Vikan


Vikan - 03.11.1966, Blaðsíða 22

Vikan - 03.11.1966, Blaðsíða 22
Það var í Þýzkalandi einhvern- tíma á síðasta sumri. Paul Vac- ker, rúmlega fertugur verkstæð- isformaður á bílaverkstæði ók nýja Bensinum sínum upp að söluskála við þjóðveginn og horfði á hann aðdáunaraugum meðan hann fékk sér svaladrykk. Það vildi svo til að rétt hjá hon- um stóð Jósef nokkur Beinert, afgreiðslumaður á bensínstöð og einnig hann horfði aðdáunar- augum á sinn bíl, forkunnar- fagran Ópel Kapitan. Þeir tóku tal saman og höfðu ekki lengi talað, þegar Beinert gerði hin- um það ljóst, að Mercedes Bens væri nú ekki ýkja merkilegur bíll. Bens-eigandinn var vitan- lega ákaflega særður og fór niðrandi orðum um Ópelinn, sem hann kvað í engu standast hinn goðumlíka Mercedes. Þetta jókst orð af orði, varð að handalögmáli og endaði með því að Bens- eigandinn dró pístólu upp úr pússi sínu og skaut Ópelmann- inn í magann til þess að veita honum þá ráðningu, sem hann myndi eftir. í Þýzkalandi þótti þetta ekki alvarlegt afbrot; hvað annað gat maðurinn gert. Að vísu var Beinert dæmdur í rúmlega tveggja ára fangelsi fyrir mann- dráp en ugglaust verður hann látinn laus eftir árið fyrir góða hegðun. Sumum þótti dómurinn heldur harður. Ef einhversstað- ar ríkir fanatík í áliti manna á bílum og bílmerkjum, þá er það í Þýzkalandi. Þjóðverjar elska bílana sína, sumir segja jafn- vel miklu meira en eiginkon- urnar, enda er dekur manna við bílinn allt að því hlægilegt. Bíl- eigandi nokkur í Þýzkalandi sagði í viðtali við blað: „Bíllinn minn er alveg sérstakur vinur minn. Ég umgengst hann eins og mennska veru, ég tala við hann, ég heilsa honum á morgn- ana og spyr hann hvernig hann hafi það, eða ég segi: Gaman að sjá þig aftur. Já, ég klappa hon- um líka og ég hef unun af því að láta fingurgómana strjúkast yfir mælaborðið.“ Annar sagði: „Þegar ég bremsa, þá geri ég það mjög varlega til þess að meiða ekki bílinn. Bílinn verður maður að bera á höndum sér, rétt eins og konu.“ Sumir sjá í þessu einhvers- konar ónáttúru; kannski er þetta tilkomið fyrir skyndilegt ríki- dæmi. Margt bendir þó til þess að svo sé ekki. Stóriðjuhöldur- inn Alfried Krupp er einn af auðugustu mönnum heimsins, en hann fer sjálfur með bílinn sinn, 22 VIKAN ö>l

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.