Vikan


Vikan - 11.01.1968, Side 12

Vikan - 11.01.1968, Side 12
EFTIR EYRflNU Andrés Incðriðason Þessar myndir lýsa betur en nokkur orð hippatízkunni, eins og hún gerist nú. Stúlkan hefur málað fagurrauð hjörtu á kinnarnar og til þess að ekkert fari á milli mála hefur hún skrifað þar fyrir neðan orðið „love“. Piltur- inn (sem lítur út fyrir að vera áttrœtt gamal- menni í munderningunni) er í indverskum kyrtli með blómamynstri, og um hálsinn ber hann perlufestar. Að vísu vantar á hann bjölluna en hann bætir það upp með nellikk- um á víð og dreif um andlitið- Skegg er mik- ið í tízku síðan Bítlarnir tóku upp á slíkri rækt og dugar ekkert minna en slíkt sem ungi maðurinn ber. Þá eru gleraugun athygli verð. Þau varpa enn einum stoðum undir þá kenningu, að sagan endurtekur sig! Mfke & sfo iafte Mike Nesmith, trommuleikari The Monkees, er mikill bílaunnandi, og hann hefur hvorki meira né minna en sjö bíla í takinu. Sá bíll, sem hann hefur mestar mætur á, er brezkur af gerðinni Radford Mini. Þessi „mini“ bíll var smíðaður sérstaklega fyrir Mike og er sagður hinn dýrasti af þessari gerð, sem smíðaður hefur verið. Bíllinn kostaði 3.645 pund eða um hálf milljón ísl. króna, reiknað á nýja genginu! Ýmsum kann að þykja þetta mikið fé fyrir svo litla lús, en þess ber að gæta, að þessi gripur hefur sitt af hverju fram yfir hina venjulegu „mini“ bíla- I honum er i flest þægindi, sem unnt er að koma fyrir í svo litlum bíl en höfuðkostur bílsins í augum Mikes er sá, að gluggar eru úr svörtu gleri, sem aðeins sér í gegnum, þegar setið er í bílnum. Þeir, sem setjast inn í þetta merkilega farartæki, komast ekki hjá því, að reka augiin í skilti með orðunum „Reykingar bannað- ar“. Um þetta skilti segir Mike: „Það er ekki svo að skilja, að ég sé að amast við reyk- ingum yfirleitt, en þegar reykt er í bíl, fer reykurinn í augu bílstjórans, sezt utan í föt- in og askan fer út um allt gólf.“ Eins og gefur að skilja þarf Mike að eiga stóran bílskúr til að hýsa alla farkosti sína. Bílhýsi piltsins þykir taka öðrum slíkum fram, en mesta kátínu og undrun vekur hurð- in. Mike þarf ekki annað en segja „Love“ — og þá opnast hún! Erlendum hljómsveitum eða söngvurum, sem tekst að komast á blað á vinsældalistanum í Bretlandi gengur ekki alltaf sem bezt að fá atvinnuleyfi þar í landi til að geta komið fram á hljómleikum í því skyni að kynna sig fyrir brezkum aðdáendum. Um skeið átti ástralska hljómsveitin The Bee Gees í miklu stríði við brezk yfirvöld, þar sem tveimur liðsmanna hljóm- sveitarinnar var af einhverjum ástæðum neitað um atvinnuleyfi. Nú mun hafa rætzt úr þessum þrenging- um og Bee Gees og aðdáendur þeirra hafa tekið gleði sína á ný. Bandaríska söngkonan Felice Taylor hefur átt í sams konar stríði, en lag hennar „I feel love coming on“ er nú ofarlega á brezka vinsældalistanum- Hún hefur haldið sig í Þýzkalandi að undanförnu og hengt sig í þá von, að upp muni rofa á næstunni. — Felice er 19 ára gömul, ættuð frá Los Angeles. Hún hefur sungið inn á nokkrar plötur vestra, en lagið „I feel love coming on“ er hið fyrsta, sem kemst á vin- sældalista. Felice Taylor. Bee Gees — þeir hafa nú fengiö atvinnuleyfi í Bretlandi. 12 VIKAN 2- tbl-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.