Vikan


Vikan - 09.03.1967, Qupperneq 18

Vikan - 09.03.1967, Qupperneq 18
HVERJUM ÞVKIR SINN FIIGL FAGIR Eitthvert vinsæiasta umræðuefni karlmanna er bilar — og stundum rekst maður á kvenfólk, sem líka hefur töluverðan óhuga á þessu hugðarefni. Oftast nær snúast umræðurnar þá um kosti og galla hinna einstöku teg- unda — kosti bílsins sem maður á sjálfur og gallana á bíl náungctns. Viðhorfin eru jafn mörg og fjöldi bíleigenda margfaldaður með fjölda bifreiðategundanna í landinu, svo óliklegt er, að margir verði á eitt sáttir. Svo léleg tegund er ekki til, að ekki séu einhverjir hrifnir af henni, og svo góður bfll hefur ekki enn verið settur á markaðinn, að ekki þyki einhverj- um hann óalandi og óferjandi. Við höfum nú snúið okkur til um tuttugu bíleigenda í Reykjavík og lagt fyrir þá þessa spurningu: Hvers vegna eigið þér og akið........... viðkomandi tegund? Svörin eru nær undantekningarlaust mjög jákvæð fyrir tegundirnar, og þetta eina, sem ekki rómar kosti og eiginleika bils- ins ber engan veginn að skoða sem neikvætt svar fyrir hann, þegar alls er gætt. Þetta er engan veginn tæmandi skoðanakönnun, til þess þyrfti ( fyrsta lagi að tína til allar algengustu bílategundir í landinu og að minnsta kosti 10—20 eigendur að hverri. Miklu fremur ber að líta á þetta sem tilraun til að kanna, hvern hug menn beri til farartækja sinna, og mikið er það gott, þegar allir eru ánægðir. Friðbjörn Agnarsson, endurskoðandi Land Rover Land Rover er ágætis bíll, og mér fyrir mitt leyti finnst mjög gott að aka honum. Vegirnir hér eru llka þannig, að ef maður er á flnni bíl, þarf maður mikla aðgát við holur og hvörf ( veginum. Svo þykir mér gaman að geta skroppið út fyrir það, sem við köllum vegi, þegar mér býður svo við að horfa. Ég hafði líka heyrt, að þjónustan á Land Rover verk- stæðinu væri ágæt, og ég hef ekki orðið fyrir vonbrigðum með það, þótt enn sem komið er hafi hann ekki þurft að koma á verkstœðtð til annars en hins reglubundna eftirlits sem fylgir með I kaupunuiri. Reksturskostn- aðurinn vex mér sízt í augum. — Mér líkar vel við bílinn og hann hentar mér mjög vel. Hvers vegna ég valdi Rambler? Mér finnst hann fallegur, hann er spar- neytinn á bensín og dekk, og að innan er hann sérlega fallegur og vand- aður, bæði mælaborð, sæti og áklæði, það er mjög skemmtilega frá þessu gengið. Þar að auki er hann mjög bjartur — sem sagt einkar skemmti- legur og hagkvæmur bíll — hvað viltu hafa það betra? Úrlygur Sigurðsson, listmálari, rithöfundur og bókaútgefandi Volvo Amason Ég ek Volvo af því hann er traustur og áreiðanlegur bíll, úr sænsku, skot- heldu stáli. Til dæmis má aka á 100 km hraða á steinvegg án þess að nokkur hurð opnist og ekillinn stígur út albata og heill, án skrámu, svo fremi hann sé bundinn niður með öryggisbeltinu. Annars byrjaði þetta með því, að ég átti gamlan Volvo, sem var skrif- stofa mln og dreifingartæki; í honum skrifaði ég bók sem hét Prófílar og pamfílar og þessi bók gerði mér kleift að eignast nýjan Volvo Amazon. Svo frétti ég, að von væri á nýjum Volvo í febrúar 1967 og það varð til þess að ég skrifaði aðra bók, sem heitir Þættir og drættir. Nú ef Volvo kæmi svo enn með nýjan bíl gæti vel farið svo, að ég skrifaði þriðju bók- ina til að geta eignazt fjórða Volvóinn. Svo gæti ég líka sagt, að ég æki honum af því að hann hefur gefið mér góða raun, ég meina að fást við bókmenntir. Ég vildi ráðleggja ykkur að leggja þessa spurningu fremur fyrir þá kappana Stirling Moss, Hermann Jónasson og „Dýrlinginn", sem allir aka Volvo, þegar mikið liggur við. SPORNING VIKONNAR: Hitrs ihm tiMI Mr n akN Ragnar Bjarnason, dægurlagasöngvari og leigubílstjóri Rambler Classic 18 VIKAN 10. tbi.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.