Vikan - 19.05.1966, Síða 34
Hvítara hvítt..
Hreinni jitirl
NotiS Blaa Omo, nyjasta
og bezta jDVOttaduftið
næsta þvottadag. SjaiS
hvernig Omo freyðir vel og
iengi og gerir hvíta þvottinn
hvftari og liti mislitu
fatanna skærari en nokkru
sinni fyr! Reynið Omo.
SjáiS meS eigin augum
hvernig Omo þvær hreinast!
fram á varir hennar, en hún gat
ekki sfuniS þeim upp.
Bóndi hennar tók ekki einu sinni
eftir þessum merkjum mótþróa,
þessum óljósu hljóSum sem ekki
urðu að orðum. Hún ætlaði að ýta
honum frá sér, en mótspyrna henn-
ar var ekki líkt því eins sterk og
biturleikinn í huga hennar. Hitinn
frá endurnærðum og þróttmiklum
líkama mannsins lagðist yfir hana
eins og mara. Vélrænt lét hinn ungi
líkami hennar undan, munnur henn-
ar var innsigla?5ur af vörum hans.
Henni fannst hann vera eins og
griðarstór klettur sem hún var
hlekkjuð við og væri að sökkva með
honum, dýpra og dýpra.
( ómlnnlsvlmu sökk hún niður I
hljóðar rökkvaSar öldur þelrrar
gleði sem ávallt er ný.
Langt ofar öllu flutu burt stðustu
VIKAN »0. tbL
spor angistar og hugsjóna, sem
höfðu haldið fyrir henni vöku um
nóttina, leystust upp og hurfu, eitt
og eitt eins og vatnsbólur yfir
drukknandi líkama.
Skær dagsbirtan fyllti hvitmálað,
snyrtilegt herbergið.
☆
Heilaþveginn í kín-
versku fangelsi
Framhald af bls. 15.
stað nálægt þrítugasta og éttunda
breiddarbaug, þar sem Frakk-
arnir voru á undanhaldi. Svo
kom að nóttinni og bardaganum,
þegar ég var handtekinn.
Eftir að Kinverjarnir höfðu
hremmt okkur, stóðu þeir yíir
okkur vörð í kortér eða tuttugu
mínútur. Við heyrðum ákafa
skothríð frá staðnum, þar sem
ég hafði verið gripinn. Þá komu
þeir með tvo í viðbót af okkar
mönnum. Þeir höfðu náð þeim
þriðja, náunga úr mínum riðli,
sem hafði áður verið í land-
gönguliðinu. Þegar Kínverjarn-
ir ætluðu að taka af honum
riffilixm, skaut hann einn þeirra
beint í trýnið og tók svo á sprett.
Þeir skutu hann í bakið og hann
dó á staðnum.
Ég sat þarna hungraður og
þyrstur og þreyttur — uppgef-
inn á öllu og öllum. Okkar menn
hófu nú stórskotahríð. Sprengi-
kúlunum haglaði niöur umhverf-
is okkur. Ég sat kyrr og kærði
mig kollóttan. Ef ég yrði hæfð-
ur, þá varð að hafa það. Kín-
verjarnir komiurt í mikið upp-
nám — þeir æptu og góluðu og
ráku okkur á undan sér gegnum
aðalstöðvar bataljónar okkar,
sem þeir höfðu hertekið ásamt
öllum okkar vörubílum og jepp-
rim, og földu okkur í kóreönsku
húsi. Mér tókst að ná í grátt teppi
úr einum jeppanum. Ég vafði
því saman og hélt svo á því undir
handleggnum.
Við höfðum allir fengið eins-
koneu: taugaáfall. Við vissum
ekki hversu langt líf okkur var
ætlað. Þeir gátu átt það- til að
drepa okkiu-. Líka gat hugsazt að
við dræpumst úr sulti. Eða þá
fyrir sprengjum okkar eigin
manna. Þetta var upphaf þeirr-
ar meðferðar, sem átti eftir að
lama okkur gersamlega.
Þá um kvöldið gáfu Kínverj-
arnir okkur að éta í fyrsta sinn.
Máltíðin var mestanpart vatn, en
í það hafði verið stráð fáeinum
grjónum, líkum þeim sem við
höfum til skepnufóðurs heima.
Þeir báru þetta til okkar í tré-
skjólum af því tagi, sem notað-
ar eru til að gefa svínum. Ég
fyllti flöskuna mína af vatni og
náði með því um tuttugu grjón-
um. Annan kvöldverð fengum
við ekki. Þannig var fæði okkar
fyrstu vikuna í vistinni hjá Kín-
verjtmum.
Sama kvöldið lögðu þeir af
stað með okkur norðureftir.
Fleiri föngum var bætt í hóp-
inn á leiðinni, unz í honum voru
alls um þrjú hundruð manns.
Fyrstu daga þessarar hræðilegu
dauðagöngu vor okkur flótti of-
arlega í huga. Ég fékk aldrei
tækifæri til slíks. Fáeinir reyndu
að flýja; einn eða tveir voru
skotnir, en hinir gripnir og kom-
ið með þá til baka. Þeim mun
norðar sem við komumst, þeim
mun lokaðri urðu leiðirnELr til
undankomu.
Vikum saman var ævi okkar
sem hér segir: Á daginn sváf-
vun við á hæðunum vmdir trján-
um. Á næturnar drógiunst við
áfram í myrkrinu. Þvottur og
rakstur voru óþekkt fyrirbrigðL
Við þóttmnst heppnir, ef við
fengum nóg vatn að drekka. Ef
maður gekk botninn úr skónum
sínum.þávarðhann að ganga ber-
fættur þaðan af. Við vorum
hungraðir, skítugir, órakaðir og
flestir veikir. Enginn gerði kröfu
til annars en að vera til, lifa
af. Stolt okkar og sjálfsálit var
smámsaman brotið niður. Pen-
ingar urðu fullkomlega verð-
lausir; ég sá menn brenna þá
og nota þá fyrir klósettpappír.
Menn slógust út af sígarettustúf
eða spónfylli af mat. Þeir voru
orðnir að dýrum.
Þráin eftir mat magnaðist stöð-
ugt. Dýrsleg þrá eftir mat. Mað-
ur gekk með augun lokuð og
hugsaði um alla mögulega rétti,,
sem maður hafði bragðað. Munn-
urinn fylltist vatni. Ég hugsaði
mest um ís — vanilluís.
/