Vikan


Vikan - 15.08.1968, Blaðsíða 32

Vikan - 15.08.1968, Blaðsíða 32
ONSON KVEIKJARAl ÆQfiqnncáanSQij’ Vanti ykkur tækifærisgjöf þá muniö Ronson. Ronson kveikjarar fyrir dömur og herra, fjölbreyttara úrval en nokkru sinni fyrr, einnig úrval af borðkveikjurum. Einkaumboð: I. GUÐMUNDSSON & CO. HF. Hverfisgata 89, Reykjavik, STJÖRNUSPÁ 0 ^ ^ •- Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú finnur sérkennilegan hlut og hefur mikið fyrir að finna eiganda hans. Það verður óvenjumargt um matargesti hjá þér í vikunni. Þú tekur upp nýja stefnu í sparnaðarmálum. 0 Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú endurnýjar ýmsa hluti í búslóðinni. Gjöf frá ættingja þínum gleður þig mikið. Tómstundavinna þín ef ekki sem þrifalegust og þú skalt taka meira meira tillit til umhverfis þíns. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú ætlar að grípa fljótfenginn gróða, en meiri líkur eru til að þú tapir fremur en hitt. Vertu sérstaklega gætinn 1 fjármálum, það eru margir sem vilja deila C-'gum þínum með þér. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú hefur ástæðu til að gleðjast yfir velgeggni vina þinna. Láttu þá skilja að þú takir þátt í gleði þeirra og öfundist ekki hið minnsta. Þú verður viðriðin sýningu á einhverskonar heimilisiðnaði. \Wm ?! !! Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú lcemst úr óþægilegri aðstöðu vegna meðfæddrar orðheppni og skjótra aðgerða á úrslitastund. Verk- efni þín eru erfið, en þér verður furðu vel ágengt. Þú eignast vandaðan hiut. Bogamannsmerkið (23. nóvember - 21. dej.): Nágrannar þ;nir eru afar hjálpsamir það færðu sannað bráðlega. Þú kynnist lítilsháttar eldri konu sem veldur þér miklum vonbrigðum. Notaðu frí- stundlrnar til að líta inn til kunningjanna. # Krabbamerkið (22. júní — 23. Júlí): Þú unir hag þínum vel, sérstaklega af því að þú hefur meiri ráð til að skipuleggja tíma þinn en áður. Maður, sem þú hefur gert samning við, reynist nokk- uð erfiður viðfangs. s SteingeitarmerkiS (22. desember — 20. janúar); Mnudu eftir hátíðisdegi eins kunningja þins, þú sérð ekki eftir því. Gestakoma veldur þér nokkrum erfiðleikum, þú ættir að vera betur búinn undir óvæntar heimsóknir. Heillatala er fjórir. 9* Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Þú hefur eignaskipti við einhvern, en hagnast ekki sem skyldi. Þó áttu ekki eftir að sjá eftir því. Ætt- ingjar þínir ætlast til mikils af þér og fela þér erfitt hlutverk. Vatnsberámerkið (21. janúar — 19 febrúar): Þú færð gott tækifæri til að taka í taumana og af- stýra óhappi. Ekki er víst að yfirmenn þínir taki það vel upp, en þú skalt breyta eftir beztu sam- vizku. Þú átt mikilvægt stefnumót á föstudag. MeyiarmerkiS (24. ágúst — 23. september): Líkur eru til að þú saknir einhverra hluta úr fórum þínum, en þeir eru skammt undan. Þú gerir góð kaup í fötum. Þú verður í góðum félagsskap seinni hluta vikunnar. Líkur á flugferð. Fiskamerkið (20. febrúar — 20 marz): Öllu gamni fylgir nokkur alvara, skopastu að óför- um annarra í hófi. Þér verður trúað fyrir leyndar- máli, sem þú átt afar erfitt með að varðveita. Heilla- dagur er föstudagur.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.