Vikan - 15.08.1968, Blaðsíða 18
r
HOLLRÁD
FVRIR
EIGINMENN
1. Ef konan þín er ekki í eins góöu skapi og
þú óskar, þá skaltu reyna aö hugleiöa hvort
það getur ekki verið á einhvern hátt verið
þér að kenna.
2. Notaðu ekki dagblaðið fyrir skerm, þegar
þú drekkur morgunkaffið með konunni þinni.
Ef þú þarft endilega að lesa, meðan þú borð-
ar, skaltu láta blaðið liggja á borðinu. Kon-
an þín getur þá séð ofan á kollinn á þér,
og sagt þér hvort þú hefir greitt nógu vel
yfir skallann.
3. Ef þú þarft eitthvað að þrefa við konuna
þína, áður en þú ferð til vinnu, skaltu ekki
skella hurðum. Það hefir engin áhrif á hana,
en nágrannarnir halda þá ef til vill eitthvað
misjafnt um þig.
4. Ef þú þarft endilega að viðra tilfinningar
þínar, áður en þú yfirgefur svefnherbergið
á morgnana, skaltu athuga það að gullkorn-
in verða kannski að engu, ef þú stendur á
nærbuxunum einum. Næst, þegar þú þarft
að fá útrás í morgunsárið, muntu sjá að orð
þin fá meiri hljómgrunn og að frekar er
hlustað á þig, ef þú ert komin í buxur og
jakka.
5. Ef þú þarft að halda þig í rúminu, vegna
þess að þú hefir fengið kvef, eða einhverja
umferðarpest, máttu ekki ætlast til þess að
fjölskyldan rjúki um koll af meðaumkun með
þér.
Þú mátt heldur ekki ætlast til þess að kon-
an þín og börnin gangi um húsið eins og
þú sért deyjandi eða dáinn. Karlmenn láta
ekki bugast, þótt þeir verði fyrir þeim ósköp-
um að fá kvef.
6. Þú skalt taka eftir því að með aldrinum
færðu æ meiri löngun til að láta Ijós þitt
skína í samkvæmum, heldur þá kannski
ræður, og átt erfitt með að hætta.
Það hefir verið sagt að konur eigi að temja
sér það að þegja á mannamótum, en það
væri líka gott að geta þess að það getur líka
verið hollt fvrir karlmenn.
7. Þegar þú (nauðugur) færð konu þinni mat-
arpeningana, eða réttir henni peninga fyrir
nýjum hatti, skaltu varast að láta það líta
þannig út að þú sért að gefa henni h.iartað
úr brjósti þér.
Ef þú ert þundinn við smámuni, þá afhjúp-
ar þú siálfan þig sem smásál. Það er ekki
nóg þótt þú hafir einu sinni borið sigur úr
býtum, ef þú kannt ekki að stjórna.
8. Gerðu aldrei konu þína hlægilega í viður-
vist annarra. Ef þér finnst hún eitthvað
kjánaleg á mannamótum, t.d. ef hún legg-
ur það í vana sinn að hneigja sig djúpt, upp
á gamla móðinn, þá skaltu heldur benda
henni á það síðar og við betra tækifæri. Ef
þú ferð að henni með nærgætni, þá geturðu
örugglega fengið hana til að láta að vilja
þínum.
18 VIKAN 32- tw'