Vikan


Vikan - 22.02.1968, Blaðsíða 2

Vikan - 22.02.1968, Blaðsíða 2
VOKI BILSTJORAII, FLUTMIIVOAFYIUKTÆKI, \YTT FRÁ VAUXIIALL BEHEORDKM Vélin er ný 468 cubic tommu diese!. vél. Burðarþol á framöxul er 6622 kg og á afturöxul 10206 kg. Fullkomið, tvöfalt kerfi er á lofthemlum. Bíllinn er með innbyggðu vökvastýri og fimm gíra samhæfðum gírkassa. Burðarþol á grind er tæp 12 tonn og hlassþunginn tæp 10 tonn, með öðrum orðum fullkomin nýting. Verðið á bílnum og á varahlutum ásamt kostnaðarverði á f!utningstonni mælir allt með því að endurnýja með BEDFORD. Þetta veldur einnig því að BEDFORD ER MEST SELDI VÖRUBÍLLINN Á ÍSLANDI EINS OG í SVO MÖRGUM LÖNDUM ÖÐRUM. Nánari upplýsingar um bessa stærð og aðrar af Bedford vörubílum gefur: VAUXHALL-BEDFORD UMBOÐIÐ Ármúlu 3, sími 3it 900. Eru ráðunautar rík- isstjórnarinnar starfi sínu vaxnir? Þetta er spurningin, sem flest- ir valta fyrir sér þessa síðustu mánuði. Færustu fjármála- séríræðingar okkar höfðu ný- verið setið í S.-Ameríku al- heimsfund alheimsbanka- og fjármálamanna, þegar fregnin barts um gengisfellingu Breta, öllum á óvart, sérfræðingum okkar líka. Það tók þá heila viku að segja til um. hve mik- ið ætti að fella gengið hér, en Danir til dæmis voru svo með á nótunum, að þeir gátu fellt gengi sitt sama dag. Það tók þá viku að á- kveða hve mikið gengið skyldi fellt, og var það meira en annars staðar. Það sögðu þeir til þess að lagfæra allar skekkjur, úr því verið var að hrófia við genginu hvort sem var. Með þessari ríflegu gengisfellingu sögðu þeir bág- um hag sjávarútvegs, land- búnaðar og meira að segja iðnaðar borgið að minnsta kosti fyrst um sinn, en lands- menn allir nytu góðs af henni með lækkuðum tollum og meiri og betri atvinnu. - I nokkrar vikur sökktu sérfræðingarnir sér svo niður í þessar hagsbætur, og þegar þing kom saman eftir jólafrí hafði frumvarp verið samið, en það leit aldrei dagsins ljós. Því það vantaði 2—300 millj- ónir á að endarnir næðu sam- an, þrátt fyrir vel undirbúna gengisfellingu. í nær þrjá mánuði hefur verzlun með hátollavöru nær stöðvazt og þegar þetta er rit- að sér ekki fyrir endann. Væri ekki til athugunar fyrir stjórnmálaflokkana, að koma sér upp ráðgefandi nefndum manna innan sinna vébanda, sem síarfa að veiga- mestu greinum atvinnumála og þekkja þau því af raun? Með því móti gætu stjórn- málamennirnir verið með á nólunum og brugðizt við á raunhæfan hátt, jafnóðum og vandinn steðjar að. Sérfræð- ingana mætti þá hafa lil að mata rafreikna á upplýsingum ráðgjafanefndanna. S. H. V_________________________^

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.