Vikan - 22.02.1968, Qupperneq 3
A
K
VIKil BROS
— Hlustaðu bara á hvað
fréttaritarinn segir u;m okkur!
Ipessari viku
HIN VOTA
SÍÐAN SÍÐAST
Bls. 4
Bls. 6
Bls. 10
Bls. 12
Bls. 14
Bls. 16
Bls. 18
Bls. 20
Bls. 22
Bls. 32
Bls. 33
Bls. 34
BIs. 36
Bls. 35, 38, 42
Bls. 44
VÍSUR VIKUNNAR:
Flesta kúnst þótt fjöldinn nemi Fleslir lítið viðnám veita
fræðin helgu virðast týnd vígaferli óttast slík
minni náð og miskunnsemi hörku jafnt og brögðum beita
mönnum alltaf voru sýnd. blaðamenn í Keflavík.
Margri byggð er búinn grandi
barizt fast í Viet Nam
fljúga yfir frónsku landi
fréttamenn í vígaham.
Skýtur mörgum skýja klakka
skjótt á loft um heiminn enn
víða yfir veiði hlakka
vökuþreyttir blaðamenn.
ÞÁ SAGÐÍ IiANN...
Kunnur íslenzkur „playboy“ tók leigubíl utan við
skemmtistað fyrir sig og dömuna. Hann lét bílinn aka
að ákveðnu húsi, en er þangað kom, fóru hjúin ekki
út, heldur héldu þau áfram kossum sínum, faðmlögum
og hvískri í aftursætinu. Bílstjóranum eymdist biðin,
og um síðir sagði hann: — Afsakið — væri ykkur sarna
þótt ég slcryppi inn í Voga að ná í mína dömu?
FORSÍÐAN:
Þátturinn Vikan og heimilið er sex síður í þessu blaði. f hon-
um er að þessu sinni fjallað um mál, sem allar konur þurfa að
kunna góð skil á: Það er sagt frá þremur gerðum af pillum til
að hafa hemil á barneignum. Sjá blaðsíðu 44—49.
VIKAN — ÚTGEFANDI: HILMIR IIF.
Ritstjóri: Sigurður Hreiðar. Meðritstjóri: Gylfi Gröndal. Blaða-
maður: Dagur Þorleifsson. Útlitsteikning: Snorri Friðriksson.
Dreifing: Óskar Karlsson. Augtýsingastjóri: Sigríður Þorvalds-
dóttir.
Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33.
Símar 35320 — 35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 35,oo.
Áskriftarverð er kr. 470,oo ársþriðjungslega, greiðist fyrirfram.
Prentun og myndamót: Hilmir h.f.
INJESTII
Næsta blað kemur út á afar
merkilegum degi — hlaupárs-
degi, 29. febrúar. Hlaupárs-
dagurinn er eins og kunnugt
er til orðinn til þess að rétta
af ofurlitla skekkju í tímatali
okkar. Árið gengur ekki upp
með 365 dögum, en skekkjan
réttist sé einum degi smeygt
inn fjórða hverl ár. Það helzta
sem erfðavenjur hafa lagt á
þennan viðaukadag fjórða
hvert ár, eru þau lög, að þann
dag megi kona biðja sér
manns, án þess að bíða við
það álitshnekki. Við gerðum
snögga skoðanakönnun gegn-
um síma um það, hvort konur
notuðu sér þessa heimild. Við
fengum nokkur stuttaraleg
svör og eitt langt og ýtarlegt
og eina bónorðssögu karl-
manns að auki.
Ekki verður ófeigum í hel
komið er sameiginlegt heiti
á fimm ævintýralegum frá-
sögnum, sem birtast í næsta
blaði. Þær segja allar frá her-
mönnum, sem börðust í heims-
styrjöldinni síðari og sluppu
lifandi úr þeim hildarleik á
yfirnáttúrlegan hátt. — Allir
sýndu þeir mikla dirfsku og
drýgðu hetjudáðir, sem enn
eru í minnum hafðar.
Þá viljum við minna á
fimmta hluta bókarinnar Tó-
paz eftir Leon Uris og síðast
en ekki sízt kynnum við
væntanlega Fegurðarsam-
keppni unga fólksins, sem
Vikan og Karnabær gangast
fyrir. Keppni þessi fór fram
í fyrsta sinn í fyrra og þótti
takast einstaklega vel.
8. tbi. VIKAN 3