Vikan


Vikan - 03.11.1966, Blaðsíða 32

Vikan - 03.11.1966, Blaðsíða 32
Nýtt ! Modess BLUE SHIELD BLUE SIIIELD — örþunn blá himna úr plastefni, falin undir mjúku yfirborði sérhvers nýs MODESS bindis, býður yður áður óþekkt öryggi. Bláa himnan er rakaþétt og heldur MODESS bindinu öruggu að neðan og á hliðunum. Jafnframt þessu heldur nýja MODESS betur í sér raka, vegna þess, að bláa himnan, undir mjúku yfirborði bindisins, gerir fulla nýtingu rakapúðans mögulega. MODESS BLUE SHIELD hefur nýja lögun— V-myndaða lögun, sem gerir það svo auðvelt og þægilegt í notkun. Aldrei áður hefur bindi verið gert svo öruggt og þægilegt. ÓKEYPIS MODESS BELTI í hverjum pakka. (^vtwwwi J^otvmon STJÖ RNUSPÁ*$fc Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): • B Þér líður ekki mjög vel .eitthvað hefur skert sjálfs- R traust þitt. í rauninni ættirðu ekki að hafast mikið fl að, reyndu að hafa það notalegt heima hjá þér og fl gefðu þér tíma til að vera til. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú ert mjög upptekinn af nýrri hugmynd sem reyn- H ist þér til mikilla heilla. Þú tekur að nema hluti fl sem þú hefur lengi haft áhuga á að kynna þér. Þú g færð óvænta gjöf, langt að. 1 ff Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú kemst í kynni við mann sem er mjög umsetinn n og skaltu varast að umgangast hann of mikið. Þú H veldur einhverri persónu afbrýðisemi og gerir hún R þér mikinn óleik, Eyddu, kvöldunum heima hjá þér. fl Krabbamerkið (22. júní — 23. jú!í): Þú verður fyrir svikum sem gera þig ráðþrota um stund og fara nokkuð illa með tíma þinn. Farðu að öllu með gát síðari hluti vikunnar, það getur verið aö þú fallir í gildru. §»r Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ógúst): Það ber nokkuð á eyðslusemi hjá þér og er ekki víst að þú gerir þér grein fyrir hve mikið fé er far- ið, vegna þess að þetta «ru allt smáar fjárhæðir. Þú hittir gamlan kunningja. Meyjarmerkið (24. ógúst — 23. september): Þú átt mjög annríkt, en störf þín verða tilbreytinga- rík og lifandi. Þú reynir nýjar leiðir sem gefast vel. Eyddu frístundunum sem mest við áhugamál þín. Gríptu tækifæri sem býðst á laugardag. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Varastu eigingirni, ’p;.0 kemur harðar niSur á þínum nánustu en þú gerir þér grein fyrir. Vikan verður einkar heilladrjúg ungu fólki. Hætta er á að þú gleymir einhverju sem kemur sér illa fyrir þig. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Nokkrir atburðir verða þess valdandi að þú færð nýjan skilning á nokkru sem skeði á síðasta ári og gerði þig mjög spyrjandi, en þú hefur ekki fengið skýringar á. Nágranni þinn reynist mjög hjálplegur. íLs rr^ Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú átt skemmtilega viku í vændum sem færir þér eitthvað ógleymanlegt og ómetanlegt. Þú hefur tek- ið miklum framförum á því sviði sem þú hefur lagt þig mest fram við. HeiJlatala er fimm. £ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar); Þú færð verkefni sem þú hefur mikinn áhuga á og brennur í skinninu eftir að fást við, en sennilega verðurðu' að hafna því. Láttu ekki mótlætið buga þig, þú ert nógu sterkur til að byrja á nýjan Jeik. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar)- Þú ætlast til of mikils af fjölskyldu þinni. Reyndu að vera meira sjálfsbjarga og koma ekki þínum skyldustörfum á aðra. Reyndu að setja þig í spor þeirra sem i kringum þig eru. Fiskamerkið (20. febrúar 20. marz): Eldri kona er mjög dugleg að koma þér í gott álit meðal samstarfsmanna sinna og muntu njóta góðs af því síðar. Þú ert fremur ánægður með sjálfan þig og tilveruna, en gættu þess að lofa ekki of miklu. - 32 VIKAN 44' tw-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.