Vikan - 18.12.1969, Síða 32
I
i
HUSGAGNAVERZLUNIN AUÐBREKKU 59
W*M Wk. U m SÍMI: 42400
DUNAkúpavogi
VIÐ HÖLDUM FORUSTUNNI!
Hjá okkur fáið þér það nýjasta hverju sinni í húsgögnum og áklæðum.
ATH. Það er skotvegur í Kópavoginn eftir nýja veginum.
HÚSGAGNAVERZLUNIN
DÚNA
AUÐBREKKU 59
SÍMI: 42400
KÓPAVOGI
STJÖRNUSPÁ .vT/. ÁlÁ m — vj> Tfv 9
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þér finnst að þú sjáir ekki út úr verkefnunum, en þú getur áreiðanlega hagrætt þeim betur. Útlit er fyrir nokkum fjárskort. Og hvað heillatölunni við- víkur, þá er hún sjö. 0 Vogarmerkið (24. september — 23. október): Það eru vandamál heimilisins sem eru einkennandi fyrir þessa viku. Hafðu það í huga að smá mistök geta verið ótrúlega dýr. Vertu vel á verði, sérstak_ lega við akstur.
m Nautsmerkið (21. aprd — 21. maQ: Þú hefur náð langþráðum áfanga, en það er ekki þar með sagt að þú megir slá slöku við. Þú verður að hafa þig allan við til að halda því sem þú hefur þegar náð. Þú ferð í bíó. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú ert áhugalaus og ekki sem ánægðastur með þig. Reyndu að hrista þetta af þér, leita ráða. Þú verður í fjölmennu samkvæmi sem gæti fært þér tækifæri. Gættu fjármálanna og hugsaðu um framtíðina.
IljI Tvíburamerkið (22. maf — 21. júnQ: Það kemur upp svolítill misskilningur í einkalífinu, en hann leysist von bráðar, ef þú lætur þig annt um það. Þú eignast nýjan kunningja sem þú starfar mikið með. Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Það fólk sem er um tvítugt mun lenda í miklum ævintýrum. Gerðu þér ekki of háar vonir, það er ekki víst að þú sért á réttu spori. Þú nýtur gest- risni góðra kunningja. Heillatala er sjö.
Krabbamerkið (22. júnf — 23. júlf): Láttu ekki alla fjölskylduna blanda sér í málefni þín. Það lítur út fyrir að aðstaða þín sé ekki sem traustust. Konur sem fæddar eru fyrri hluta júlí mega búast við góðum tíðindum. & Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar); Það verður þitt hlutskipti þessa viku að leiðbeina öðrum. Það er bezt að segja hlutina lireint út. Horf- ur á vinnustað eru ekki sem bjartastar. Yfirmenn þínir eru fremur skapstirðir.
Ljónsmerklð (24. júlf — 23. ágúst): Þú ert örlátari en venja hefur verið og veldur því hamingjusamt einkalíf. Þú hagnast nokkuð fyrir til- stuðlan kunningja þíns. t»ú gerir góðan samning við ættingja þinn. Vatnsberamerkið £21. janúar — 19. febrúar): Umhverfi þitt fullnægir ekki kröfum þínum. Þú ert þvingaður og skaltu leita orsakanna. Þú skorast undan að rétta skyldmenni þínu hjálparhönd. Þú færð stóran, fyrirferðamikinn hlut til varðveizlu.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Bréfaskriftir eru undir hagstæðum afstöðum þessa viku, og á vinnustað verður óvenju líflegt. Ungt, ólofað fólk verður mikið á ferð og flugi. Útiit er fyrir bættan fjárhag. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Vertu varkár í orðum og verkum meðal þinna nán- ustu. Gættu þess að reiðast ekki yfir smámunum. Undir vikulokin þarftu að taka mikilvæga ákvörð- un. Leggðu meiri alúð við útlit þitt.