Vikan - 11.01.1968, Blaðsíða 43
■
PHIIIPS
PHILiPS
kæliskápar
Höfum fyrirliggjandi 5
stœrSir af hinum heims-
þekktu PHILIPS kæliskóp-
um.
137 L 4.9 cft.
170 L 6.1 cft.
200 L 7.2 cft.
275 L 9.8 cft.
305 L 10.9 cft.
Afborgunarskilmálar.
GjöriS svo vel aS líta inn.
kvöldi sextánda marz 1244 var eitt
forógnarmikið bál kynnt á sléttunni
neðan við kastalann. Tvö hundruð
og fimmtán Hinna Fullkomnu — all-
ir þeir sem iifað höfðu af umsátr-
ið — gengu fylktu liði inn í bálið
og kváðu sálma við raust. Þurfti
enginn á eftir þeim að reka. Enn
þann dag í dag heitir staður þessi
Brennuvöllur.
Meðan píslarvottar Hinna Full-
komnu dóu í logunum, renndu fjór-
ir menn sér niður eftir reipi, sem
hékk út af kastalamúrnum niður í
hyldýpið neðanundir. Flóttamenn
þessir voru fjórir trúbræður þeirra
sem eldinn urðu að þola; þeir hétu
Hugo, Amiel, Aicard og Clemens.
Þeir báru með sér þunga byrði —
fjársjóð kaþaranna.
Ekki var sjóður þessi af gulli eða
silfri; þessháttar dýrindi í eigu
Hinna Fullkomnu höfðu löngu verið
flutt til Usson-kastala við spænsku
landamærin. Fjársjóðurinn sem
flóttamennirnir höfðu með sér var
heilagur — en að öðru leyti vitum
við lítið um hann. En hitt er vitað
að hann var falinn í einhverjum
hellanna, sem eru hundruðum sam-
an umhverfis Montsegur.
Sumir nútíma guðfræðingar
halda því fram, að hinn dularfulli
fjársjóður kaþara hafi verið sjálfur
hinn helgi Grail-kaleikur, sem
Jesús og lærisveinar hans
drukku úr við Síðustu Kvöldmál-
tíðina og frægur er úr sögnunum
af Arthúr konungi og riddurum
hringborðsins. Oldum saman hafa
menn leitað kaleiksins en árangurs-
laust. Samkvæmt fornri sögn var
kaleikurinn geymdur í dularfullum
kastala, sem Montsalvatge var
kallaður, í umsjá hins riddaraleg-
asta allra riddara, Parsífals — sem
er hinn sami og Sir Percival í Art-
húrssögnunum.
Tveir sagnfræðingar, spænski
prófessorinn Pacheco og Þjóðverj-
inn Rahn, hafa önglað saman slatta
af staðreyndum, sem gætu hafa
getið af sér sögnina. Þeir álíta að
kaleikurinn helgi hafi borizt frá
Miðjarðarhafsbotnum til Spánar og
þaðan komizt í hendur kaþara. —
„Montsalvatge" sagnarinnar halda
þeir að sé í rauninni Montsegur og
Tranceval yngri sé fyrirmyndin að
Parsífal.
Sagnfræðingarnir hafa ýmislegt
fram að færa skoðun sinni til stuðn-
ings. í fyrsta lagi að sjálft orðið
„Grail" er í mállýskunni langued'oc,
þar sem það þýðir „bolli" eða
„gestaskál". í öðru lagi má lesa í
miðaldabókum að greifinn í Tólósu
hafi eignazt kaleikinn helga á
þrettándu öld og fengið hann Tran-
ceval í hendur. Og í þriðja lagi
halda annálaritarar miðalda því
fram að nafnið Parsífal merki ,,sá
sem rétt dæmir" — og í langued'oc
þýðir nafnið Tranceval nákvæmlega
hið sama.
Var það kaleikur kvöldmáltíðar-
innar síðustu, sem laumað var út
úr Montsegur á svartri nótt fyrir sjö
öldum? Ef til vill verður það aldrei
vitað með vissu. Hafi svo verið, þá
er kaleikurinn kannski ennþá á
þeim slóðum — falinn í einhverri
gjótu Pýreneafjalla. Hann er hinzta
dánargjöf fólks, sem var hrannmyrt
sökum þess að það afneitaði ekki
sannfæringu sinni.
☆
Galdraofsóknir
í Emmenthal
Framhald af bls. 20
þeirra eru vel þekktar bæði í Sviss
og annars staðar. Rafmagns fyrir
8- tw. VIKAN 43
L