það er borið fram, er olian hituð og kálinu bætt í. en pipar og engifer stráð yfir og látið malla í V2 mínútu. Siir-sætar kjötbollur. 750 gr. hakkað nautakjöt, 2 egg, 3 matsk. hveiti, % bolli olía, 1'/2 bolli kjúklinga- seyði (teningar), 3 stór græn piparhulstur (skorin í sneiðar), 6 sneiðar niður- soðinn ananas (skorinn i stykki), 2 matsk. kartöflumjöl, 2 matsk. soya sósa, 1 tesk. þriðja kryddið, % bolli edik, % bolli ananassafi, % bolli sykur. V2 tesk. salt, nýmalaður svartur pipar. Gerið 18 bollur úr hakkaða kjötinu. Blandið saman eggjum, hveiti, salti og pipar. Dýfið bollunum í deigið og steikið í olíunni þar til þær eru brúnar. Tak- ið bollurnar upp úr og haldið þeim heitum og hellið olfunni úr pottinum, nema einni matsk., sem er skilin eftir. en út í hana er hellt V2 bolla af kjötsoðinu, græna piparnum og ananasnum. Setjið lok yfir og sjóðið við meðalhita í 10 min. Blandið hinum efnunum saman og hellið í og hrærið stöðugt í þar til suðan kemur upp og sósan verður þykkari. Bætið kjötbollunum saman við og látið malla í 15 mínútur. Ætlað fyrir 6 manns. Won Ton súpa. Won Ton súpa er kjúklingaseyði með fylltu brauði. Fyrst er kjötfylling búin til í brauðið. síðan brauðdeigið og svo súpan. Fylling: 500 gr. hakkað svína- kjöt, 1 egg, 1 matsk. soyasósa, nýmalaður, svartur pipar. Blandið þessu vel sam- an. Deigið: 2 bollar hveiti, 1 egg, lauslega þeytt, 1 tesk. salt. Blandið hveitinu og saltinu saman og hrærið eggið í, u.þ.b. ’/s bolla af vatni bætt í, nokkrum dropum í senn, eða þar til deigið er hæfilega þykkt, til að hægt sé að fletja það út. Hnoðið þar til það er jafnt á borði, sem hveiti hefur verið stráð á, þek- ið það með hreinu handklæði og látið standa í 20 mín. Fletjið það næfurþunnt út og skerið í stykki ca. 5x5 cm. Það ættu að verða 18 stk. Látið matsk. af Won Ton fyllingunni í miðju hvers stykkis og brjótið deigið utan um og limlð saman brúnirnar með svolítilli eggjahvítu eða vatni. Súpan: 8 bollar kjúklinga- seyði, soyasósa, 2 matsk. saxaður laukur. Látið suðuna koma upp á soðinu og látið nokkra Won Ton út 1 og sjóðið í 5 mín. eða þar til þeir fljóta á yfirborð- inu. Takið þá upp úr, látið renna af þeim og haldið heitum. Setjið þá fleiri bita út í og þannig áfram þar til allir eru soðnir og setjið þá alla út í súpuna, þegar hún er borin fram. Soya^ósa borin með og saxaöur laukur, annaðhvort með eða út á súpuna. Rafmagnsrakvélar i miklu iirvali metf og án bartskera og h'arklíppum BLÓMABÚÐIN ÁLFHEIMAR 6 SÍIVII 33978 REYKJAVÍK VIKAN 20. tbl. rj

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.