Vikan - 25.01.1968, Qupperneq 20
ilim iiiinnimMiiiiijniTi n ijfii ■ ■ HP'nmm n u
IYÍT LIF MEDIYJU
HJABTfl?
Prófessor Christiaan Bernard, hjartaskurölæknirinn, sem varð heims-
frægur á einni nóttu. Þótt fyrsta tilraun hans hafi mistekizt, er hann
ekki af baki dottinn. Þegar þetta er ritað, er næsti sjúklingur hans,
Blaiberg, á góðum batavegi. Bernard er 44 ára gamall, kvæntur og á
tvö börn. Faðir hans var trúboði.
I>annis hófst hin sögulega tilraun: Líkami Denise Darvall var svcipaður sótthreins-
uðum dúk. Nokkrum mínútum siðar höfðu skurðlæknarnir opnað brjósthol hennar.
Þá var Denise þcgar látin, cn hjarta hennar sló enn. hrjátíu læknar og hjúkrunar-
konur tóku þátt í aðgcrðinni. Læknarnir vinna saman scm cinn maður, rétt eins
og sigurvcrk í klukku.
í nokkrar mínútur sló hjartað
í glerskál. Það hafði verið tengt
við hjarta-vél og tilheyrði því
engum. Hálfri stundu áður hafði
það slegið í brjósti 25 ára gam-
allar stúlku, Denise Darvall að
nafni. 55 ára gamall maður, Louis
Washkansky, var í dauðans greip-
um. Eina Hfsvon hans var hjarta
þessarar ungu stúlku. Hann lá nú
á skurðarborði í Groote-Schuur-
sjúkrahúsinu í Höfðaborg í Suð-
ur-Afríku. Fimm klukkustund-
um síðar hafði prófessor Christ-
iaan Bernard og starfstiði hans
tekizt að setja hjartað í Wash-
kansky. Fregnin barst eins og
eldur í sinu um allan heim. Hér
hafði merkur atburður gerzt. í
fyrsta sinn í sögu læknisfræðinn-
ar hafði tekizt að flytja hjarta
úr einum manni í annan.
Þessi atburður gerðist 2. des-
ember síðastliðinn. Washkansky
lifði aðgerðina af og leið eftir at-
vikum vel. Allur heimurinn
fylgdist síðan daglega með líðan
hans. Þegar hann sagði fyrstu
setninguna: „Ég er svangur",
urðu menn bjartsýnir um að að-
gerðin hefði heppnazt til fulln-
ustu. Hjarta Washkanskys var nú
farið að slá eðlilega og konu
hans var leyft að heimsækja
hann. Búizt var við, að hann
fengi að fara á fætur innan
skamms.
En á fjórtánda degi veiktist
hann heiftarlega af lungnabólgu.
Ekki tókst að ráða við lungna-
bólguna, þótt sjúklingnum væri
gefið mikið magn af fúkkalyfj-
um. Washkansky lézt aðfaranótt
21. desember.
Á blaðamannafundi lýsti pró-
fessor Christiaan Bernard því
yfir, að það hefðu verið lungun,
sem brugðust, en ekki hjartað.
Einnig sagði hann, að það hefði
flýtt fyrir dauða Washkanskys,
að hann hefði verið haldinn syk-
ursýki, sem gerði það að verk-
um, að mótstöðuafl hans var
minna.
20 VIKAN
4. tbl.