Vikan - 09.05.1968, Qupperneq 32
Ronson
EINKAUMBOÐ:
I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F., REYKJAVÍK
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Kunningi þinn sýnir á sér þreytumerki, reyndu að
komast að hvað veidur þeirri breytingu. Góðviljað-
ur ættingi gerir þér tilboð, sem setur þig í mikinn
vanda, en að líkindum hentar þér það ekki.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Vikan verður róleg, en síðla vikunnar ferðu á fund
sem verður einstaklega líflegur. Þú verður að sýna
yngri kynslóðinni meiri þolinmæði og miðaðu ekki
ailt við sjálfan þig.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Þér til undrunar verðurðu fyrir ósanngjarnri af-
stöðu frá vinnuveitendum þínum. — Innan tíðar
kemstu að leyndarmáli sem gerir þig óttasleginn.
Hafðu ekki of náin samskipti við vinnufélaga þína.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Þú hefur verið önnum kafinn undanfarið og ekki
gefið þér tíma til að sinna neinum einkamálum.
Nú aftur á móti bregður svo við að þú verður að
taka þátt í ýmsu sem þú hefur vanrækt lengi.
Vogarmerkið (24. september — 23. október)
Ferðalag, sem þú varst þátttakandi í fyrir nokkru,
gefur þér talsverða möguleika. Lífið leikur í lyndi
og þótt smávegis öldugangur sé, verður þér ánægja
að sigrast á honum. Þú færð erfiða gesti.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Áætlanir þínar ættu að vera einkamál fyrst um sinn.
Líklegt er að þú fáir að spreyta þig á verkefni sem
á einhvern hátt krefst sérmenntunar þinnar. Gættu
eigna þinna vel og lánaðu þær ekki út I bláinn.
Bogamannsmerkið (23. nóv. — 21. desember):
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ógúst):
Verk sem þú hefur unnið á eigin spýtur vekur
mikla athygli. Vinur þinn kynnir fyrir þér persónu
sem á eftir að verða góður félagi þinn. Vertu ekki
of fljótfær, geymdu skoðanir þínar í lengstu lög.
Meyjarmerkið (24. ógúst — 23. september):
Ýmislegt virðist vera á móti þér, en þó ekki eins
stórkostlegt og þú heldur. Mundu að hálfnað er haf-
ið verk og þegar þú sýnir að þér er full alvara
breytist margt þér i vil. Þú færð merkilegar fréttir.
Þú átt ekki margra kosta völ í ákveðnu máli og
enginn er góður. Þú ferð nokkuð geyst í kynnum
þínum við ákveðna persónuu og tapar á því frem-
ur en hitt. Vertu ræktarlegri í garð fjölskyldunnar.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Ef þér tekst að tefja framgang ákveðinna mála, get-
ur verið að þú sleppir skaðlaus. Þú þarft á mikilli
iipurð og tillitssemi að halda. Reyndu að láta fara
lítið fyrir þér en vertu alltaf tilbúinn að veita hjálp.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Þú kynnist fólki sem á vissan hátt opnar fyrir þér
nýjan heim. Vinnuveitandi þinn er ekki sem ánægð-
astur með störf þín, reyndu að komast að hvað er
að. Kunningi þinn er félagsskapar þíns þurfi.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Vikan býður upp á mjög einstakt tækifæri, sem þú
getur að líkindum nýtt þér. Þú ert mjög fullur at-
orku og lítur framtíðina björtum augum. Þú verður
mikið heimavið, líkur eru á fjölmenni um helgina.
32 VIKAN 18-tbl-