Vikan - 25.01.1968, Blaðsíða 28
í NÆSTA TÖLUBLAÐI VIKUNNAR HEFST BIRTING ÚRDRÁTTAR ÚR
ÞESSARI BÓK HINS KUNNA BANDARÍSKA RITHÖFUNDAR LEON UR-
IS, SEM VAKIÐ HEFUR GÍFURLEGA ATHYGLI OG FEIKNA UMTAL VÍÐA
UM HEIM. SAGAN ER AÐ VÍSU KÖLLUÐ SKÁLDSAGA, EN FJALLAR
UM SANNSÖGULEGA ATBURÐI OG SJÁLFUR HEFUR HÖFUNDUR
KALLAÐ HANA UPPLJÖSTRUN. HAFA FÁAR BÆKUR VERIÐ OFAR Á
BAUGI UPP Á SÍÐKASTIÐ.
Leon Uris er löngu þekkt-
ur fyrir að taka fyrir há-
pólitíska samtíðaratburði
og klæða þá skáldsögu-
búningi. Hann varð heims-
frægur er hann sendi frá
sér Exodus, sem fjallar um
flutning Gyðinga til Pal-
estínu og stofnun Israels-
ríkis. Kvikmynd sem gerð
var eftir þeirri sögu vakti
mikla athygli og var með-
al annars sýnd hérlendis.
Onnur kunn skáldsaga eft-
ir Uris er Herópið (Battle
Cry). Nú hefur hann sent
frá sér þriðja skáldverkið,
Topaz, og er efniviður
þess sóttur í hættulegustu
stundir mannkynssögunn-
ar fyrir nokkrum árum, er
Sovétmenn höfðu komið
fyrir eldflaugum á Kúbu
og minnstu munaði að
heiminum yrði hrundið út
í gereyðingarbál þriðju
heimsstyrjaldarinnar. Að-
alhetjur sögunnar eru
njósnarar stórveldanna
og fleiri aðila, en
líka koma þar fram per-
sónur, sem eru eða hafa til
skamms tíma verið ljóslif-
andi í stórpólitísku lífi
samtímans og allir ættu að
kannast við, þótt nöfnum
sé breytt. Enda fór hið
kunna tímarit Time ekki
dult með þá vissu sína að
de Gaulle Frakklandsfor-
seti væri ein söguhetjan.
V
28 VIKAN 4' tbl-