Vikan - 09.03.1967, Side 38
BARA HREYFA EINN HNAPP og
■-A/%I4/%FULLMATIC
SJÁLFVIRKA þvottavélin þvær, sýður, skolar og
VINDUR ÞVOTTIHN.
HAM^AFULLMATIC ÞVOTTAVÉLIN FER SIGURFÖR UM ALLA EVRÓPU. -
HAKA GERIR ÞVOTTADAGINN AUÐVELDARI EN ÁÐUR ÞEKKTIST.
sjalfstæð
ÞVOTTAKERFI
1. Suðuþvottur 100°
2. Heitþvottur 90'
3. Bleijuþvottur 100*
4. Mislifur þvottur 60*
5. Viðkvæmur þvottur O O «©
6. Viðkvæmur þvottur 40*
7. Stífþvottur/Þeytivinda
8. Ullarþvottur
9. Forþvottur
10. Non-lron 90*
11. Nylon Non-lron 60*
12. Gluggatjöld 40*
H^K^FUUMATIC
mÐEINS H/%B4/%FU11MATIC ER SVONA auðveld í notkun. snúið einum sneru
OG HAKA SÉR ALGERLEGA UM ÞVOTTINN OG SKILAR HONUM ÞEYTIUNDNUM. - SJÁLFVIRKT
HITASTIG OG VATNSMAGN, SEM HÆFIR HVERJU ÞVOTTAKERFI. - SJÁLFVIRKAR SKOLANIR. - TÆM-
ING OG ÞEYTIVINDUÞURRKUN. - MEÐ 2 KERFUM AF 12 ER HÆGT AÐ SJÓÐA ÞVOTTINN SVO VÉU
IN SKILAR JAFNVEL ÓHREINASTA ÞVOTTI TANDURHREINUM. - ÞVOTTURINN KEMUR AÐEINS VIÐ
GLANSSLÍPAÐ, SEGULVARIÐ, RYÐFRÍTT STÁL.
ábyrgð
KOMIÐ - SKOÐIÐ - SANNFÆRIST
Forsiálar frúr sjá, að brokkganga
og drykkfelda eiginmenn 'er naum-
ast hægt að skilja eftirlitslausa
heima á glámbekk, og aldrei að
vita hvað slíkir fuglar eru lengi
einir heima í hreiðrinu. Konur hafa
það stundum, en afar sjaldan, um-
fram karlmenn að læra af reynsl-
unni. Þær eru gæddar ólíkt meiri
aðlögunarhæfni, þó ekki á öllum
sviðum, sér ( lagi þegar kemur til
hliðarspora eiginmanna, Bakkusar
og annarra forboðinna ávaxta. Er
því betra að sleppa ekki af þeim
bandinu, þessum áhrifaríka seinni-
parti orðsins: hjónaband, sem fæst-
ir skilja og hugleiða, fyrr en löngu
eftir að í þá stofnun er komið, og
þeir finna fyrst fyrir snörunni um
hálsinn.
Blessuð eiginkonan sem veit ekki
hvað flughræðsla er, svífur þarna
örugg eins og dúfa um loftin blá og
segir eitthvað á þessa leið: „Öggi
minn, mikið dásamlegt er að ferð-
ast með þér núna, svona þöglum
og sjarmerandi, og nú ertu ekki að
þessu dæmalausa blaðri og mál-
æði og hávær eins og þessir sið-
lausu Norðlendingar. Svei mér ef
ég hlakka ekki til að sýna mig með
þér á Mayfair og West End, svona
penum og sætum eins og enskum
gentlemanni". Úr dimmum djúpum
þögullar þjáningar og sálarang-
istar rankar nú listamaðurinn loks-
ins við sér. Já, óttinn lamar sann-
arlega talandann, en vekur hugsun
og hugmyndir og umfram allt
„intelligensinn". Þetta endalausa
öryggi gerir ekki annað en sljóvga
menn andlega, í hættunni hugsa
menn eins og nú, hugsar listamað-
urinn og segir: „Usss, usss, hættu
þessu bölvuðu blaðri, kona. Þú
veizt, að ég kann mig hvergi bet-
ur en erlendis, enda numið manna-
siði á tvfeim kontinentum í fimm ár.
Það er markleysa ein að miða við
framkomu heima á Fróni, í því
ómenningar- og dónasamfélagi,
þar sem menn harmónisera ekki
nema dónaskap, þar sem enginn
kann að meta slík tillærð fræði, sem
nefnist kurteisi, nema Halldór Lax-
ness, Haukur Heiðar og kannski
Gunnar Guðjónsson. Við erum svo
déskoti þung og klessuleg þjóð,
þessir mörlandar, sem nú fyrst er
hægt að kalla Hú-mörlanda, þegar
kemur til þess snjallræðis laganna
að flæma góða menn upp í flug-
vél til útlanda til að fá að smakka
þennan indæla pólarbjór, sem er
framleiddur i sjálfri höfuðborginni
Reykjavík. Skál. „Nú fór karl cð
róast," eftir að hafa nærzt á nöldr-
inu við konuna með bjórnum. Ail-
ar hæftur gleymdar og nú færðist
óvænt ró og aukin öryggiskennd yf-
ira kauða eftir að hafa rennt næm-
um og sjáandi listamannsaugum
yfir nærliggjandi andlit farþeganna
og komist að þeirri raun, að víð-
ar er falin innbyrgð hræðsla en
sýndist við fyrsta augnakast. Og
til að leita að fleirum, sem líkt var
á með komið meðal farþega, var
skyggnzt yfir stólbakið, líkt og
sveitamaður á fyrsta bekk á frum-
38 VIKAN
10. tbl.