Vikan


Vikan - 11.01.1968, Qupperneq 30

Vikan - 11.01.1968, Qupperneq 30
 KVEIKJARAR Vanti ykkur tækifærisgjöf þá munið Ronson. Ronson kveikjarar fyrir dömur og herra, fjölbreyttara úrval en nokkru sinni fyrr, einnig úrval af borðkveikjurum. Einkaumboð: I. GUÐMUNDSSON & CO. HF. Hverfisgata 89, Reykjavík. STJÖRNUSPÁ • JSb Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú hefur nýlega meðtekið gjöf, sem gerir þig mjög skuldbundinn gefanda. Þú hefur nýlega tekið ákvörðun sem varðar framtíð þína miklu. Heppni þína muntu sannreyna síðar í vikunni. & Vogarmerkið (24. september — 23. október): Verkefni þín hafa ekki uppörvandi eða þroskandi áhrif á þig. Það virðist sem þér sé nauðsynlegt að skipta um starf, ef þú sættir þig ekki betur við orð- inn hlut. Þú hittir kærkomna persónu á laugardag. c*mm Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí); Verkefni þín eru margskonar. í vikunni færðu þó eitt til viðbótar, sem mun eiga hug þinn allan. Þú hugsar gott tii glóðarinnar, þegar þú fréttir um áætlanir kunningja þinna. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú ert dálítið uggandi vegna eyðslusemi þinnar og liætl er við að þú verðir að leggja harðar að þér. Þú helur hepprýna með þér á miðvikudaginn, láttu þá f.il skarar skríða. || Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú undirbýrð af kappi verkefni sem þú þarft að hrinda í framkvæmd í vor. Þú færð góðan gest, og ails ekki tómhentan. Þú færð skorið úr spurningu sem hefur lengi ásótt þig. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú tekur að þér vinnu eftir kerfi, sem gefur lítið i aðra hönd, en þú ert staðráðinn í að hætta ekki. Vinkona þín hjálpar þér til að gera góða verziun. Happatala er sjö. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí); Reyndu að halda í fjármuni þína, þú þarft bráð- lega á talsverðum peningum að halda. Þroskaðu hæfileika þína.eins og þú hefur kost á, en vanræktu samt ekki skyldustörfin. — Þú lendir í fjölmenni. £ Sfeingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Minntú maka þinn á að standa skil á hlut, sem þið hafið iengi haft að láni. Kunningi þinn býður þér með sér á óvenjulegan stað. Nú er rétti tíminn að innheimta gamlar skuldir . Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Sökum þekkingar þinnar á vissu sviði geturðu vak- ið þægilega athygli á þér. Vinur þinn er báglega staddur, reyndu að sinna honum eitthvað. í>ú ert þátttakandi í svindli, sem fær skrýtinn endi. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar!-. Þú verður að hafa þig allan við, ef þú ætlar að hafa stjórn á því sem þú hefur tekið þér fyrir hendur. Þú verður sérstaklega spenntur á þriðjudaginn, þá færðu svar sem lengi hefur verið beðið eftir. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þú dvelur nokkurn tíma á stað, sem þér þykir mjög fróðlegur. Það er mikið um stuttar heimsóknir hjá þér. Þú verður að leita eftir hjálp til ættingja þinna. Þú færð orðsendingu, sem gerir þig óvissan. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þessi vika er öllum elskendum sérstaklega ánægju- rík. Láttu ekki peningamál eða aðrar áhyggjur þjaka þig, njóttu þess að vera til. Þú verður áreiðanlega undrandi um helgina. 30 VIKAN 2- «*•

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.