Vikan


Vikan - 22.02.1968, Side 19

Vikan - 22.02.1968, Side 19
bauga undir augunum. Hún var ekki smásmuguleg lengur. Auö- vitað fann hún til sektar. En meðfram var það ánægja og full- nægja, sterkara en sektin. Þau ætluðu að giftast. Þau vissu það kannske ekki, en ég vissi það. Þér getið verið fullviss um að hún kveið fyrir því, en þau gerðu hvort annað hamingjusamt. Hún var í þann veginn að hafa skipti á manni og dreng. — Nile læknir, leit hún út fyr- ir að vera sérstaklega óörugg síðustu vikumar? Nile settist á borðshornið. Hann leit fýlulega á Brecken- ridge. — Þér eruð enn við sama heygarðshornið! — Þér vékuð yður undan í fyrra skiptið, er ég spurði um þetta. — Allt í lagi. Hún hafði áhyggjur af einhverju. En and- skotakornið að hún hefði sjálfs- morð í huga. — Getið þér getið yður nokk- urs til? — Ég hef komið með nokkr- ar tilgátur. Hún var ekki slæm á taugum. Hún var heilbrigð og stöðug. Hraust eins og hross. Peningar koma ekki við sögu. Skip hafði ávaxtað fé hennar einhvernveginn þannig, að hún gat sent heim peninga til að standast straum af sjúkrakostn- aði móður sinnar. Kannske Phelps hafi eitthvað verið að kvabba í henni, en ég held að það hafi ekki skipt miklu máli. Hún hafði afskrifað hann. Það kemur ekki til mála að Skip hafi haft aðra konu. Það er aðeins ein tilgáta eftir. Ef til vill tignaði hún Skip einum of mikið og hef- ur svo komizt að of miklu um hann. Skip byrjaði með ekkert og hann eignaðist mikið. Hann hef- ur verið ósvífinn, slóttugur og miskunnarlaus. Hann hefur stig- ið ofan á þá sem voru fyrir hon- um. Hann hefur stytt sér ýmsar leiðir hér og þar. Sumir segja að hann sé óheiðarlegur. Aðrir segja að hann fari bara mjög nálægt lögunum. Hann notar peningana og hefur stjórnmála- mennina í vasanum. Kona eins og Lucille myndi áreiðanlega vilja að maður hennar væri heið- arlegur. Kannske hún hafi kom- izt að því hve viðsjárverður Skip Kimberton getur verið. Það hefði valdið henni áhyggjum, en hún hefði ekki drepið sig út af því. — Né heldur drepið sig á þennan hátt. - Ég er enginn sérfræðingur í sjálfsmorðum, Breckenridge, en ég hef þá hugmynd að góðir sundmenn drekki sér ekki. Hins- vegar hefur verið iðravírus að ganga hér. Kaldar uppsprettur liggja út í vatnið. Tilgáta mín er sú að hún hafi synt inn í kaldan straum og fengið innvortis ltrampa, sem hafi kreppt hana eða kannske valdið henni svo mikilli þjáningu að það hafi liðið yfir hana. Það er alveg sama hve snjall sundmaður á í hlut, það ætti enginn að synda einn. — Kannske væri ég betur staddur ef það væri klásúla varðandi morð líka, sagði Brec- kenridge kæruleysislega. — Það væri miklu meira vit í því en sjálfsmorði. — Er það? — Hvaða frekja er þetta, drengur? Ég var bara að segja að sjálfsmorð sé svo ólíklegt að allt annað sé líklegra. En and- skotakornið, hverjir ættu að vilja drepa Lucille? Breckenridge dreypti á glas- inu sínu og brosti vingjarnlega. — Sjáum nú til. Phelps drap hana, af því hún vildi ekki koma aftur til hans. Skip Kimberton drap hana, af því að hún komst að því að hann var óheiðarleg- ur, og ætlaði að koma upp um hann, eða einhver kona sem ótt- aðist að hún snéri aftur til Phelps, eða einhver önnur kona sem vildi fá Skip aftur, eða ein- hver ræfill, sem átti leið hjá. Neil læknir hristi höfuðið með aðdáunarsvip. — Þér eruð fár- veikur af ímyndunarafli, Breck- enridge. — Þetta er leikur, sem allir geta leikið. — Auðvitað. Ég drap hana, vegna þess að hún ætlaði að kæra mig fyrir læknasamband- inu fyrir að ég misnotaði eitur- lyf. Hvað þá konan sem leigði henni, til refsingar fyrir sið- ferðisbrot í húsinu. Hann snögg- þagnaði. — Þetta er ekki skop- legt. Hún er dáin og ég sakna hennar. — Fyrirgefið. Rannsökuðuð