Vikan


Vikan - 11.01.1968, Blaðsíða 25

Vikan - 11.01.1968, Blaðsíða 25
■ — Eg vona að Þú látir þér ekki detta i hug að anza þessari Ivífnu skipun, greip Gabriel Berne fram í. BAngelique lagði höndina á úlnlið kaupmannsins til að róa hann. I— Leyfðu mér að fara og gera út um þessi mál i eitt skipti fyrir li. Úr því hann hefur valið tímann, skulum við samþykkja hann, Iví í sannleika sagt veit ég ekki hvað hann vill, né hvað hann hefur I huga. I — Það veit ég aðeins of vel, tautaði Berne. I — Það er alls ekki víst. Hann er einkennilegur maður. I — Þú talar svo kunnuglega um hann, eins og þú hafir þekkt lann lengi. I — fig þekki hann nógu Vel til að vita að ég hef enga ástæðu iil |ð óttast ..... það sem þú ert hræddur við. I Hún rak upp lágan, næstum ástleitinn hlátur og hélt áfram: I — Trúðu mér, Maitre Berne. — Ég kann að gæta mín. Ég hef laft f fullu tré við erfiðari náunga en hann. I _ Það er ekki ofsi hans sem ég hræðist hvíslaði Maitre Berne. I- Heldur veikleiki hjarta þins. I Angelique svaraði ekki. Þau höfðu skipzt á þessum orðum, án þess Ið sjá hvort annað, þau höfðu dregizt ofurlítið aftur úr, meðan sjó- Inaðurinn sem bar kyndilinn lagði af stað, i fylgd með arabiska þkninum, Manigault og pappírskaupmanninum. Þau hittust öll aftur Iraman við dyrnar að milliþilfarinu. | Berne tók ákvörðun. I — Ef þú ferð til híbýla hans fer ég með. I — Það væri mjög misráðið, sagði Angelique kviðafull. — Það myndi liðeins vekja reiði hans að óþörfu. I — Dame Angelique hefur fullkomlega rétt fyrir sér, greip Mani- tault fram í. — Hún hefur nægilega oft sýnt okkur að hún kann Eð verja sjálfa sig. Ég er alveg sammála henni i því að hún fari og fceri út um málin við þennan náunga. Hann hefur tekið okkur um þorð í skip sitt, satt er það. Svo verður hann allt í einu ósýnilegur og fcið erum komin í norðurhöf. Mig langar að vita hvernig á Þvi stend- þr. _ Að dæma eftir skilaboðinu sem arabiski læknirinn flutti, getum k'ið varla látið okkur detta i hug, að Rescator langi að ræða um hengdar og breiddarbauga við Dame Angelique. [ — Henni heppnast að fá hann til Þess samt, svaraði Manigaujt, fullur trúnaðartrausts. — Keyndu bara að minnast þess hvernig hún þélt Bardagne heitnum í hæfilegri fjarlægð. Vertu nú öldungis ró- ttegur, Berne! Hvers þarft þú að óttast, frá manni, sem hefur ekki aðrar aðferðir til að heilla kvenfólk en hengja framan á sig leð- urgrímu? Ég get varla ímyndað mér að konum finnist það mjög aðlaðandi. — Það er það sem undir grímunni er, sem ég óttast, sagði Berne, næstum eins og við sjálfan sig. Hann langaði mest til að beita valdi, til að koma í veg fyrir að Angelique hitti Rescator, því hann var hneykslaður yfir þvi að hún skyldi láta sér detta í hug að anza svona ósvifinni skipun. En svo minntist hann þess að eitt af því sem hún óttaðist, ef hún yrði kon- an hans, var það að verða á einhvern hátt fjötruð og geta ekki hagað sér eins og hún óskaði, svo hann neyddi sig til að sýna umburðar- lyndi og vinna bug á tortryggni sinni. — Farðu þá! En ef þú verður ekki kominn aftur innan klukku- stundar, tek ég til minna ráða. Þegar Angelique klöngraðist upp stigann, upp á afturþiljurnar, var jafn mikil ólga á hugsunum hennar og hafinu. Rétt eins og hafið hefði allt i einu orðið villt og geysandi, ruddust tilfinningar hennar, hver um aðra þvera og hún virtist ekki gera sér neina ljósa grein fyr- ir þeim. 1 huga hennar toguðust á reiði, gleði, kviði og von, og svo lagðist ofsahræðsla, eins og blýkápa á axlir hennar. Eitthvað var í þann veginn að gerast! Og Það var eitthvað hræðilegt og ógnþrungið, sem hún myndi ekki ná sér eftir aftur. Hún hélt að henni hefði verið vísað inn í setustofu Rescators, og það var ekki fyrr en dyrnar lokuðust að baki hennar, að hún sá að hún var í litlum klefa, með einu kýrauga