Vikan


Vikan - 11.01.1968, Page 40

Vikan - 11.01.1968, Page 40
■ Nýjar ger8ir af sjónvarpstækjum fró GRUNDIG Radiostifa Wœm oo Þersteios Laugavegi 72 — Símar 10259 og 15388 innar sem áróðursvopn í því skyni að sleikja sig upp við Þjóðverja, en þá þegar voru vopnabræðurnir fyrrverandi farnir að keppa um vináttu hinna marghötuðu óvina. Tóku nú áróðursmálgögn Rússa og að sjálfsögðu kommúnista um all- an heim að vekja athygli á loft- árásinni á Dresden sem hroða- legum stríðsglæp, sem hún auð- vitað var, og bentu á hana sem dæmi um illmennsku Vestur- veldanna almennt. Svo langt gekk hneykslun Sovétmanna á þessu stórvirki bandamanna sinna að þessir hundheiðnu bolsar létu hringja öllum kirkju- klukkum á hernámssvæði sínu stundvíslega klukkan tíu mín- útur yfir tíu þrettánda febrúar 1946, á ársafmæli árásarinnar. Vesturveldanna megin brá mönnum heldur ónotalega við klukknahljóminn og var grip- ið til þess ráðs að kenna Sovét- mönnum um illvirkið; var haft fyrir satt að árásin heföi verið gerð samkvæmt beiðni rúss- neskra hernaðaryfirvalda. Það er að líkindum lýgi; ekkert bendir til að Sovétmenn haíi haft neinn sérstakan áhuga á því að á Dresden yrði ráðizt úr lofti, hvað þá að þeir hafi mælzt til þess af bandamönnum sínum, í Bretlandi voru menn þá þeg- ar farnir að bera nokkurn kinn- roða vegna árásarinnar, sem nú var vitað að ekki hafði ein- ungis í framkvæmd orðið við- urstyggilegt fjöldamorð á varn- arlausu fólki og eyðing ómet- anlegra menningarverðmæta, heldur og gagnslaus með öllu. Sem fyrr hafði verið kunnugt var borgin að mestu þýðingarlaus hernaðarlega, enda er ekki vit- að að árásin hafi lamað við- námsþrótt Þjóðverja að því marki að stytta stríðið um einn dag, hvað þá meira. Eins og venjulega við slík tilfelli var nú farið að svipast um eftir hent- ugum blóraböggli og varð þá Sir Arthur Harris fyrir valinu. Sem ljóst má vera af framan- skráðu, fór því fjarri að flug- marskálkurinn ætti einn hlut að þeirri sumpart til- viljanakenndu atburðakeðju, sem leiddi til árásarinnar; með- al annarra, sem bera drjúgan hluta ábyrgðarinnar, má nefna þá Sir Charles Portal, formann flugherráðsins brezka, Sinclair flugmálaráðherra og sjálfan Sir Winston Churchill. Churchill er áberandi fáorður um Dresden í endurminningum sínum og sýndi viðleitni til að þvo hendur sín- ar af atburðinum, þótt hæpið sé að honum hafi lánazt það verk betur en Pílatusi forðum. En til- burðir hans og annarra til að hvítþvo æru sína dugðu þó til þess að sverta mannorð Harris- ar að vissu marki, enda var þessum fáláta stríðsgarpi fjarri skapi að reyna hið minnsta að 40 VIKAN 2. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.