Vikan - 20.06.1968, Síða 50
Bomba að austan
í BORGARSJÚKRAHÚSIÐ VAR EINGÖNGU NOTAÐ
THERMOPANE EINANGRUNARGLER
ÞÉR FÁIÐ EKKI ANNAÐ BETRA
IfifiEBT KB18TJÍN8SON «fc (O. HF.
S(MI 11400
Framhald af bls. 29
Þótt hin vestræna kvikmynda-
veröld væri lokkandi, steig það
Olly ekki til höfuðs. Ef hún átti
frí, fór hún alltaf til foreldra
sinna í Prag. Laun sín lét hún
ganga í gegnum tékkneska ríkis-
bankann og fær 40% af kaupi
sínu greitt í tékkneskum krón-
um, en 60% í Tusex seðlum. —
Fyrir þá getur hún verzlað í
þeim verzlunum, sem hafa er-
lendan varning á boðstólum og
er aðallega ætlaður erlendum
ferðamönnum.
Þegar hún fór með Brad, sem
þá var unnustinn hennar, til
Ameríku, til að kynnast foreldr-
um hans, var henni boðinn sjö
ára samningur við Centfox. En
hún neitaði því. — Hvað á ég að
gera með sjö ára samning, ég
veit ekki einu sinni hvað næstu
sex mánuðir fela í skauti sinu.
Eg vil fara með Brad til Ame-
riku í heimsókn, en ekki til að
vinna þar. ’Ég held meira upp á
Evrópu.
Framkvæmdastjóri Paramount
kvikmyndafélagsins réði samt
Olly til að leika í einni kvik-
mynd, sem Ursula Andress var
byrjuð að leika í. Kvikmyndin
heitir „Hefnd drottningarinnar",
og lék Ursula í fyrsta hluta
myndarinnar.
Til að auðvelda framburðinn
á nafni hennar var Olly fengið
nýtt nafn: Olinka Berova. Þess
má geta að ,,01inka“ er tékk-
neska orðið yfir smábarn,
,,baby“. Nú var áróðursvélin
sett í gang. Það skipti engu máli
hvað það kostaði. Hún var sögð
fjórum árum yngri en hún var,
dregin úr einni verzluninni í
aðra, og var mynduð í bikini,
minipilsum og glæsilegum kvöld-
kjólum, og það var sagt að hún
væri fyrsta austantjaldsleikkon-
an, sem léki í vestrænni kvik-
mynd.
En hin fagra Olinka hefur
ekki, þrátt fyrir ellefu kvik-
myndahlutverk, látið það stíga
sér til höfuðs. Vikulega skrifar
hún löng bréf til foreldra sinna
í Prag. Annars er móðir hennar
Vínarbúi og faðir hennar er ætt-
aður frá Bremen, og heitir ein-
faldlega Schober. Enskan hennar
er ekki upp á marga fiskana, en
þar hjálpar Brad henni, og svo
talar hún þýzku með skemmti-
legum hreim. — Mér gengur
betur að gera hlutina en að tala,
segir hún sakleysislega....
50 VIKAN 34-tbl'