Vikan


Vikan - 11.01.1968, Blaðsíða 3

Vikan - 11.01.1968, Blaðsíða 3
K VIKU BROl Sæktu lyfjakassann, Matthildur, Jensen hefir setzt í stólinn hans Snata! Þetta er leirtauið, sjáið þér tjl, konan mín hefur verið fjarver- andi í vikul IÞISSARIVIKU Nei takk, síðast þegar ég fór með svona skipi sökk það! OKKUR DREYMIR Á HVERRI NÓTTU MEÐ BROS A SÍÐAN SÍÐAST NY OG NYTSAMLEG TÆKI VIKAN OG HEIMILIÐ Bls. 4 Bls. 6 Bls. 8 Bls. 10 Bls. 12 Bls. 14 Bls. 16 Bls. 18 Bls. 22 Bls. 24 Bls. 26 Bls. 30 Bls. 31 Bls. 35, 38, 42 Bls. 46 VISUR VIKUNNAR: Árið nýja uppá gátt opnar dyr og glugga og á loftið bjart og blátt bregður naumast skugga. Opnar standa ýmsar dyr ill þótt veður geysi, þjóðin hefur þraukað fyrr þjáð af auraleysi. Birta köld til lofts og lands lýsir dyggðaveginn þó að enn sé akstur manns allur vinstra megin. UTVARPIÐ SAGÐI: Þetta er síðara bindi höfundar. Baldur Pálmason í þættinum Á bókamarkaði. FORSIÐAN- Á forsíðunni minnum við á helzta efnið, sem er í þessu blaði. Sérstaklega vekjum við athygli á Nýjum og nytsamlegum tækjum, sem eru í miðopnunni. Tækni og verklegar fram- kvæmdir taka stöðugum framförum og hér nieð leggjum við okkar skerf til þ°irrar þróunnar. Vonandi hafa lesendur gam- an af þessu uppátæki. VIKAN — ÚTGEFANDI: HILMIR HF. Ritstjóri: Sigurður Hreiðar. Meðritstjóri: Gylfi Gröndal. Blaða- maður: Dagur Þorleifsson. Útlitsteikning: Snorri Friðriksson. Dreifing: Óskar Karlsson. Auglýsingastjóri: Sigríður Þorvalds- dóttir. Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33. Símar 35320 — 35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 35.00. Áskriftarverð er 470 kr. ársþriðjungslega, greiðist fyrirfram. Prentun og myndamót Hilmir hf. A NffSTU ERTU GÓÐUR MANN- ÞEKKJARI heitir grein, sem við birtum í næsta blaði. Þar segir frá því, hvers við getum orðið vísari um skapgerð manna og eiginleika með því að taka eftir, hvemig þeir heilsa okkur. hvernig þeir standa, hvernig þeir sofa, nvernig þeir haida á sígarettu og hvernig þeir pára á blað, á meðan þeir bíða eftir símtali eða einhverju slíku. Hið síðast- nefnda er ekki sízt athyglis- vert. Nær allir hafa fyrir sið að rissa í hugsunarleysi á blað og það er mjög mismunandi hvað menn pára. Krassið segir okk- ur sitt af hverju um skapgerð mannsins. Við höfum fengið nokkra þekkta menn til að pára fyrir okkur á blað — og síðan reynum við að lesa úr párinu skapgerð þeirra og eig- inleika ... Þriðji hluti viðtals Sigvalda Hjálmarssonar við Helga P. Briem, ambassador, nefnist VILDI ROOSEVELT AÐ SAMEINUÐU ÞJÓÐIRN- AR YRÐU Á ÍSLANDI? í þessum hluta segir Helgi frá dvöl sinni í Portúgal og New York á stríðsárunum ... Dag- ur Þorleifsson skrifar pistil- inn HUGSAÐ Á LEIÐINNI HEIM. Hann segir fyrst sögu af ljóðskáldinu Ezra Pound, er hann var í París og blaða- mönnum tókst að klófesta hann, þar sem hann stóð í Eiffelturninum. Þegar þeir spurðu hann hvers vegna hann væri þarna, svaraði hann: „Þetta er eini staðurinn í allri París. þar sem maður sér ekki þennan andskotans turn.“ Síð- an ræðir Dagur um Hallgríms- kirkju og spáir því, að þar verði margt um manninn við messur. Það verði nefnilega eina leiðin til að hafa ekki kirkjuna fyrir augunum að vera inni í henni! 2. tbt. yiKAN 3

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.