Vikan - 03.11.1966, Blaðsíða 37
—i ■ i
SKARTGRIPIR
um —i i
SIGMAR & PÁLMI
Hverfisgötu 16A, sími 21355
________ __________________ i
Tavel stundi og brosið hvarf af
Naxosi; gretta færðist yfir andlit-
ið.
— Eg sagði honum það síðast
— ekki frekari slagsmál við vini
mína. Gesti, já — vini, nei. Svo
hvarf grettan. — O, andskotinn
hafi það, hann tapaði, var það
ekki?
Craig néri auman kviðinn, þakk-
látur yfir harða vöðvana, sem
höfðu dregið úr högginu.
— Kannske hann kunni ekki glögg
skil á mismuninum, sagði Craig.
Mér þætti fróðlegt að vita, hvort
ég hef gert þetta sannfærandi
hugsaði hann. Ekkert iúdó, ekkert
carate, aðeins barsmíðin, sem
manni er kennd á kommandónám-
skeiðum. Greifinn kunni það allt
líka. En hann drekkur of mikið.
Hann er vandmeðfarinn. Og til
hvers var annars þessi æfing? Til
að gá, hvort ég tæki á móti? Að
komast að því hvað ég kynni? að
gera mig óvirkan?
Naxos tók upp símann og hringdi
á lækninn, snéri sér síðan að Craig.
— Mér þykir afar fyrir þessu,
John, sagði hann. — Eg hélt í raun
og sannleika, að hann væri kom-
inn yfir þetta.
Philippa sat í stólnum og renndi
höndunum yfir silkiáklæðið, tók
upp lausan þráð. — Hann sló þig
Kka, sagði Philippa. — Er allt í
lagi með þig?
— Já, sagði Craig. Hann leit á
Swyven, sem kraup við hlið Travels,
og var að baða enni hans með
servlettu, sem hann hafði dýft í
ísfötuna.
— Það er allt í lagi með mig.
Meðan enginn fær þá hugmynd að
ég sé sekur, af því að ég lét hann
ekki slá mig niður,-
— Hann er vinur minn, sagði
Swyven. — Eg hef áhyggjur af hon-
um.
— Það var rétt hjá þér, sagði
Craig og snéri sér að Píu. — Komstu
honum til þess arna?
— Auðvitað ekki, sagði Pia. —
Hann er ekki minn vinur. Swyven
varð sár á svip.
— Hann er bara ómerkilegur
gáttagæir.
—■ Glugga, sagði Craig. —
Gluggagægir.
— Gátta, glugga, ég er feginn
að þú lamdir hann, sagði Pia.
Svo kom læknirinn inn, leit
snöggt á Philippu áður en hann
kraup yfir Tavel.
9. kafli.
Þegar Craig kom inn í klefann,
sneri hann sér þegar í stað að tösk-
unni. Einhver hafði fundið falska
botninn, það bar ekki á öðru. Hann
tók upp byssuna og rannsakaði
hana varlega, stykki fyrir stykki.
Skrúfan, sem hélt skotpinnanum,
hafði verið fjarlægð. Hann leit á
magaslnin. Þau voru tóm. Aðeins
hnífurinn var ósnertur. Tavel hefði
orðið betur ágengt, ef hann hefði
haldið á kúlunum í hendinni. Tavel
hafði brotið á sér hnúa, hlotið mar
á hálsinn og ákafan höfuðverk og
hann átti það allt saman skilið, en
sem bandamaður óvinanna var
hann óskýranlegur. Sömuleiðis
Swyven. Hann var líkamlegur heig-
ull. Og Swyven hafði verið hræddur
löngu áður en slagsmálin hófust.
Hann vissi að þeirra var von. Og
einhver hafði sviðsett afsökun fyr-
ir slagsmálunum — hina þekktu
ákefð Tavels og hæfileika til slags-
mála. Einhver hafði einnig haft
ástæðu fyrir sviðsetningunni, það
var greinilegt. Það varð að ryðja
Craig úr vegi, áður en snekkjan
næði Feneyjum. Hann velti því fyr-
ir sér, hver maðurinn bak við þessa
trúða væri. Tækni hans var Ijóm-
andi — að bera Tavel og Swyven
fram á diski — og ef til vill Piu
líka? Láta þau halda Craig önn-
um köfnum, meðan hann, sá ó-
þekkti, gæti unnið ótruflaður. Eini
ágalli hans var að hann hafði yfir-
drifið þetta ofurlítið. Hann var of
vandvirkur.
Hann hugsaði um þráðinn, sem
Philippa hafði tekið upp af stóln-
um — svartan bómullarþráð af
rauðu silkiáklæði. Stólnum, sem
Tavel hafði setið í. Stól Naxosar.
Þráðinn, sem Craig hafði sett yfir
lásinn á herbergisdyrum sínum. Það
leit út fyrir að hann væri klókari
í húsrannsóknum, en því að slá
fyrrverandi sjómenn niður. Og Nax-
os hafði aðeins staðið hjá og hleg-
ið. Naxosi fannst þetta fyndið, ef
til vill var þetta svo. Craig hefði
langað að hlægja líka, en hann
fann til í maganum þegar hann
hló.
Hann vaknaði næsta mogun og
fann að hann var frægur. Fólkið,
sem Naxos hafði í kringum sig
hafði enga andúð á Tavel. Það var
ekkert hrifið aí Craig heldur, en
Craig hafði unnið og það gerði
Hverjir eru kostirnir?
Laugaveg 176 — Símar 20440 — 20441.
SÖLUUMBOÐ UM ALLT LAND.
REYKJAVlK: HÚSPRÝÐI H.F.
Ekki þarf að bíða eftir að forþvotti Ijúki, til þess að geta sett sápuna
í fyrir hreinþvottinn. Að loknum hreinþvotti bætir vélin á sig köldu vatni
(skolun úr volgu) og hlifir þannig dælubúnaði við ofhitun.
Sparneytnar á straum (2,25 kwst.)
Afköst: 5 kg. af þurrum þvotti.
Ryðfrltt stál.
Forþvottur
Hreinþvottur, 95° C.
4 skolanir, þeytivindur á milli og siðan stöðugt í 3 mín. eftir siðustu
skolun.
Sérvöl fyrir viðkvæm efni, gerfiefni og ull.
Forþvottur eingöngu ef óskað er.
2 völ fyrir hreinþvott.
Hæð: 85 cm. Breidd: 60 cm. Dýpt: 57,5 cm.
LAVAMAT „nova D", LAVAMAT „regina", TURNAMAT.
BRJEÐURNIR ORMSSON H.F.
.............. 7 7 ■ ' — 77
44. tbi. VIKAN 37