Vikan


Vikan - 03.11.1966, Blaðsíða 29

Vikan - 03.11.1966, Blaðsíða 29
I fullri alvöru L.M.S. skrifborOiO er ávalit i ffapapbroddi Stærð 150X75 cm. 2 54 2 FRAMLEIÐANDI í : NO HÚSGAGNAMEISTARA- FÉLAGI REYKJAVÍKUR Ábyrgðarskírteini Húsgagna- meistarafélags Reykjavíkur fylg- ir borðinu. Einkaumboð: HÚSGAGNAVERZLUN AUSTURBÆJAR Skólavörðustíg 16 - Sími 24620 - 23785 Framhald af bls. 2. með sér á ferðum um landið og kaupa sér í hæsta lagi innihald í gosdrykkjaflöskur, sem kosta kr. 20 eða kaffi á hitabrúsa, sem kostar sama. En ætli sér einhver að fara að hætti siðmenntaðra manna og dveljast í sumarleyfi sínu á ein- hverju hótela okkar úti á lands- byggðinni, þá reynist það verða ódýrara að kaupa flugfar allar götur suður að Miðjarðarhafi og fá þar inni í jafn langan tíma. G. Vakað yfir safni. Framhald af bls. 21. er kölluð Lögbergsrétt. Eitt sumarið gerðum við vandaða girðingu um sumarbústaðslandið, s jö strengja gaddavír vel strengdan. Daginn eftir að réttað var þetta haust, var aðkoman þannig við sumarbústað- inn, að hliðið hafði verið brotið upp og allt landið innan girðingar var útsparkað eftir vænan fjórhóp, lambaspörð og bæli um allt og nóttúrlega gersamlega uppétinn só gróður sem nostrað hafði verið við allt sumarið og sumt lengur, bæði matarjurtir og skraut. Og það er sama, hve skæðar garðarollur eru, þær brjóta ekki upp timburhlið. Þetta er ekkert einsdæmi. Sumar- bústaðagirðingar þykja einkar hent- ug gerði til að geyma í fé yfir nótt. Vissulega eiga Reykvíkingar í vandræðum með féð yfir sumarið. í sumar var eyðilögð fjórgirðing þeirra í Breiðholtslandi, þar sem nú þarf að byggja yfir fólk, og þar féll síðasta vígið. Þeir eiga því varla í annað hús að venda en sleppa sauðkindum sínum yfir ná- grennið. Fyrir um áratug kom ég þar að um hánótt, sem nokkrir fjáreigendur úr Reykjavík voru að handlanga fé sitt af bílpalli inn á hafraakur bónda eins hér í ná- grenninu. Og ég hef heyrt að það sé ekki einsdæmi; þeir fari gjarn- an með féð á náttarþeli í lokuðum bílum og sleppi því á girnilega beitarstaði. Og núna í haust, þegar Reykja- víkurféð er komið af fjalli er það á hrakhólum þar til það fær inni [ sláturhúsinu. Það hefur gengið sér til beitar á túni borgarinnar hér inn með Suðurlandsbraut til dæmis, og krakkar hafa argazt í því og rekið það fyrir bíla á götunni. Það er því að öllu samanlögðu ekki nema von, að Reykjavíkurféð sé illa þokkað, en samt getur maður ekki annað en haft samúð með eigendum þess, þeir leggja á sig mikið aukaerfiði fyrir ánægjuna af félagsskap við féð, og þegar maður sér þá í réttunum leynir sér ekki, hve vænt þeim þykir um hana Kollu sína og hana Kápu sína og hann Dorra sinn, og hvað þeir vasast f þessu af lífi og sál. Og þetta er gagnkvæmt, Kolla og Móra og Dorri koma með silkimjúka snopp- una og nasa eftir brauði og Dorri verður vondur og hnullar, ef það kemur ekki. Það var kalt á vökunóttina og blés alls staðar í gegnum bragg- ann og kabyssan ekki í betra lagi en svo, að hún sveið spýtur en vonlaust að láta kol í hana. Enda lítið um kol;'nú fást þau ekki nema uppi í Borgarnesi því Kol og salt er bara orðið salt. Kvenfélagskon- urnar höfðu skilið okkur eftir kaffi að vanda og kræsingar. Við Krist- ján ræddum heimsins gagn og nauð- synjar fram eftir nóttu,- svo spurði ég Kristján hvort hann vildi ekki leggja sig. Nei, hann vildi það ekki. Hann sagðist vera vangæfur með svefn og ekki geta sofið annars staðar en heima hjá sér. Af og frá. En legg þú þig bara, góði, sagði hann. Ég lét ekki segja mér það oft, fór út í bfl og setti hann f gang og hallaði síðan aftur sætis- bakinu og gerði flatsæng og þegar hlýtt var orðið í bílnum drap ég á honum og sofnaði. Eftir tvo tíma vaknaði ég aftur og þá var aftur orðið kalt, ég fór inn í braggann að vita hvort það væri ylur af kabyssunni en þar var kaldara en nokkru sinni fyrr og Kristján sat í hnipri framan við hana. Ég fór út aftur og hitaði upp bílinn og Krist- ján kom og sofnaði. Það var að birta og morgunninn var undra faHegur. Rokið hafði gengið niður og það var komið stafalogn svo umhverfi vatnsins stóð á höfði f því og það sló slétt- um sorta á það hér og hvar. Kinda- bíll kom með tóman pall ofan frá Þormóðsdal og renndi út með vatni, síðan ók hjá rauður Bens af Hreyfli og f honum voru spariklædd- ir ungir menn í áköfum samræðum og hendurnar töluðu líka. Þeir voru ekki að Ifta eftir sauðkindum. Ég gekk upp með gerði og fann lamb- hrút kyrfilega fastan á hornunum í girðingunni, annars var allt með __________________ kyrrum kjörum. Mál að hella upp á aftur og fá sér morgunsopa áð- ur en réttarfólkið kæmi. Hrepps- verkstjórinn kom við annan mann áður en kaffivatnið var heitt, þeir ætluðu að setja upp pylsusölutjald- ið fyrir kvenfélagið. Þeir þáðu kaffi þegar það var tilbúið, þótt það væri pokabragð úr litlu könn- unni, og svo fóru þeir að setja upp tjaldið. Svo kom Kristinn á Mosfelli, hann hefur verið réttar- stjóri frá því ég man eftir mér og líklega tvisvar sinnum það eða meira, hann var kominn með lúður- inn sinn því án hans heyrist manns- rödd illa upp yfir réttakliðinn. Og þegar Kristinn er kominn, er vök- unni lokið. Það leit út fyrir gott veður. Fólk- ið var farið að þyrpast að og það myndi verða mikið að gera i bragg- anum og pylsutjaldinu í dag. Nú er ekki lengur aðalsport krakkanna að þekkja sundur sýlt og rifað, bita og fjöður, heldur kneifa gos og éta pylsur. Þeir eru meira að segja 44. tbi. VIKAN 29

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.