þér líkið? — Nei. Það var Bert Dell. Hann er lögreglulæknirinn. Hann skoðaði lungun og gerði nauð- synlegar efnagreiningar. Þetta var drukkmm. Á því leikur ekki minnsti vafi. Verðið þér að fara víða og spyrja margra þessara fáránlegu og barnalegu spurn- inga? — Fyrirtækið heimtar ná- kvæmni, læknir. — Farið varlega að Skip. Hann gæti reynt að kasta yður út um gluggann. — Það hefur verið reynt áður. — Skip gæti tekizt það. En eftir útliti yðar að dæma gæti það tekið hann lengri tíma en hann myndi reikna með. Þið getið þá báðir komið til mín á eftir og ég skal dytta að ykkur. En hvemig sem það fer, skulið þér koma aftur til mín einhvern daginn og segja mér hvernig yð- ur gengur. Þér hafið ekki kallað mið doksa og ekki beðið um ókeypis læknisráð, svo þér eruð velkominn til mín um viskíleyt- ið á hverjum degi. Það var næstum orðið dimmt, þegar hann sótti Barböru Horne. Augu hennar vom þrútin og rauð. Þegar þau óku burt frá mótelinu í bílaleigubílnum hans, spurði hann hana hvort hún hefði blundað. Hún virtist eitt- hvað miður sín. — Ofurlítið. Og svo vaknaði ég með það í huganum að ég þyrfti endilega að segja Lucille svolítið og allt í einu fann ég, í fyrsta sinn, að ég get aldrei sætt mig við neitt framar. — Þannig gerist það. Það kemur, þegar maður á ekki von á því. Smámunir og svo virðist það óraunverulegt aftur. Það kemur og fer og eftir nokkra stund verður það minna og sárs- aukalausara í hvert sinn. — Þú hefur misst vini — sem stóðu þér nærri. — Eldri bróður. í stríðinu. Hann var stórkostlegur. Ég reyndi alltaf að gera eins og hann og fá hann til að hrósa mér. Það var fyrir langa löngu, en jafnvel enn þann dag í dag, þegar ég geri eitthvað vel, er eitthvað innra með mér sem segir: — Hvernig lízt þér á þetta, Jói? Það er eins og ég sé enn að leita að viðurkenningu hans. Og ég missti konu, en ekki á sama hátt. Ég elskaði hana og við eyddum nokkrum árum við að reyna að sannfæra hvort annað um að hún elskaði mig, en hún var svo fágæt, dásamleg, dýr- mæt og sérstök að hún gat ekki hætt að elska og dást að sjálfri sér. Hún er gift Texana núna og mér skilst að þau eigi tvö eða þrjú börn. Þar er hún í réttu umhverfi. Texaninn á búgarð, sem hann notar til að sýna þeim sem hann vill slá sig til riddara fyrir og hina öfundsverðu Janey. Þegar þau ferðast eitthvað fara þau fljúgandi og þjónustustúlk- an og hárgreiðslumeistarinn fara með. Þau hafa tekið sér fyrir hendur að dást bæði að Janey. Hún mátti ekki sóa sér á venju- lega lögregluþjón og foreldrar hennar voru iðnir við að segja henni það. Þegar hún var lítil létu þau hana taka tima í öllu, öllu nema því hvernig hún ætti að elska aðra en sjálfa sig. — Ennþá gramur? — Ofurlítið, kannske. Hann fann litla veitingastofu í borgarkorni, tuttugu mílur frá Portúgal. Meðan þau sátu á barnum yfir glösum fann hann sér til undrunar að hann var farinn að dást að henni. Þegar þau hittust fyrst hafði honum fundist hún vera með stöðugan ólundarsvip, einskonar eilífðar- fýlu. En nú fannst honum að munnur hennar og litlu hrukk- urnar milli augnanna benda meira til þess að hún væri ákveðin og þolin og þar að auki töluvert útsjónarsöm. Hún hafði sagt að Lucille hefði verið fallegri systirin. í fyrstu fannst honum Barbara hvorki fögur né ófögur, en af þeirri gerðinni sem vekur engar hvatir. En nú fannst honum hún meira aðlaðandi. Hár hennar var gljábrúnt og vottaði fyrir rauðum glampa í því, ennið hátt, augun grágræn, andlitið fremur á langveginn, þó ávalt, ofurlítið þrýstið, var- irnar mjúkar, vel lagaðar og kyrrlátlegar. Hún var fremur stór og limalöng, ef til vill í Framhald á bls. 31. 8. tbi. VIKAN 19

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.