Vikan


Vikan - 03.11.1966, Blaðsíða 18

Vikan - 03.11.1966, Blaðsíða 18
Eftir James Munro 9. hluti — Það er auðvelt að hreinsa, en að trufla — ég verð að setja eitthvað í segulbandið — bréfsnep- il eða eitthvað, til að skýra hvernig það gerðist. Annars yrði só, sem setti þetta upp, tortrygginn. — Ekki bréfmiða, sagði Craig. Hann horfði ó stóra mölflugu sem hnitaði hringa um borðlampa And- rews, svo slengdi hann hendinni og leifar mölflugunnar voru [ lófan- um. — Hvað um þetta? spurði hann. — Skordýr komast allsstaðar. — Þetta er fínt, sagði Andrews. Craig lét leifarnar af mölflug- unni detta ó pappírsblað. — Geturðu komið henni fyrir aft- ur? spurði Craig. — Það held ég, sagði Andrews. — Ég gerði mér lykil. — Það er gott, sagði Craig. — Það er mjög gott. Okkur ó eftir að koma mjög vel saman. — Hann er góður, hugsaði nann. — Af nýliða að vera er hann and- skoti góður. Hann yfirgaf Andrews og fór til klefa síns. Hórið, sem hann hafði lótið yfir læsinguna, var heilt, herbergið ósnert Craig tók fram koníaksflösku, hellti slatta úr henní í glas og skolaði því niður í 18 YIKAN **• m- klósettinu. Hann drap í sígarettunni í öskubakkanum og hripaði tölur ó minnisblokkina og skrifaði svo Magna Electrics, og undirstrikaði það. Ut úr skópnum tók hann tösku, glæsilega tösku úr svínsleðri, sem hafði verið gerð af sama snillingi og bjó til ræfilslega tösku Andrews, hann tók úr henni falska botninn og leit ó Smith og Wesson .38, skammbyssuna með tveggja þuml- unga hlaupinu, skotfærabirgðirnar og mjúkt leðurhulstrið. Vandlega og hljóðlaust hreinsaði hann og yfir- fór byssuna og setti hana aftur á sinn stað. Hnífur Bauers var þarna líka í leðurskeiðunum, sem Loom- is hafði látið gera á þremur klukkustundum. Hann lokaði tösk- unni og leitaði að hljóðnema í sínu eigin herbergi. Hann fann engan, dreypti á ofurlítilli koníakslögg í verðlaunaskyni fyrir vel unnið verk og fór aftur til hinna. Attundi kafli. Þau voru enn á þilfarinu, drekk- andi, dansandi, og Naxos kom und- ir eins til Craigs og dró Philippu' með sér. Það tók þig langan tíma að senda skeytið, sagði hann. — Ég varð að reikna út hve miklu ég ætti að hætta, sagði Craig — Ég er ekki fyrir að tefla á tvær hættur. — Þú átt ekki skilið að eiga pen- inga, þrumaði Naxos. — Farðu og dansaðu við Philippu. Þú átt það heldur ekki skilið. Hann ýtti þeim saman öðru sinni og rak síðan tóma höndina út í loftið. Þjónn kom þjótandi og stakk í hana glasi af rakí. Hún var sterk og lipur í örmum hans, snerti hann rétt mátulega mikið. Höndin þrýsti á öxl hans, hún hélt höfðinu upp og stór, blá augun rannsökuðu andlitið með ákefð, sem var í engu samræmi við innantóm orðin: — Ég vona það fari vel um þig, John, sagði hún. — Ójá, sagði Craig. — Ljómandi. — Ef þig vantar eitthvað — biddu þá um það. Harry vill að þér líði vel. — Það er ekkert, sagði Craig. Þau fóru framhjá Swyven sem var að dansa við Piu og segja henni frá rústum Mitylene. — Þetta er allt of göfgandi, sagði Craig . Philippa hló lágt: — Er hann ekki hræðilegur? — Voðalegur. Hvað í ósköpunum gerir hann annað en að segja mér allt um Carpaccio? — Hann er tízkuteiknari. Meira að segja góður. — París? — Ekki svo góður, sagði Philippa. — Hann vinnur hjá manni í Fen- eyjum, sem heitir Pucci. — Kaupirðu frá honum? — Drottinn minn, sagði Philippa, — nei. Ég fer alltaf til Parísar. Ég elska að kaupa föt. Pia notar hann. Hann gerði þetta sem hún er í, og það er ekki svo slæmt, hvað finnst þér? — Prýðilegt, sagði Craig. — Mikið er ég fegin að þér finnst það, sagði Philippa. — Ég held að Pia sé orðin skotin í þér. Þætti þér það miklu verra? — Engin ósköp. Nei, sagði Craig. — Þú mátt ekki hlæja að mér, sagði Philippa. — Þú ættir ekki að tala svona. — Ég get ekki talað öðruvísi, nema eins og Hollywoodskækja. Það var það sem ég var. Þegar ég giftist Harry, vildi ég byrja upp á nýtt. Alveg frá upphafi. Svo hann

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.