Vikan


Vikan - 09.05.1968, Qupperneq 26

Vikan - 09.05.1968, Qupperneq 26
B H B 1 I eru iú upphafsmenn þessarar tón- listar og fyrirmynd allra hinna. Kannski hef ég aðlagazt bítlamús- ikinni meS tímanum. Ég mundi segja, að 30% af henni væri gott, en meiriparturinn lélegur. Er ekki þreytandi aS spila fyrir dansi kvöld eftir kvöld? — Jú, það getur orðið þreytandi til lengdar. Þess vegna hafa sjón- varpsþættirnir verið skemmtileg til- breyting. í vor á ég 20 ára stúdents- afmæli, en einnig 20 ára afmæli sem hljóðfæraleikari. Þegar ég út- skrifaðist fannst mér 20 ára stúdent- arnir alveg komnir á grafarbakk- ann. Nú hefur viðhorfið að sjálf- sögðu breytzt í þeim efnum. En ég er búinn að spila nokkuð lengi, það er satt. Og það er orðið nokkuð langt sfðan mér fannst ég vera orðinn dauðleiður á næturvinnunni. En síðan ég yngdi hljómsveitina upp; fékk unga og fjöruga hljóð- færaleikara til liðs við mig, — þá leiðist mér ekki lengur. Og ég held, að ég hafi aldrei verið með betri hljómsveit en nú. — Og næturvinnan hefur líka sín- ar björtu hliðar, segir Svanhildur. Það getur oft verið gaman að skoða fólkið. Auðvitað er fyrst og fremst fylgzt með okkur, en við erum líka að fylgjast með. Við tökum eftir klæðnaðinum, sem oft er ærið skrautlegur, sérstaklega hjá unga fólkinu. Og það má sjá heilar sög- ur á hverju kvöldi: Hjónin verða ósátt; hann dansar við aðra og hún við annan; síðan sættast þau f lokin og allt fellur í Ijúfa löð f elskulegum vangadansi. Og þannig höldum við áfram að spjalla um heima og geima yfir kaffibolla. Það er mánudagur, og Ólafur Gaukur og Svanhildur eiga frí í kvöld. Þau ætla að horfa á sjónvarpið. Mánudagskvöldin eru oft einu fríkvöld þeirra í vikunni. Við spyrjum að lokum: — Hvað ætlið þið að gera f sum- ar? — Við hættum að spila f Lídó núna í maf. í sumar ætlum við að ferðast um landið, bæði til að halda dansleiki og einnig sjálfstæðar skemmtanir, sem byggðar verða á atriðum úr sjónvarpsþáttunum o. fl. Svavar Gests hefur slegizt í hóp með okkur, svo að við getum flagg- að með tvær skrautfjaðrir: Hér gala gaukar og Út og suður. . . ☆ LJÓSMYNDIR: SJÓNVARPIÐ SIGURLIÐI GUÐMUNDSSON „Hann bað mín um daginn hann Bjössi á Hól" er ævagamalt lag, sem hljómsveitin lék í sjón- varpsþætti sínum. Lagið kemur út á hljómplötu um þessar mundir. Hljómsveit Ólafs Gauks og Svanhildur í söngleiknum „Skrallið í Skötuvík": „Hún Lína kokkur er laglegasta hnáta með lokkandi augu — þaS allir sjá . . ." Upptaka í sjónvarpssal: Ólafur Gaukur hvílir sigi milíi atriSa meS h|.ndritið í höndunum. Allir í hljómsveitinni taka þátt í að túlka lagiS „Sabotak". Þetta lag er úr þættinum, sem sýndur var í SvíþjóS fyrir skemmstu. „Það verður ball i kvöld". Kapteinn- inn og Lína kokkur í „Skötuvíkinni": „Þú ferð nú samt með, ef ég bið þig eins vel og ég get . . ." 26 VIKAN 18-tbl' Rúnar Gunnarsson og Svanhildur: „Ég er svo skotin, skotin, skotin, skotin í þér . . . ." 18. tbl. VIKAN 27

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.