Vikan - 22.02.1968, Side 22
ARBLOMA
OG BYSSU
STINGJA
KONSTANTÍN OG BYLTINGIN
Herforingjamir í Grikklandi steyptu stjórninni og tóku hana
og Konstantín Grikkjakonung í sínar hendur. Konstantín var
gagnrýndur harðlega, enda vissi enginn fyrir víst hvar hann
stóö. Seinna kom hann til Bandaríkjanna þar sem hann bað
Bandaríkjamenn að vera þolinmóða, með'an hann væri að koma
á lýðræði aftur í Grikklandi. Svo gerði hann gagnbyltingu og
flúði til Italíu.
V___________________
EKKI FÆRRI
De Gaulle vakti svo sann-
arlega næga athygfi á sér.
Hann beitti neitunarvaldi
til að útiloka Breta frá
Efnahagsbandalaginu, því
hann vill ekki búa við sam-
keppni þeirra á því sviði.
Hann fór líka til Kanada
og heimtaði þar frjálst Que-
bec þótt ekki væri annað
vitað en þar gilti fullt
frelsi. Og þegar Frakkar
náðu því marki að verða 50
milljónir talsins, hélt hann
50 milljónasta baminu
mikla gleði og sagði þá, að
Frakkar mættu ekki vera
manni færri en 100 millj-
ónir, ef vel ætti að fara. —
HUGSUN MAOS í OXINNI
Uppþot urðu við kínverska sendiráðið í London. Hóp-
ur lögregluþjóna var sendur á staðinn, en þar reyndu
kínverskir að koma boðskap Maos inn í hausana á
þeim með öxi, sjálfsagt samkvæmt hugsunum Maos.
Lögreglan bjargaðist.
LEIKKONAN VARÐ FRELSISHETJA
Melina Mercouri skipti um hlutverk. Áður var hún aðeins
þekkt og vinsæl kvikmyndaleikkona, árið 1967 varð hún að
frelsishetju Grikklands með þeim afleiðingum að hún var svift
grískum ríkisborgararétti. Nú er liún gyðja þeirra Grykkja,
sem eru andvígir herforingjastjóminni.