og eina skíman kom frá kyndli, sem hékk í einskonar sigurnagla, ofan úr loftinu, til að koma í veg fyrir að það hallaðist. Það var enginn í klefanum. Þegar hún rannsakaði hann nánar komst hún að þeirri niðurstöðu að hann hlyti að vera hluti af hibýlum Rescators, því þótt hann væri þröngur og lágt undir loft, var kýr- augað við annan endann, eins og þau sem voru allt umhverfis hí- býlin á afturþiljum. Undir veggtjöldunum uppgötvaði hún dyr á einum stað. Þær staðfestu þá tilgátu hennar að klefinn lægi upp að setustofunni, þar sem Rescator hafði hingað til tekið á móti henni. Hún tók í hurðarhúninn, til að ganga úr skugga um að hugboð hennar væri rétt, en dyrnar opnuðust ekki. Þær voru læstar. Angelique yppti öxlum, hálf óánægð, en lét það gott heita. Hvarf síðan til baka og settist á rúmið, sem fyllti næstum allan klefann. Því meira sem hún hugsaði málið, þeim mun sannfærðari varð hún um að þetta væri klefinn, þar sem Rescator svæfi. Það hlaut að hafa ver- ið hér, sem hann stóð óséður, þegar hún vaknaði á austurlenzka legubekknum nóttina sem þau lögðu í haf, og fannst að horft væri á hana, án þess að hún sæi nokkuð. Það var nokkuð frekt af honum að láta vísa henni nú beint til þessa klefa. En hún ætlaði að gera upp sín mál við hann. Hún beið og smám saman þvarr þolinmæðin. Svo fannst henni þetta ekki leng- ur þolandi og að hann væri að skopast að henni og hún reis upp til að fara. Það var eins og óþægilegt áfall að komast að þvl að dyrnar, sem hún hafði komið inn um, voru einnig læstar. Þetta minnti hana óbærlega á aðferðir d’Escrainevilles og hún tók að lemja á hurð- ina og hrópa. En ærandi vindurinn og öskrandi hafið gleypti h]jóð hennar. öldurnar risu hærra núna, eftir að nóttin var fallin á, öðru sinni. — Myndi stormur skella á, eins og Le Gall hafði spáð? Henni flaug í hug sá möguleiki að þau myndu rekast á einhvern af þessum gríðarstóru ísjökum og allt I einu varð hún afar hrædd. Hún hallaði sér upp að veggnum og svo fikraði hún sig út að kýraug- anu. öldurnar bleyttu gluggarúðuna, hvað eftir annað, skvettu á hana úða og froðu, sem rann hægt af, svo að hún átti erfitt með að sjá nokkuð út. Samt sá hún, rétt í svip, stóran, hvítan fugl, sem sveif rétt fyrir utan kýraugað, aðeins fyrir ofan sjávaryfirborð, og það var eins og hann starði með grimmum augum á hana. Hún hörfaði inn í herbergið aftur. Dauðskelfd. Ef til vill var þetta sál drukknaðs manns. Það hafa svo mörg skip farizt á þessum slóðum ...... En hversvegna hef ég verið læst hér inni, alein ......? Það reið ólag yfir skipið, svo hún kastaðist frá veggnum, reyndi að stöðva sig, en tókst Það ekki, þess í stað hrataði hún upp í rúm- ið. Yfir það var breiddur stór, þykkur, hvitur feldur. Ósjálfrátt fól hún kaldar hendur sínar í honum. Hún hafði heyrt sagt að hér á norðurslóðum væru birnirnir hvítir eins og snjórinn. Ábreiðan hlaut að vera gerð úr slíkum bjarnarfeldi. — Hvert ætlar hann með okkur? Þessi einkennilegi kengur, sem hélt kyndlinum, sveiflaðist yfir höfði hennar. Það fór í taugarnar á henni að horfa á hann, vegna þess að geymirinn sem hélt olíunni var einkennilega kyrr í miðri hreyfingunni. Kyndillinn sjálfur var af gulli gerður og óvenjulegur. Angelique hafði aldrei séð hans líka, hvorki í Frakklandi, né á ferðum sínum. Hann var í laginu eins og kúla eða kaleikur og gula ljósið af kveikn- um barst út í gegnum einkennilegt slegið munstur. Sem betur fór virtist stormurinn ekki vera að aukast. Við og við heyrði Angelique mennina úti á þilfarinu hrópast á. 1 fyrstu heyrði hún ekki glögglega hvaðan þessi köll komu; og það var að- eins sjaldan sem hún heyrði orðaskil. En skipanirnar sem hún heyrði voru á borð við þessar: — Strengið framseglið og þríhyrnuna! Hart í stjórn! — Þetta var rödd Jasonar skipstjóra, sem vafalítið bergmálaði