Vikan


Vikan - 22.02.1968, Síða 10

Vikan - 22.02.1968, Síða 10
Hann býr vestur í bæ og þeg- ar ég spurði, hvort hann gæti ekki sagt mér eitthvað skemmti- legt af langri ævi, svaraði hann: — Ég man þó altént tvo veðra- vetur, 1906 og 1918. — Og kannski sitthvað fleira, sagði ég. — Það veit ég nú ekki, sagði hann, — en illu er bezt aflokið og komdu á morgun. Og ég kom. Það var hraglanda rigning ofan á snjókomu og skreipt á götunum. Inn-i var þessi drungalega dumbungsbirta vetr- arins, ró aldurs og neftóbaks. Konráð Jónsson bauð mér til sæt- is, settist sjálfur í húsbóndastól- inn og fékk sér í nefið. — Ég hef verið að drepast í meira en ár, sagði hann. — Það er í blóðinu, blóðstífla. Hef ekk- ert unnið siðan. — Þú bjóat í Vatnsdalnum, var ekki svo? — Jú, ég bjó í Gilhaga. Það er fremsti bær að vestanverðunni, eiginlega uppi á heiði, má segja. Það er svona klukkutíma gangur frá Haukagili, sem er næsti bær. Þetta er afskekkt, og ég flutti að nokkru leyli vegna þess, að konan var orðin leið á að vera þar. Ég var lítið heima oft á tíðum. — Þú varst grenjaskytta? — Já, ég dundaði við það í tíu ár. Mest á vorin, en svo var ég að asnast til að liggja úti að vetrinum. Það var spennandi, sér- staklega á vorin, en gamanið fór af að vetrinum, þegar komu frost og hríðar. — Var mikið um tófu þarna? — Já, töluvert, og það er eins og henni fjölgaði, og hafi fjölgað, eftir að ég var nú farinn. Sá sem tók við af mér, var afbragðs grenjaskytta, en hann er nú far- inn líka. Ég vissi ekki, hvort hann fór á nokkurt greni í vor. — Taka þá ekki ungu menn- irnir við? — Jú, ég held það. Þeir eru nógir þama, svo sem. Ég held, að sonur hans hafi verið með honum í fyrra. En karlinn var úrvals skytta, honum er bara farið að daprast sjón svo mikið. — Áður hafði ég unnið við refa- hirðingu hjá Sverri í Hvammi í Norðurárdal, svo það má segja, að ég hafi farið frá því að rækta refi til að drepa þá. — Var refaræktin nokkuð arð- bær? — Það var nú svona upp og og ofan. Ég kom að Hvammi um vor, og þá voru nú gotnar allar tæfumar, ég man ekki hvað þær voru margar, eitthvað ellefu eða tólf, minnir mig, en yrðlingarn- ir voru fjórir. Hitt hafði drep- izt allt saman. Hann sagði mér, hann Sverrir heitinn, að þetta hefði verið svona undanfarin ár. Svo það var langur vegur frá, 10 VIKAN 8-tbl-

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.