Vikan - 19.05.1966, Qupperneq 36
wxam
<x w,
(t
av. <,¥>;.■;.■
EBlalMalaEilalatalalgtalalilaE
i ÖLLUM
KAUPFÉLAGSBÚÐUM
PINJAR
BRAUÐRASP
Menn hjálpuðu hver öðrum ef
þeir gátu. Flestir reyndu það;
ég skal ekki segja allir. Ég man
eftir náunga, sem reyndi að bera
félaga sinn. Hann bar hann eitt-
hvað hundrað skref og varð svo
að sleppa honum. Þeir, sem gáf-
ust upp eða drógust aftur úr,
sáust ekki aftur.
Hver dagur virtist okkur ekki
skemmri en ár, og næturnar
voru enn lengur að líða. Það
var ekki hægt að lifa nema mað-
ur reyndi; þeir sem ekki reyndu
það, dóu. Ég hef alltaf verið
þrj ózkufullur, nógu þrjózkufull-
ur til að halda út til hins síð-
asta.
Ég man eftir nótt einni í júlí.
Þá höfðum við í raun réttri ver-
ið matarlausir í tvo mánuði.
Heilsa okkar, líkamleg og and-
leg, stóð á lágmarki. Það rigndi,
og við óðum forina í mjóalegg.
Við drógumst áfram, hrasandi og
hnjótandi. Við vorum grútskít-
ugir — höfðum ekki þvegið okk-
ur í tvo mánuði. Við vorum
á leiðinni gegnum fjallaskarð.
Hundblautir og forugir og kín-
versku verðirnir æpandi og gól-
andi, er þeir reyndu að herða á
okkur. Allt á ringulreið og lest
kínverskra burðarmanna á göngu
með mat og birgðir öfuga leið
við okkur. Bandarískar sprengju-
flugvélar varpandi svifblysum
og sprengjum á veginn. Óendan-
leg röð af æpandi mönnum með
hesta og múldýr og allt mögu-
legt. Við komumst upp í há-
skarðið og fengum þar hvíld. Ég
lét mig detta — beint niður í
forina. Mér var sama. Við vor-
um allir í því ástandi, að ekkert
skipti máli. Kannski myndum
við deyja, að það var þá bara
betra. Ég lá þarna og hugsaði
um mat. Ég sá hann fyrir mér,
heitan og ilmandi. Hann var á
fallegu borði með hreinum, hvít-
um dúk, og þar var líka vatns-
glas og falleg áhöld úr silfri.
Og þarna lá ég í forinni, skít-
ugur, lýsnar skriðu á mér, og
gauragangur og ringulreið allt í
kring.
Þegar okkur var sagt að halda
áfram, varð ég að einbeita mér
að því að komast á fætur —
einbeita mér meira en nokkurn-
tíma fyrr eða síðar. Það var ó-
trúlega erfitt að rífa sig upp úr
leðjunni og hefja gönguna á ný.
Mig langaði ekki til þess. En
ég vissi að ef ég gerði það ekki,
þá væri ég búinn að vera. Þeir
Margir — aðallega borgarbúar
— átu ekki matinn, sem Kín-
verjarnir gáfu okkur. Þeir urðu
dauðanum að bráð, auðvitað.
Aðrir gáfu upp alla von. Fjöl-
margir dóu af þeim sökum. Ég
gafst upp andlega, en ekki líkam-
lega; mér tókst að halda áfram
að éta. Það var slæðingur af
ormum innan um grjónin, sem
við fengum. Væru þeir sæmilega
soðnir, þá át maður þá. Stund-
um flutu þeir ofan á, svo hægt
var að veiða þá ofan af, áður
en maður slafraði í sig gumsið.
Bragðið af því minnti á sand,
og það var því sem næst ómelt-
anlegt. Maður fékk hræðilegan
krampa innvortis og það var sem
innýflin brynnu í eilífum eldi.
Við rétt löfðum í því að vera
til. Tækist það ekki, var dauðinn
á næsta leyti. Eftir tvær eða
þrjár vikur fóru menn að deyja.
Algengt var, að tveir eða þrír
dæju á nóttu.
voru þó nokkrir, sem lágu eftir
í myrkrinu.
Við vorum stöðvaðir og látnir
hvíla okkur í viku 1 litlu yfir-
gefnu þorpi. Við sátum þar und-
ir trjánum og létum sólina verma
okkur. Þar var okkur skipt í
flokka. Matgjafirnar til okkar
voru nú betur skipulagðar en
fyrr. Skammtur hvers og manns
var mældur mjög nákvæmlega
með skeið, og ef við fengum
baunir, þá voru þær taldar. Á
meðan stóðum við allir og horfð-
um á. Seinna fórum við að fá
kjötvitund, en skammturinn á
mann var venjulega á stærð við
eldspýtu. Ég hef séð menn slást
út af slíkri kjötflís — oft.
Kínversku varðmennirnir komu
ekki ruddalega fram við okkur.
Yfirleitt létu þeir okkur afskipta-
lausa. Engum datt í hug að trúa
vitleysu á borð við það, að þeir
væru sjálfboðaliðar. Þetta voru
þrautþjálfaðir atvinnuhermenn
úr rauða hernum kínverska.
Áfram gengum við og komum
BIRGÐASTÖÐ
BBIalalsEIalslalalalalglalalglg
INNOXA
Hið heillandi INNOXA krem gefur húðinni stöðugan raka.
Húð yðar er stöðugt að gefa frá sér raka og um leið missir
hún ferskleika sinn. Venjulegt rakakrem er ekki nægileg
næring. Húðin þarfnast raka sem endist. TENDER TOUCH
frá INNOXA hið fína, döggvaða krem, sem húðin drekkur
í sig og verkar sem frískandi bað. Tímanum saman endast
áhrifin og yður finnst þér hafa mýkri, ferskari og meira lif-
andi húð. Byrjið í dag að nota TENDER TOUCH og á morgun
finnst yður þér ekki geta verið án þess. Eða, án hinna undra-
verðu áhrifa.
TENDER TOLTCH
INNOXA
Heimur fegurðar í einu orði
Iieildsala: J.O. Möller & Co. Kirkjuhvoli, sími 16845.
t* #* rt&F" i
** s* 0%
A a
nfpH&bi
gg VIKAN 20. tbl.