Vikan - 18.12.1969, Blaðsíða 43
tækifæri: í tíu ár höfum við orð-
ið að komast af án Guðs, en nú
hefur Bonaparte okkar blessað-
ur gefið okkur hann aftur.
Allt virtist ganga Napóleoni í
haginn. Hann fékk meira að
segja Breta til að semja við sig
frið 1802, þótt það stæði ekki
lengi. Og 1804 krýndi hann sig
sjálfur keisara Frakka í dóm-
kirkjunni í Rheims. Ekki mun
hégómaskapurinn einn hafa knúð
hann til þessa miðaldalega til-
tækis, heldur mun það meðfram
hafa verið hugsað sem mótleik-
ur gegn bæði konungssinnum og
byltingarmönnum, sem stöðugt
plottuðu gegn honum og höfðu
talsvert fylgi. Konung gat hann
ekki gert sig; þótt það kynni að
friða einhverja konungssinna,
myndi það alveg trylla lýðveld-
issinnana. Þar að auki fyrirleit
hann sjálfur Búrbónana hjartan-
lega, en Karl mikli var hans
hetja. Ljómi keisaradæmisins
var líklegur til að verða ofbirta
í augum allra óánægðra og fá þá
til að iáta sér orðinn hlut vel
líka.
En þann hrákalda desember-
dag sem keisarinn nýi reif kór-
ónuna úr höndum páfans og setti
á höfuð sér sjálfur (þar hefndi
hann Karlamagnúsar, en páfinn
hafði læðst að honum á bæn í
kirkju í Róm og sett á hann kór-
ónuna), var hin skammvinna
friðartíð hins nýja Frakklands
byltingar, þjóðstjórnar, konsúla
og keisara þegar á enda. Þegar
árið 1803 hafði Bretland á ný
lýst yfir stríði við Frakka. Margt
bar á milli og helzt það, að Na-
póleon hafði skilið friðarsamn-
inginn í Amiens svo, að Bretar
myndu þaðan af hætta að skipta
sér af málefnum meginlandsins,
en þaðan vildi hann fyrir alla
muni bægja þeim, ekki síður en
de Gaulle síðar. En Bretinn vildi
auðvitað hafa þar hönd í bagga
áfram. Og enn var farið að stríða.
☆
Fjarri heimsins glaumi
Framhald af bls. 25
póstvagninn, og reyndi af alefli að
hugsa út einhverja leið úr þessum
ógöngum. Bjánaleg fíflafylkingin
kom að minnsta kosti í veg fyrir
að Pennyway kæmist til Batshebu.
Ahorfendur hliðruðu ekki til, allir
vildu sjá sem bezt, enginn mátti
byrgja útsýnið! Feita konan og
dvergarnir þvældust hvert um ann-
að, en allt í einu sá Frank einhvern
viðvörunarsvip í augum feitu kon-
unnar. Skeggið var að detta af
honum!
Hann reyndi að þrýsta því föstu,
en límið var orðið þurrt. An skeggs-
ins var hann glataður! Hann keyrði
hestinn sporum og þaut út um tjald-
opið, þreyf skeggið af einum afl-
raunamanninum, skellti því á sig og
þeysti aftur inn á sviðið. Enginn tók
eftir þessu, og hann þeysti aftur í
Föstudagur: Fastir liðir eins og venjulega.
Náttkjóll og-sloppur frá Marks og Spencer.
Börnin mega ekki verða of sein í skólann.
Morgunkjóll, auðvitað frá Marks og Spencer.
Kennslustund í flugskólanum.
Sportfatnaður frá Marks og Spencer.
Verzlunarferð. Marks og Spencer vörur
eru alltaf jafn freistandi.
oTVlarks & Spencer* vörur fást
í fataverzlun fjölskyldunnar
(B w m w m
AUSTURSTRÆTI
“■tM- VIKAN 43
argus auglýsingastofa