Vikan


Vikan - 21.07.1966, Blaðsíða 32

Vikan - 21.07.1966, Blaðsíða 32
Herrasnyrf ivörur gæöavara, sem allir karlmenn kjósa Fáanlegar í flestum herra- og snyrtivöruverzlunum. HERVALO EIRÍKSSON S-F- Austurstræti 17, sími 22665 STJÖRNUSPÁ - Jfe- 5Í 2£ • iis Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl)- t>ú verður vitni að atburðum sem hafa sterk áhrif á þig. Gamall kunningi þinn verður mjög hjálplegur næstu daga. Þú ert fremur illa upplagður og skalt reyna að taka lífinu með sem mestri ró. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þig langar mjög til að reyna nýjar leiðir en fyrst þarftu að ryðja ákveðnum skoðunum úr vegi. Þú verður fyrir tvöföldu happi á þriðjudaginn, þótt þú komir ef til vill ekki auga á það strax. m Nautsmerkið (21. aprí! — 21. maí): Næstu dagar verða ekki eins líflegir og undanfarin vika. Þú ferð óvenjulítið að heiman og kemur mörgu smálegu í verk er þú hefur trassað undanfarið. Þér líður vel og samskipti við annað fólk verða góð. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú leggur þig mjög fram og nærð góðum árangri sem verður til þess að auka sjálfsálit þitt. Varastu alit óhóf og farðu varlega með peninga. Þú verður vitni að óheiðarleika en skalt láta sem ekkert sé. ff Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú uppgötvar nýjan hæfileika sjálfs þín og verður mjög upptekin af þessari uppgötvun næstu daga. Yfirleitt verður vikan þægileg einkanlega fyrir ungt fólk. Heillalitur er rauður. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Varastu að halda sjálfum þér á lofti, þú hagnast mest á þeim hæíileikum sem þú þarft ekki að benda öðrum á. Þú verður fyrir nokkrum töfum, en þær hafa ýmsa kosti í för með sér. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlf): Þú munt þurfa að berjast af hörku fyrir málefnum þínum, en þótt mótbyr sé allmikill hefurðu töluverða möguleika á sigri. Þú skemmtir þér vel í léttu gamni með kunningjahóp um helgina. £ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Margt verður tii að valda þér áhyggjum, en ef þú hugsar rökfast sérðu að útlitið er ekki sem verst. Þú færð sjaldgæft tækifæri til að láta aðra stjana við þig og nýtur þess vel. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ógúst); Þár býðst gott tækifæri til að rifja upp gamlan kunningsskap við skólafélaga þina. Likur eru á ferðalagi sem flytur þér á einhvern hátt ný viðhorf. Heigin verður ekkert sérstök. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúari: Þú hefur í mörg horn að líta en vinnst vel úr tim- anum ef þú skipuleggur hann og reynir aö vinna eftir því. Þú undrast uppátæki nágranna þinna en þú færð skýringu fyrr en varir. ÍLí Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Eitthvað amar að þér og hefur dregið úr þér allan mátt. Reyndu að hressa þig upp t.d. með því að leita félagsskapar vina þinna. Þú átt góðan grip sem þú dáist mjög að. Heillatala er fjórir. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz); flaltu fast við fyrri skoðanir þínar þótt þú sjáir veika punkta í rökfærslu þinni. Þú fræðist um mál- efni er þú hefur lengi haft áhuga fyrir. Þú endur- nýjar samband þitt við ákveðna persónu. 32 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.