Vikan - 15.08.1968, Blaðsíða 4
Þjónustustúlkan sem varð stjarna á heimsmælikvarða
Hver er Faye Dunaway? Fyrir rúmu ári hafði
enginn heyrt hennar getið. Nú er allt fullt
af ungum stúlkum, sem klæða sig eftir Bonnie-
tízkunni, með alpahúfu> í hálfsíðum kjól með
V-hálsmáli. Faye Dunaway skapaði Bonnie í
kvikmyndinni. Þegar maður hefir séð árang-
urinn, er auðvelt að trúa því sem sagt er: að
hún hafi lifað á harðsoðnum eggjum, meðan
á upptöku myndarinnar stóð, þrælað sjálfri
sér út og grátið yfir hlutverkinu, bundið þunga
sandpoka um úlnliði og mitti, til þess að ná
hinum þrjózkulega, ákveðna svip, sem hin
raunverulega Bonnie hafði, og sem sést greini-
lega á myndum af henni, sem eru til í mynda-
safni lögreglunnar. Hún reyndi að lifa sig inn
í tilfinningar Bonnie. Hún skapaði Bonnie,
sem manni finnst mjög sennileg, þrátt fyrir
það að Faye Dunaway er Ijóshærð, fersk og
fögur, en hin raunverulega Bonnie Parker
var rauðhærð, beinaber og Ijót.
Og með þessu framlagi sínu til banda-
rískrar kvikmyndagerðar, bjargaði hún kvik-
myndaheiðri Hollywood, sem ekki hefir haft
upp á að bjóða neina ameríska stjörnu, síðan
Marilyn Monroe leið.
Julie, Vanessa, Lynn, — á hverju ári skýt-
ur einhver brezk stjarna upp kollinum í Holly-
wood, hristir Ijósa lokkana fyrir framan kvik-
myndavélina, og verður stjarna ársins. Á
undan þeim brezku voru það ítölsku stjörn-
urnar, heitar og ástríðufullar. Þær frönsku
hafa alltaf verið innan um, þær eru lífsglað-
ar og fágaðar, að minnsta kosti á yfirborð-
inu. Og hvað hafa Ameríkanar haft upp á
að bjóða? Sykursætar Debbiar og Dorisar,
segja þeir í klögutón í Newsweek. Þangað
til hin hálfklædda Faye Dunaway tekur nokkur
letileg skref á móti okkur, í fyrsta atriðinu í
„Bonnie og Clyde", gengur að glugganum,
lítur niður á Warren Beatty, sem er að stela
bíl móður hennar og öskrar: „Hæ, bo-oy".
Þarna var hún, amerísk stúlka, alin upp á
eplapæ í Suðurríkjunum, skátaforingi, feg-
urðardrottning í menntaskóla. Hún var ekki
beinaber, en hún var greindarleg, alúðleg
og virtist veraldarvön.
Hver er þá Faye Dunaway? Það er hægt
að sjá myndir af henni [ blöðum um allan
heim. Það eru myndir af Faye Dunaway (
London og París, við frumsýningar á „Bonnie
og Clyde", Faye Dunaway í Indlandi, þar
sem hún er að ræða framtíðaráætlanir með
unnusta sínum, Ijósmyndaranum Jerry Schat-
zenberg. Faye er alltaf með alpahúfuna á
skakk, yfir öðru eyranu, og nokkuð leyndar-
dómsfullt, þunglyndislegt bros. En hún segir
ekkert. Það hefir hvergi sézt viðtal við Faye
Dunaway. Það gæti ef til vill verið ný Garbo,
sem Hollywood er að reyna að framleiða.
En það er talað um hana. Það getur kannski
gefið einhverja hugmynd um hana.
