Vikan - 22.02.1968, Side 17
Hér cr trymbillinn í hljómsvcitinni,
Sven Svárd, hcldur bctur vígaleg-ur!
Bang! segir Sven Oloí Petterson, um
leið og hann tekur í gikkinn. Og
hann missir sannarlcga ekki marks!
>>
LÍF i TUSKUNUM
Hverjir skyldu þessir vígalegu náungar vera? Kúrckar
í villta vestrinu? Nei, síður en svo! Þetta eru sænska
hljómsveitin Sven Ingvars, og myndin er úr nýju kvik-
myndinni þeirra „Under ditt parasoll". Myndin var tek-
in í Júgóslavíu, og þeir félagarnir leika skúrka, sem gera
talsverðan usla í Desperato City. Myndin er látin gerast
um síðustu atdamót, og auðvitað er rómantík í spilinu,
þótt ekki sjáist neinn vottur þess á þessum myndum. —-
Sven Erik Magnusson er höfuðpaurinn í myndinni, og
á þessari mynd sjáum við hann fyrir miðju.
r----------------------->
ÞEIM ER SPÁÐ VINSÆLDUM
Sú hljómsveit, sem spáð er að muni láta einna mest að sér kveða á
árinu 1968, heitir „The Herd“. Fyrsta platan, sem hljómsveitin sendi
frá sér, með laginu „I can fly“ hlaut fremur misjafna dóma og varð
ekki til að auka hróður hennar, en skömmu fyi-ir jól kom lagið „From
the underworld“, og það komst á vinsældalistann. Sömu sögu er að
segja um nýjasta lagið þeirra, sem heitir „Faradise lost“. Piltamir eru
fremur ungir að árum. Höfuðpaurinn, Peter Framton, er aðeins 17 ára.
Og allir þykja þeir hafa útlitið með sér, sem er auðvitað ekki þýðingar-
lítið atriði í þessu endalausa kapphlaupi um að öðlast hylli fjöldans.
Peter Framton.
Hljómsveít Ingimars Eydal
I*cssi skcmmtilcga mynd cr af hljómsvcit Ingimars Eydal á
Akureyri. Myndina cr að finna á nokkuð sérstæðu almanaki,
scm nýlcga hefur verið gefið út — og að auki myndir af XI
öðrum vinsælum hljómsvcitum. Þarna geta sem sagt allir
fundið mynd af eftirlætis-hljómsveitinni sinni'. Hljómsveit
Ingimars Eydal leikur sem kunnugt er í Sjálfstæðishúsinu á
Akureyri, og þar hefur heldur en ekki verið glatt á hjalla að
undanförnu. Söngleikurinn „Allra meina bót“ hefur verið
sýndur þar við hinar ágætustu undirtektir enda kærkomin til-
breyting í bæjarlífinu. Hclena og Þorvaldur fara með veiga-
mikil hlutvcrk í lciknum og gera þcim liin ágætustu skil.
8. tbi. vijýAN 17