Vikan - 18.12.1969, Qupperneq 11
menningur gerði sér það.tæplega
ljóst, og reyndi að lifa eftir ein-
kunnarorðum Douglas Fairbanks
„lifið lífinu hlæjandi".
Garbo endurspeglaði kvíða og
taugaveiklun, undir rólegu yfir-
borði. Með list sinni, kenjum, en
kannski af slembilukku, fór hún
að festast í hugum fólks sem
rómantísk, einmana sál, sem
þraukaði gegnum hættur og yfir-
vofandi tortímingu.
En sannleikurinn er sá, að
Greta Garbo, þessi heimsmynd
einmanaleikans, hefur yfirleitt
gert allt það sem henni hefur
þóknazt, ferðazt um heiminn að
eigin geðþótta, séð allt sem hana
hefur langað til að sjá. En henni
hefur tekizt að varðveita þá dul-
arfullu hulu, sem alltaf hefur
hvílt yfir lífi hennar, síðan hún
hætti að leika í kvikmyndum, og
það er líklega hennar glæsileg-
asta hlutverk... .
Hvernig hefur hún svo farið að
þessu? Aðallega með því að vera
sí og æ á öðru máli en almenn-
ingur. Hún átti marga vini og
kunningja, sem hún hafði stöð-
ugt samband við. jafntímis því
að hún lofsamaði einveruna.
Hún iék í kvikmyndum, sem
urðu heimsfrægar, en hélt því
fram að það hefði verið hreinasta
plága, Hollywood væri mótfallin
öllu sem héti list, og að Holly-
wood væri sér fangelsi. Hún
sigldi um öll heimsins höf, á
glæsilegum lystisnekkjum, og
sagði að það var hundleiðinlegt.
Líf hennar var hennar stærsta
hlutverk. . . .
Og þetta hlutverk fór hún að
leika fyrir alvöru, þegar hún
hitti Mauritz Stiller. árið 1923.
Stiller og Victor Sjöström, sem
voru frægustu leikstjórar Svía,
á dögum þöglu kvikmyndanna,
voru að undirbúa töku kvik-
myndarinnar, sem varð stærsta
ævintýri Stillers, „Gösta Ber-
lings Saga“ eftir Selmu Lager-
löf. Stiller hafði valið Lars Han-
son í titilhlutverkið. En hann
hafði ekki fundið neina leikkonu,
sem honum fannst passa í hlut-
verk Elísabeth Dohna. Gustaf
Molander, vinur hans og sam-
starfsmaður, stakk því að honum
að hann skyldi líta á unga stúlku,
Gretu Gustafson, sem var nem-
andi í leikskóla sænska þjóð-
leikhússins (Dramaten). Það sem
svo skeði er kunnara en frá þurfi
að segja.
Þegar Stiller sá hana í fvrsta
sinn, sagði hann: — Unefrúin er
of feit. En þrátt fyrir öll auka-
kílóin gekk allt að óskum. Eftir
frumsýninguna, svaraði Stiller,
þegar hann var spurður hver
léki Elisabeth Dohna: — Hún
heitir Greta Garbo, og hún á
eftir að verða mesta leikkona
okkar. Hann varð óneitanlega
sannspár. Kvikmyndagagnrýn-
andinn Jack Kross, skrifaði í
Newsweek, mörgum áratugum
síðar, eftir að hann hafði séð
Framhald á bls. 33.