Vikan


Vikan - 03.11.1966, Blaðsíða 36

Vikan - 03.11.1966, Blaðsíða 36
Fullkomnasta trésmíOaverksfaeðlS á minsta gölttletl fyrir heimili, skóla og verkstœði Hln fiölhæfa 8-11 verkefna trésmlðavél: Bandsög, rennibekkur, hjólsög, frœsari, band- slípa, diskslípa, smergel- skífa og útsögunarsög. Fóanlegir fylgihlutir: Afréttari þykktarhefill og borbarki. verkfœri & járnvörur h.f. Tryggvagötu 10. — Slmar 15815 og 23185. — Eruð þér það? Hún slær um sig með einsat- kvæðisorðum, stuttorðum spurning- um. — En kæra barn, þér hljótið að skilja .... Það liggur við, að hún umhverf- ist frammi fyrir mér. Allt I einu hrynur brynjan af henni, öll þessi brosandi, vingiarnlega, prúða framkoma. Og þá, skyndilega, verð ég ofurlítið hrædd. Ekki við að missa Tore — heldur við hana. Tilfinningarnar hafa tekið af henni ráðin, og það er aldrei að vita, hverju fólk í slíku ástandi getur tekið upp á. Að glata svona algjör- lega stillingu sinni og sjálfsvirðingu, að þjóta svona upp .... — Kallið mig ekki ,,kæra barn"! (Drottinn minn, nú held ég, að hún sé að herma eftir mér! Heldur betur yfirdrifið og með þessu nef- h!jóði, sem ég hef svo sannarlega ekki). — Og hvað hlýt ég að skilja? Það eruð þér, sem skuluð skilja — Tore elskar mig, og ég elska hann, og við ætlum að gifta okkur, og við eigum von á barni saman, og hann er búinn að biðja um skiln- að, og hvers vegna eruð þér þá að koma . ? En hvað þetta er innilega hvers- dagslegt. Haldið þið ekki, að stúlkukindin fari líka að tala um ást. Annað vantaði nú bara. Við elskum hvort annað — hugljúft! Tore, elska einhvern. Tore, sem getur ekki elskað. Tore, sem eingöngu hefur'lifað fyr- ir embættisframa sinn, og nú held- ur stú.lkukindin, að hann varpi hon- um frá sér, hennar vegna. Hætti á að komast í slúðurdálka blaðanna, leysi upp dýrmæta heimilið sitt, af- sali sér mér — vegna einnar stelpu- skjátu. Tore, sem er tilfinninga- kaldur.'Tore, sem hefur elskað mig — án þess að elska. En sú endemis vitleysa, og að hann hafi verið að þvæla þetta við stúlkuna um að — Stúlka min, Tore mun ekki skilja. En ég skal lofa yður, að við munum koma vel fram gagn- vart barninu, við höfum aldrei skorazt undan því að gera það, sem okkur ber. En á hinn bóginn verðið þér líka að lofa að halda stranglega leyndu ... — Þetta með barnið gleður Tore. Því hann segir, að það sé barnið, sem hafi fengið hann til að taka ákvörðun. Hafið þér í rauninni nokkra hugmynd um tilfinningar Tores? Hvað hann hugsar og hverj- ar tilfinningar hans er? Haldið þér, að hann sé einhver leikbrúða, sem þér hafið dregið upp, og sem á helzt að dansa algjörlega eftir yð- ar pípu? Þið hafið búið saman í fimmtán ár, og samt vitið þér ekki nokkurn skapaðan hrærandi hlut. Veit ég ekki? Það er þér Iíklega eins hollt, stúlka mín, að vera ekki of fróð um það, sem ég veit. Þvf þá hrynja allar skýjaborgirnar þínar eins og spilaborg, sem blásið er á, og þú stendur eftir með fram- settan kviðinn og grátbiður okk- ur .... — Eitt er það, sem ég hafði ekki hugsað mér að skýra yður frá — þetta er ekki í fyrsta skipti, sem Tore lendir í svona löguðu. Og læt- ur mig um að bjarga málunum. En ég geri það af fúsum vilja — vegna hjónabands okkar. Hvers vegna haldið þér, að það verði öðruvísi einmitt hjá yður? — Eg trúi ekki því sem þér segið. Og ég vil pkki heyra eitt orð í við- bót. Nú verðið þér að fara. Eg vil ekki heyra meira. Verið þér svo væn að fara núna. Vesalings stúlkan. En þetta er sjálfsskaparvfti hjá henni. En hve hún sýnist óþroskuð af tuttugu og þriggja ára mann- eskju að vera. Þrjózkulega barna- leg. Og Tore ætti að afsala sér .... Hlægilegt. Og seinna, þegar hún situr eftir digur og framsett, alein, sú verður víst jafn borubrött þá. Nú grætur hún. Og var svo ör- ugg fyrir skammri stundu. Eg elska Tore, Tore elskar mig, fái ég hann ekki . . . Nei, hvað sem öðru líður, er hún af þeirri gerðinni, sem spjarar sig undir svona kringumstæðum. Með okkar hjálp auðvitað. Tore skal svo sannarlega ekki hlaupast frá þessu með skottið á milli lappanna. — Gefið þér honum eftir skiln- að? Samþykkið þér það — án málö- reksturs og svoleiðis? Nú er heima, dóttir hirðdómar- ans ætti að samþykkja skilnað — án málareksturs og svoleiðis. En málfarið. Eins og hjá krakka. Stúlku- kindin, hún veit víst varla, hvað skilnaður raunverulega er, hvað þá meira. Sumarbústaðinn, húsið, börnin tek ég. Ef svo ótrúlega fer. En auð- vitað fer það ekki svo. Þetta er ekki í fyrsta skiptið. í kvöld ætla ég að tala við Tore. Ég ætla að matbúa handa honum kjúkling með einhverju góðu víni. Ég ætla að kveikja á kertum og hafa damaskdúkinn á borðinu. Brjóta munnþurrkurnar upp á veizlumáta. í fjólubláum lit, e.t.v. Nei, það er of dapurlegt. Ég nota rautt. Ég læt börnin vera á fótum, þangað til hann kemur. Sfðan borð- um við kvöldverðinn tvö ein. Og í kvöld skal hann fá að elska mig. Dey ríkur, dey glaSur. Framhaíd af bls. 19. — Ekki venjuiega', hann er góð- ur að slást. — Craig Iíka, másaði Naxos. — Hann var í Special Boat Service. Þeir kenndu honum vel. — Það er langt síðan, sagði Craig. — Það er mesta furða hvað maður man. — Eins og að hjóla, sagði Naxos. — Þetta var mikið högg John, óheiðarlegt líka. — Ef ég hef ekki rangt við, tapa ég alltaf, sagði Craig. 36 VIKAN 44- t«.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.