Vikan


Vikan - 18.12.1969, Qupperneq 4

Vikan - 18.12.1969, Qupperneq 4
Jólagjafir Mjög fjölbreytt úrval: Af ferðatækjum Af plötuspilurum Af segulbandstækjum Verð frá kr. 1.485,00 Verð frá kr. 2.590,00 Verð frá kr. 5.693,00 HE Laugavegi 47, sími 11575 MIDA PRENTUN HILMIR HF SKIPHOLTI 33 - SlMI 35320 A3 yrkja Kæra Vika! Ég þakka þér fyrir allar góðu sögurnar þínar. Ég freistast allt- af til að kaupa þig, þó að mér finnist þú nokkuð dýr. En nú langar mig til að biðja þig að upplýsa mig um dálítið. Ég hef verið að reyna að yrkja svolítið og datt í hug að gaman væri að heyra það sungið. Það á alveg við danslag, sumt af því að minnsta kosti. Spurningin er: Hvert get ég sent það, svo að því verði ekki fleygt í ruslakörfuna? Viltu svara mér fljótt. Með fyrirfram þakklæti. Ein sem yrkir. Það er sagt, að alltaf sé vöntun á góðum dægurlagatextum, og það sem glymur í eyrum okkar á hverjum einasta degi í útvarp- inu bendir eindregið tii þess. — Ætli eina ráðið sé ekki að setja sig í samband við innlenda dæg- urlagasmiði, en þeir eru fjöl- margir, eins og allir vita. Og ef þú hefur sett þér æðra takmark en dægurlögin, þá er reynandi að hafa samband við Lesbók Morgunblaðsins. Hann kemur ekki heim Kæri Póstur! Þú ert stundum slyngur að leysa úr persónulegum vanda- málum lesenda þinna, þótt stund- um vilji reyndar brenna við, að þér bregðist bogalistin. Að minnsta kosti finnst mér það. Svörin eru svo ólík frá þér, að það hljóta að vera margir menn, sem svara bréfum lesendanna. Samt ætla ég að reyna að skrifa þér í vandræðum mínum og vona að bréfið lendi í hönd- unum á einhverjum góðum manni, sem er svolítið lífsreynd- ur í hjónabandsmálum og glögg- ur að koma auga á lausnir á erf- iðum vandamálum. Mitt vandamál er í stuttu máli þetta: Ég hef verið gift í þrjú ár, en samt kemur það æ oftar fyrir í seinni tíð, að maðurinn minn komi ekki heim úr vinn- unni, strax og henni lýkur, og láti mig ekki einu sinni vita hvert hann fari. Það er allt ann- að en gaman að búast við manni á ákveðnum tíma, en verða svo að bíða og bíða kannski svo að klukkutímum skiptir. É'g hef fyr- ir sið að hafa kaffi tilbúið á eldhúsborðinu fyrir manninn minn, þegar hann á að koma heim úr vinnunni um sexleytið. Hann er þá oft glorsoltinn og finnst erfitt að bíða til klukkan sjö eftir matnum. Þú getur rétt ímyndað þér hvernig mér er inn- anbrjósts, þegar ég sit og bíð eft- ir honum með ískalt kaffi á eld- húsborðinu. Um daginn kom hann ekki heim fyrr en klukkan ellefu um kvöldið og kvaðst þá hafa farið í bíó með vinnufé- laga sínum. Ég sá það á svipnum á honum, að þetta var ekki satt, enda hefði hann þá farið í bíó klukkan sjö og komið heim klukkan níu. Ég get nefnt þér ótal dæmi um þetta, en læt þetta nægja með þessari sígildu spurningu: Hvað á ég að gera? Með fyrirfram þakklæti fyrir hjálpina. X —Y. Slík framkoma er með öllu ófyr- irgefanleg og við ráðleggjum þér að setja manni þínum tvo kosti: Að koma heim á réttum tíma, og láta þig vita, ef ekki verður kom- izt hjá að bregða út af venjunni, — eða segja skilið við hann að öðrum kosti. Þessi hegðun hans sýnir, að hann ber ekki minnstu virðingu fyrir þér og það ætti engin eiginkona að líða manni sínum. Listin að skrifa bréf Kæri Póstur! Ég hef lesið þig lengi og eitt er það, sem vekur athygli mína í hvert einasta skipti, sem ég hef lokið lestrinum. Það er sú himinhrópandi staðreynd, að ná- lega enginn af þeim sæg lesenda, sem skrifa þér, er í rauninni sendibréfsfær! Þetta stafar ekki af því, að lesendur þínir séu neitt verri en gengur og gerist um fólk hér á landi. Nei, sann- leikurinn er nefnilega sá, að bréfritun hefur almennt farið mjög aftur hér á landi. Menn vanda ekki bréf sín nærri eins vel og gert var hér áður fyrr. Það er hreinasta hending, ef bregður fyrir snjallri lýsingu í bréfunum eða setningum, þar sem hnyttilega er að orði kom- izt. Stíll bréfanna er yfirleitt lágkúrulegur. Alls konar orð- skrípi og ónefni, sem hvergi ættu að sjást á prenti, vaða uppi. Bréfritarar verða að gera sér ljóst, að bréf skrifar maður yfir- leitt á ritmáli en ekki talmáli. Það er alls ekki sanngjarnt gagn- vart lesendum af eldri kynslóð- 4 VIKAN 51. tbl.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.