skipanir Rescators. Angelique hélt í fyrstu að hann hlyti að vera í herberginu við hliðina og rauk aftur til og barði á dyrnar sem lágu þangað. Svo gerði hún sér ljóst að hann var fyrir ofan hana, uppi á aíturþilj- unum. Veðrið var nógu slæmt til að báðir skipstjórarnir væru önnum kafnir. Öll áhöfnin hlaut að vera ofan þilja. En hversvegna hafði Rescator sent eftir Angelique — hvort sem það var nú af riddara- mennsku eða ekki — þegar hann hlaut að hafa séð það fyrir — þegar hann sendi boð sín — að hans myndi verða þörf á þessari nóttu. — Ég vona að Abigail eða Séverine sjái um Honorine ............ Og þá man ég það. Maitre Gabriel sagðist myndi koma og gera allt vitlaust ef ég yrði ekki komin aftur til þeirra innan klukkustundar. Henni leið betur er hún minntist þess. En hún hafði verið hér miklu meir en klukkustund. Klukkustund- irnar liðu hjá, hver á fætur annarri og enginn kom tii að frelsa hana. Að lokum komst hún að þeirri niðurstöðu að hún gæti ekki gert neitt, svo hún lagðist á rúmið og vafði sig inn í hvíta bjarnarfeldinn. Hún varð því syfjaðari, sem henni hlýnaði meir. Hún blundaði og svaf óreglulega, glaðvaknaði hvað eftir annað. Þegar sælöðrið dundi á kýrauganu, fannst henni sem hún væri í neðansjávarhöll, þar sem tvær raddir bárust í gegnum hafniðinn, rugluðust saman i huga hennar og urðu að öndum framliðinna, sem liðu gegnum kristalla í framandlegu landsvæði. Þegar hún opnaði augun, var eins og dofnað hefði á kyndlinum. Það var bjart af degi. Hún settist upp. — Hvað er ég að gera hér? Þetta er óhugsandi! Og enn hafði enginn komið. Hún var með höfuðverk, hárið hafði losnað niður. Hún fann húf- una, sem hún hafði tekið af sér, þegar hún lagðist útaf. Fyrir engan mun vildi hún að Rescator kæmi inn og fynndi hana svona ógreidda og illa til hafða. Ef hann hafði verið að bíða eftir þessu. Hún hafði aldrei getað séð fyrir um brellur hans, og sérstaklega, þar sem hún var annarsvegar átti hún erfitt með að greina í tæka tíð, þær gildrur sem hann setti fyrir hana eða gera sér grein fyrir því hvað honum var í huga. Hún reis snöggt á fætur til að laga sig til og litaðist ósjálfrátt um eftir spegli að kvenna hætti. Þarna var spegill á veggnum. Hann var í þykkum gullramma. Þessi einstaki dýrgripur glitraði með djöfullegum glampa og hún gladdist yfir því að hún skyldi ekki hafa tekið eftir honum meðan nóttin ríkti enn. 1 þvi hugarástandi sem hún hafði þá verið, hefði hann valdið henni mikilli skelfingu. Þetta kringlótta auga, sem starði á hana með óum- ræðilegri dýpt, hefði áreiðanlega boðað henni illt. Þegar Angelique laut áfram í áttina að spegilmyndinni, sá hún mynd af græneygðri sírenu með fölar varir og ljóst hár, aldurslausa eins og allar sírenur, sem eiliflega eru ungar, þótt aldirnar líði. Hún gerði sitt bezta til að eyðileggja Þessa mynd með því að greiða hár sitt og troða þvi undir skupluna. Svo tuggði hún á sér varirnar, til að fá einhvern lit á þær aftur og reyndi sem bezt að losna við þreytusvipinn á andlitinu. Þrátt fyrir allt þetta horfði hún enn með tortryggni á sjálfa sig í speglinum, því þessi spegill var ólikur öllum öðrum. Þetta gullbrúna djúp kastaði mjúkum skuggum á andlit henn- ar og gerði það dularfullt og lokkandi. Jafnvel þótt hún væri með þessa litlu, óaðlaðandi La Rochelle skuplu á höfðinu, virtist hún vera óhugnanlega lík listilega gerðri gyðjumynd. — Er ég raunverulega svona eða er þetta töfraspegill? Hún hélt enn á speglinum í hendinni, þegar dyrnar opnuðust. Hún faldi liann í pilsfellingunum, þótt hún fyndi um leið sjálf hvað það var heimskulegt að setja hann ekki eðlilega aftur upp á vegg. Þegar allt kemur til alls er konan frjáls að því að horfa á sjálfa sig í spegli. Framhald á bls. 31. 2. tbf. VIKAN 25

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.