Vikan


Vikan - 15.08.1968, Blaðsíða 14

Vikan - 15.08.1968, Blaðsíða 14
Þanni£ leit Cliff Richard út í þann tíð, klæddur að hætti rokksöngvara þeirra tíma í vinnuskyrtu, peysu og sport- jakka. Hárgreiðslan er að hætti Elvisar. Um þetta leyti hafði hann sent frá sér tvær fyrstu plöturnar með lögunum „Living Doll“ og „Move it“. Sviðsframkoma Cliffs var með sama laginu og Elvisar — hálfgerð akro- ■ batik, en þetta kunnu aðdáendur vel að meta, og í hvert skipti sem Cliff kom fram ætlaði allt um koll að keyra. Tommy Steele, sem hingað til hafði verið eftirlæti allra rokk-unnenda, hvarf algerlega í skuggann fyrir Cliff. Þetta var byrjun á þeim frægð- arferli, sem nú hefur staðið í 10 ár. Fjölskylda Cliff hefur tekið virkan þátt í starfi hans, og keppinautar Cliff í sviðsljós- inu hafa látið svo um mælt, að enginn söngvari eigi svo góða auglýsingastjóra sem Cliff — en þar er átt við foreldrana og systumar þrjár, Jacque, Donellu og Joan. ANDRÉS INDRIÐASON ND ER CLIFF RICHARD A TOPPNHM Cliff Richard hefur nú staðið í sviðs- ijósinu í 10 ár. Fyrir 10 árum var hann að vísu aðeins Harry Webb, einn af þúsundum rokk-söngvara í Bretlandi, sem kepptust við að líkjast Elvis Pres- ley eins mikið og kostur var. Elvis var fyrirmyndin í þann tíð, og allir söngv- arar vildu vera eins og hann. A þessu ári stendur Cliff Richard á hátindi frægðar sinnar, og það er vegna lagsins „Congratulations“, sem komist hefur of- arlega á blað á vinsældalistunum í ótal löndum. í þessum myndum rekjum við feril Cliíf sem söngvara frá árinu 1959. Fyrir tveimur árum létu ■ brezku músikblöðin í veðri vaka, að Cliff ætlaði að hætta með öllu að syngja en gerast trúboði þess í stað. IIm það leyti starfaði hann með trúboðanum Billy Graham. Kom hann fram á samkomum, söng og prédikaði. Svo lýsti Cliff því yfir, að pop og trú færu ágæta vel saman, og vörpuðu þá aðdáendur öndinni léttar. Nú er Cliff farinn að leika í kvikmyndum. Fyrsta hlutverk hans var i myndinni „Serious Charge“, en síðan kom „Expresso Bongo“. Sú mynd var sýnd hér og einnig kvikmyndin „Summer Holiday“. í þeirri mynd ók hann strætisvagni, ein- um þessara sérkennilegu og skemmtilegu tveggja hæða vagna, sem setja svip sinn á göturnar í London. Úr kvik- myndinni „Summer Holiday“ var lagið „The Young Ones“, sem varð mjög vinsælt. V Sam- ■ vinna Cliff Richard og The Sha- dows hefur verið happa- drjúg. Á myndinni sjást þeir ásamt Harry Webb, sem ætlaði fyrst að taka sér nafnið Russ Clifford en ein- hverjum fannst það ekki nógu gott, og þá datt hon- um í hug Cliff Richard, og með því heiti höfum við alltaf þekkt hann. 14 VIKAN 32- tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.