Vikan - 20.06.1968, Blaðsíða 31
Hláturinn
Framhald af bls. 18
að veita viðtöl, Styles.
— Hversvegna hafið þér þá
lagt á yður að tala yfirleitt?
Macklyn hló við, — Fram að
þessu hefur þetta ekki verið
mikilsvert mál. Það -er þegar dá-
ið út. Enginn var myrtur, en ef
maður eins og þér, fulltrúi
fréttatímarits, sem fer um öll
Bandaríkin, fær áhuga — ja,
þér gætuð gert stórmál úr þessu,
ef þér kærðuð yður um. Svo ég
virti yður fyrir mér, mat yður
og komst að þeirri niðurstöðu
að það eina sem þýddi við yður
væri að segja yður allt, eins og
það liggur fyrir og láta yður
sjálfan um að velja og hafna.
— Eg er hér af persónulegum
ástæðum, ekki sem blaðamaður,
sagði Peter. — En mig myndi
langa til að leggja fyrir yður
nokkrar spurningar. Til dæmis,
hafið þér nokkurn grun um
hverjir gerðu þetta?
— Ekki þann minnsta. Það
kom þjartur glampi í augu Mack-
lyns. — Þessi Landersstúlka er
töluvert óvenjuleg, hún er lag-
leg og vel vaxin. Eg get sagt yð-
ur það, Styles, að ef ég rækist
á hana nakta, liggjandi á kletti
í skóginum yrði ég að taka mig
töluvert á til að minnast þess að
ég væri af siðuðu þjóðfélagi.
— Svo þennan dag voru að
minnsta kosti tveir menn af ósið-
uðu þjóðfélagi í skóginum.
— Já. Þeir komu aftan að
henni, þegar hún var komin upp
á bakkann. Þeir fóru illa með
hana. Hún heyrði þá hlæja,
þegar þeir yfirgáfu hana, nær
meðvitundarlausa og með tauga-
áfall. Við fórum á staðinn. Þeir
skildu ekki eftir sig neina slóð
sem hægt er að fylgja. Þeir eru
einfaldlega horfnir, Styles. Við
iiöfum ekki minnsta vott af lýs-
ingu til að senda út, hvorki af
þeim né bíl eða öðru sem gæti
gefið vísbendingu um þá.
— Kom þessi Landers hingað
og skýrði frá því hvað komið
hafði fyrir hana?
— Já. Kannske klukkustund
•eftir að það gerðist. Hún hefur
á leigu lítið hús, nokkrar mílur
fyrir utan borgina. Hvorki sími
né rafmagn. Hún er þar aðeins
á sumrin. Hún er listamaður.
Hún hafði sýningu í Hartford
Atheneum, síðastliðið vor. Hún
er góður listamaður eftir gagn-
rýnendum að dæma,
— Var hún ekki alvarlega
meidd?
— Engin brotin bein, engin
innvortis meiðsli. Macklyn
harðnaði á svip. — Það versta
fyrir hana er smánin og það að
þetta er einskonar opinber aug-
lýsing. Vitið þér hvað var það
síðasta sem hún sagði við mig?
Hvar get ég falið mig? sagði
hún. Macklyn fitlaði við síga-
r~
PER SPARID
MEDÁSKRIFT
ÞÉR SPARIÐ TÍU KRÓNUR Á HVERJU BLAÐI MEÐ ÞVÍ AÐ VERA
ÁSKRIFANDI AÐ VIKUNNI
OG ÞER ÞEKKIÐ EFNIÐ
VIKAN ER HEIMILISBLAÐ OG í ÞVÍ ERU GREINAR OG EFNI FYRIR ALLA Á HEIMILINU, — UNGA OG
GAMLA, SPENNANDI SÖGUR OG FRÁSAGNIR, FRÓÐLEIKUR, FASTIR ÞÆTTIR O. FL., O. FL.
----------------KLIPPIÐ HÉR-------------------------------------KLIPPIÐ HER-------------------
r
i
Vinsamlegast sendið mér Vikuna í áskrift
□ 3 MÁNUÐIR - 13 tölubl. - Kr. 400,00. Hvert blaS ó kr. 30,77.
□ 6 MÁNUÐIR - 26 tölubl. - Kr. 750,00. Hvert blað ó kr. 28,85.
Gjalddagar: 1. febrúar — 1. maí — 1. ógúst — 1. nóvember.
SKRIFIÐ GREINILEGA
I
L
NAFN
PÓSTSTÖÐ
VIKAN
SKIPHOLTI 33
POSTHOLF 533
REYKJAVÍK
SIMAR:
36720 - 35320
1
I
I
I
J
*4. tw. yncAN 31