Arthur Penn, sá sem stjórnaði „Bonnie og
Clyde", segir:
— Ég hef aldrei verið öruggari um neina
aðra leikkonu en hana, síðan ég réði Ann
Bancroft til að leika í „Tvö á saltinu". Ég
vildi láta Faye sýna Suðurríkjastúlku úr verka-
mannastétt, stúlku sem var viðkvæm og kæru-
laus. Ég á ekki við kynþokka, Bonnie var
lífsreynd kona. Þegar ég skýrði þetta fyrir
Faye, skildi hún það strax — og ég var viss
um að hún gæti leikið þetta hlutverk.
Warren Beatty, framleiðandinn var fyrst í
vafa, honum fannst Faye allt of lagleg. Hann
hafði hugsað sér litla, dökkhærða stúlku. En
hann ákvað að ráða Faye:
— Ég held að það hefðu orðið hræðileg
mistök, ef við hefðum ekki ráðið Faye í þetta
hlutverk, segir hann.
Einn meðleikari hennar. — Ég hef aldrei
þekkt nokkra manneskju með annan eins
járnvilja til að slá í gegn sem kvikmynda-
leikkona eins og Faye Dunaway.
Dr. Zimmerman, forstjóri stúdentaleikhúss-
ins við háskólann í Florida:
— Af öllum þeim nemendum sem hingað
hafa komið með það takmark fyrir augum að
slá í gegn sem leikkonur, er það hún sem
mesta möguleika hafði til að ná tindinum.
Elia Kazan: — Það er eitthvað athyglisvert
við Faye .... Hún sleppir sjálfri sér lausri,
án umhugsunar, og er algerlega tillitslaus
gagnvart sjálfri sér. Hún er alltaf reiðubúin
til að stökkva, alltaf með ákveðið takmark
fyrir augum ....
Leikkonan Tuesday Weld: — Faye Dunaway
er að útliti eins og nútímakonur eiga að vera,
ekki eins og glansandi sexbrúða.
Candice Bergen: — Ég dáist að henni. Hún
hefir viljastyrk, sem mig skortir. Ég spilaði
einu sinni Matador við Faye, og eftir fimm
mínútur var hún búin að eignast hvert ein-
asta hótel á taflborðinu. Þannig er hún. Hún
verður örugglega mikils virði fyrir Banda-
ríkin. Við hliðina á henni eru við hinar að-
eins smástirni.
Hvernig fór Faye Dunaway að þessu? Mik-
ið er það auðvitað að þakka Bonniear hlut-
verkinu. En mest er það að þakka járnhörð-
um vilja hennar til að ná takmarkinu. Hún
byrjaði þegar hún var fimm ára að læra
ballett, framsögn og fór í spilatíma. Hún
lagði stund á listasögu og leiklist við há-
skólana í Florida og Boston. Hún kostaði sig
líka sjálf, vann fyrir sér sem þjónustustúlka
á veitingahúsi. Hún var rétt búin að Ijúka
háskólanámi, þegar hún fékk hlutverk hjá
Elia Kazan, i „Maður allra árstíða", og var
þar með komin á Broadway.
Móðir hennar hefir sagt:
— Ég vissi að Faye var búin að ákveða
að slá í gegn, og að hún gæti framkvæmt það.
Faye Dunaway hefir stjakað við einum og
öðrum á leið sinni upp á stjörnuhimininn, að-
allega eru það hárgreiðslumeistarar og förð-
unarmeistarar, sem hafa orðið fyrir barðinu
á henni, sömuleiðis kvenlegir keppinautar, en
hún hefir líka marga trygga aðdáendur, og
það eru aðallega framleiðendur.
Framhald á bls. 39
Hver er
Faye Duna-
way?
Fyrir rúmu
ári var hún
algerlega
óþekkt. Nú
er allt fullt
af ungum
stúlkum,
sem klæða
sig eftir
Bonnie tízk-
unni, með
alpahúfur, í
hálfsíðum
kjólum með
V.-hálsmálil >
Með kvik-
myndinni
„Bonnie og
Clyde“ va«t5
Faye Duna-
way
heims-
stjara.......
4 VIKAN :i2' tbl-