Vikan


Vikan - 09.05.1968, Side 36

Vikan - 09.05.1968, Side 36
mynd, báðum í einu. Hún hefur engu tapað í manngildi við þennan hraða frama sinn. Hún er elskuleg og aðlaðandi, en ef til vill heldur of hlédræg. Hún vinn- ur hjörtu allra sem umgang- ast hana; starfsfólkið í kvik- myndaverunum heldur mjög mikið upp á hana, vegna þess að hún er algerlega iaus við alla primadonnu duttl- unga. Hún setur sig aldrei á háan hest. En öll frægð krefst fórna. Það er alveg öruggt að Julie Andrews er ekki eins liarn- ingjusöm nú, eins og þegar hún kom til New York í fyrsta sinn, til að taka við hlutverki sínu í „My Fair Lady“. Frægð og auður skapa ekki alltaf hamingju. í seinni tíð hefur Julie Andrews haft Steiiiirlimr 09 svalahandrOiO í fjölbreyttu og fallegu úrvali. Sendum um allt land. Vel girt lóS eykur verSmæti hússins. Blómaker óvallt fyrirliggjandi. Sendum myndasýnishorn ef óskaS er. MOSAIK HF. Þverholti 15. — Sími 19860. Póstbox 1339. við ýmsa örðugleika að stríða í einkalífi sínu. Ilún brosir ennþá jafn elskulega við heiminum, en það er ekki innilegt bros, það nær sjald- an til augnanna. Þeir sem kynnast henni nánar vita að hún hefur glatað einhverju af lífsgleði sinni, á leiðinni til stjarnanna. Hún virðist þó alltaf í full- komnu jafnvægi, þegar talað er við hana, en samt hefur maður á tilfinningunni að einhver órói búi undir þessu hógværa yfirborði. Starf hennar aðskildi þau Tony oft langstundum sam- an, svo það kunni eklci góðri lukku að stýra. Það er ekki auðvelt að viðhalda eðlilegri sambúð, þegar hjónin stunda atvinnu sitt í hvoru landi. Dóttir þeirra, Emrna Kate, er líklega það barn sem á flesta flugtíma, miðað við aldur. Ilún er stöðugt á flugi milli Ameríku og Evrópu, til að heimsækja foreldra sína. Þetta hefur haft áhrif á Julie, því að hún er í eðli sínú um- hyggjusöm móðir. Það er flest af þessa heims- ins gæðum, sem kaupa verður dýru verði, ekki sízt frægð- ina .... Framar öðru hefur Julie Andrews stíl. Hún er ekki ein af þeim leikkonum, sem kölluð er „darling“, „honey“, eða „baby“. Menn nota yfir- leitt ekki Hollvwootl mál- lýzku við hana. Vinir hennar kalla liana auðvitað Julie, en starfsfólkið í kvikmyndaver- unum kallar hana Miss Andrews, og umgengst hana með samskonar virðingu og Elizabeth Taylor, Katharine Hepurn og Audrey Hepum. En hún er alltaf reiðubúin til að tala um starf sitt. — Ég er mjög ánægð með hlutverkið Gertrud Lawrence, í nýju kvikmyndinni „Star“. Það er erfitt hlutverk, en það gefur líka tækifæri til að spreyta sig. Gertrud Law- rence lifði margbrotnu lífi og hlaut mikla frægð. Fyrst var hún uppáhald almenn- ngs í Bretlandi og síðar í Ameríku, og að lokum var lnin injög snjöll skapgerðar- leikkona. Eg er auðvitað mjög hamingjusöm yfir því að fá þetta hlutverk, segir hún. 36 VIKAN 18'tw-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.