Vikan


Vikan - 25.01.1968, Page 37

Vikan - 25.01.1968, Page 37
TRABANT bifreiðir vöktu á síðastliðnu ári mikla athygli. Erlend blöð og tímarit hafa oft getið þeirra. FAMILIE JOURNAL skrifar um þá þann 7. nóvember, tölublað númer 45. TRABANT stendur sig vel. Arangur TRABANT bifreiða í mörgum kappökstrum hefur verið undra- verður. í 1000 vatna keppninni í Finnlandi komu TRABANTARNIR í mark 3—4—5 og 6. sæti. Þetta var glæsilegur árangur, þar sem ökumenn TRABANT bifreiðanna höfðu ekki tækifæri til að æfa sig fyrir keppnina. Vegalengd kappakstursins var 1.836 km og aðeins ca. 55% af þeim bifreiðum sem fóru af stað enduðu keppnina. Þess má geta að í þessari keppni tóku þátt bifreiðar af öllum stærðarflokkum. TRABANT er ávallt fyrirliggjandi. TRABANT er ávallt ódýrastur bæði í rekstri og innkaupi. TRABANT hefur meðmæli tryggingafélaga. TRABANT er allstaðar. Einkaumboð: TRABANTUMBOÐIÐ Ingvar Helgason Tryggvagötu 8 — Reykjavík. v í gólfinu. Ég óttaðist, að einhver leigjandinn heyrði það, færi á stúfana og héldi, að innbrots- þjófur væri á ferð. Kvöld nokkurt, þegar ég var í vinnunni og var að binda vör- ur á bílpall, varð reipi eftir á pallinum. Af einhverri ástæðu tók ég það og fór með það heim í herbergið mitt. Ég sat lengi á rúmfletinu og batt hnúta á það. Mér var einhver fróun í því. Þegar ég fékk kaupið mitt næst, var gulur seðill í umslag- inu. Á honum stóð með kurteis- legu orðalagi, að fyrirtækið ósk- aði ekki eftir að hafa mig leng- ur í þjónustu sinni. Nokkrum sinnum hafði verið kvartað yfir því, að of oft kæmi fyrir, að mér yrðu á mistök í starfi mínu. Ég hafði ekki skeytt því neinu. Ég hafði aðeins yppt öxlum. Svo undarlega brá við, að þessi uggvænlegu tíðindi höfðu engin áhrif á mig. Þvert á móti fannst mér eins og þungu fargi væri af mér létt. Það var eins og ákvörð- un, sem ég hafði lengi forðast að leiða hugann að, hefði verið tek- in fyrir mig. Það rigndi þetta kvöld. Ég gekk heim frá vinnu minni og hugsaði stöðugt um loftið. Ég var feginn að vera laus við hávað- ann og erilinn í vöruhúsinu. Mér fannst notalegt að hugsa til þeirrar kyrrðar og friðsældar, sem ríkti á loftinu. Þar var að vísu afar kalt, en ég lét það ekki á mig fá. Ég var tekinn að venj- ast kuldanum. Þetta kvöld sat ég fram yfir miðnætti á rúminu mínu og hnýtti reipið mitt. Síðan læddist ég fram á gang og klifraði upp á háaloft. Ég kveikti á perunni og sat lengi hreyfingarlaus á beygluðum þvottapotti. Þegar augu mín höfðu vanizt hálfrökkr- inu, sá ég greinilega járnkrók- inn yfir höfði mér. Ég furðaði mig á, hversu langan tíma það hafði tekið mig að skilja mikil- vægi hans. Hann var auðveld lausn á öllum vandamálum. Ég taldi mér trú um, að það væri með öllu tilgangslaust að halda baráttunni áfram. Ritstörf mín höfðu engan árangur borið. Mér hafði verið sagt upp vinnunni og ég hafði enga von um að fá ann- að starf. En verst af öllu var, að ég hafði ekki lengur neina löngun til að lifa. Starfsþrek mitt og bjartsýni höfðu einfaldlega fjarað út. Mér fannst hlægilegt að skrimta áfram í stöðugri fá- tækt og basli. Ég stóð á fætur og lagði af stað niður til þess að sækja reip- ið. Ég var næstum kominn að her- berginu mínu, þegar brakaði hátt í gólfinu. Dyr opnuðust og ó- frýnilegt andlit birtist. Sérhver dráttur þessa glottandi andlits lýsti tortryggni og efasemdum. Ég sá þetta andlit enn fyrir mér, þegar ég var kominn inn í herbergið mitt og hafði læst að mér. Ég fann til niðurlægingar og reiði. Mér var ljóst, að mér mundi aldrei takast að fara aft- ur upp á loftið þessa nótt. Var hvergi afdrep að finna í þessari bölvuðu veröld, þar sem einmana sál gat gefið sig á vald gleymsku og kyrrð? Reiðin ólgaði í brjósti mér. Ég bölvaði þessum viðurstyggilega náunga, sem hafði eyðilagt áform mitt. Ég sat lengi á rúminu, en datt loks út af örmagna af þreytu og smán — og steinsofnaði. Ég fór ekki út úr herberginu allan næsta dag. Ég borðaði ekk- ert, nema fáeinar kexkökur og vatn. Ég beið með óþreyju eftir nóttinni. Loks tók að dimma og kyrrð færðist yfir húsið. Klukkutíma eftir klukkutíma sat ég hreyf- ingarlaus og beið. Loks var kom- ið miðnætti. Myrkur og þögn höfðu breitt mjúka vængi sína yfir þetta fátæklega hús. Ég stóð á fætur og læddist fram á gang- inn með reipið í hendinni Þegar ég nálgaðist stigann upp á háaloft, tók að braka í gólfinu, ekki hátt að vísu, en nóg til þess, að einhver gat heyrt það. Mér varð hugsað til ófara minna nótt- ina áður og ofsabræði náði tök- um á mér. Ég ætlaði svo sannar- lega ekki að láta trufla mig í annað sinn! Mér varð litið niður á skóna mína. Þá var eins og andinn kæmi loks yfir mig. Ég beygði mig niður og tók að leysa reim- arnar. Það gaf auga leið, að betra var að læðast á sokkaleistunum. Auk þess þurfti ég ekki á skón- um að halda framar. Ég hafði læðzt fáein skref á sokkaleistunum, þegar undarlegt atvik gerðist. Því verður í raun- inni ekki með orðum lýst. Það var engu líkara en ég vaknaði allt í einu af dásvefni. í einu vetfangi tókst mér að losna úr greipum annarlegra afla, sem náð höfðu heljartökum á huga mínum. Ég starði með skelfingu á reip- ið í hendi minni. Kaldur sviti spratt fram á enni mínu. Ég tók að hríðskjálfa. Ég hljóp í hend- ingskasti aftur inn í herbergið mitt. Hvað hafði komið fyrir mig? Ég var ungur og hraustur og langt líf með ótal tækifærum beið mín. Það var engin ástæða til að láta hugfallast, þótt ég hefði misst illa launaða erfiðis- vinnu, sem ég hafði ímugust á. Og þótt mér hefði ekki tekirt að selja neina af sögum mínum, hafði ég fengið birt eftir mig eitt kvæði! Ég gat fengið annað og 4. tbi. VIKAN 37

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.