Vikan - 30.07.1970, Blaðsíða 3
31. tölublaS - 30. júlí 1970 - 32. árgangur
I ÞESSARI VIKU
í þessu blaði birtir Vikan sérstaka sumarsögu,
iétta og skemmtilega, og munu fleiri
slikar fylgja á eftir. Þessi saga er eftir engan
annan en sjálfan meistara smásagnanna,
Guy de Maupassant. Hún heitir Marroca og
fjallar um ástarævintýri höfundar í Afríku.
„Hann er tákn þess sem koma skal i
Ameríku. Sumir vilja líkja honum við John F.
Kennedy. Hann hefur mikla persónutöfra
til að bera, er víðsýnn og fær fólk
til að hlusta á sig." Þannig hefst grein
um blökkumanninn Carl B. Stokes, fyrsta
þeldökka borgarstjórann í Bandaríkjunum.
Hann stýrir stórborginni Cleveland í
Ohio-fylki, og því er spáð að hann verði
varaforsetaefni demókrata 1976.
í júnímánuði síðastliðnum dvaldist hér á
landi hárgreiðslumeistarinn Perry Wangsmo á
vegum Hárgreiðslumeistarafélags íslands
og fyrirtækisins Halldórs Jónssonar hf.
Hann kom hingað til að kynna islenzkum
hárgreiðslukonum helztu nýjungar í
klippingu, litun og hárgreiðslu. I þessu blaði
birtum við margar myndir af Perry
Wangsmo, þar sem hann er að greiða þekktum
islenzkum stúlkum frá Módelsamtökunum.
Hin óvenjulega ferð Thor Heyerdahls
yfir Atlantshafið þvert og endilangt
á papirusbátnum Ra II, tókst giftusamlega
og hefur vakið mikla athygli. Fylgzt
var með ferðum bátsins stöðugt um allan
heim og leiðangursmönnum
fagnað, er þeir tóku land heilu og
höldnu. í næsta blaði birtum við itarlega grein
um Heyerdahl og hina sögulegu ferð hans.
Við höldum áfram að birta palladóma um
alþingismenn. Hver þingmaðurinn
á fætur öðrum er tekinn til meðferðar
og Lúpus segir miskunnarlaust
kost og löst á þeim. Ævinlega er beðið
með mestri óþreyju eftir dómum um þá
stjórnmálamenn, sem fremstir eru í
sínum flokki og fyrirferðamestir í þjóð-
málabaráttunni. Um einn slikan verður
fjallað í næsta blaði: Gylfa Þ. Gislason,
ráðherra og formann Alþýðuflokksins.
Smásagan í næsta blaði er eftir
Karen Brasen og nefnist „Gula slæðan". Hún
segir frá ævintýri auðugs kaupsýslumanns
og fátækrar stúlku. Þau hittast í
járnbrautarlest og kynni þeirra verða
stutt, en ærið söguleg.
I NÆSTU VIKU
FORSÍÐAN Tízkufræðingar segja, að skraut og útflúr i austurlenzkum stil muni
setja svip sinn á klæðnað kvenfólksins i náinni framtíð. Þessi tízkumynd, sem kemur
beint frá París, styður vissulega þá tilgátu.
í FULLRI ALVORU
RÉTTUR NEYTENDA
Fyrir skemmstu birtist í dönsku vikublaði niður-
staða rannsóknar, sem blaðið lét gera á öllum
þeim tegundum þvottalagar sem er á markaði
þar í landi. Það var býsna athyglisvert að lesa
þessa skýrslu, sérstaklega þar sem hún leiddi í
Ijós, að í sumum tegundunum reyndist vera allt
að 90% vatn.
Þetta leiddi hugann að hagsmunum neytenda
og hversu nauðsynlegt er að þeir gæti réttar
sins, m.a. með þvi að láta fara fram hlutlausar
rannsóknir á gæðum ýmissa vörutegunda.
Ef rétt er á málum haldið geta neytenda-
samtök verið ótrúlega sterk og komið mörgu
góðu til leiðar. Nægir i því sambandi að minnast
á samtök neytenda í Bandarikjunum og hinn
hugrakka og ötula forvígismann þeirra, Ralph
Nader. Hann er orðinn næstum goðsagnakenndur
krossfari í þrotlausri baráttu sinni fyrir málstað
neytenda. Honum hefur tekizt að fá iðnjöfrana
til þess að gera sér grein fyrir þeirri ábyrgð, sem
á þeim hvílir. Þrátt fyrir þungan róður hefur starf
hans þegar borið þann árangur, að miklu meira
tiliit er tekið til hagsmuna og álits 203 milljón
neytenda í Bandarikjunum en áður var.
Ralph Nader, sem er 36 ára gamall, hefur oft
verið kallaður „friðsamur byltingarseggur". Hann
beitir þeim einu vopnum, sem hverjum þegn
nútimaþjóðfélags eru tiltæk, lögunum og al-
menningsálitinu. Hann heldur þvi fram, að hann
sé alls ekki andvígur kaupsýslumönnum og iðn-
jöfrum, heldur sé hann aðeins „með fólkinu",
eins og hann kemst að orði. í nýlegri grein, sem
vikuritið Time birti um þennan skelegga mál-
svara og baráttumann almennings segir m.a. svo:
„í rauninni er Ralph Nader aðeins að kenna
okkur um þegnskapinn í hinni elztu mynd hans.
Hann er að vekja athygli á þvi, að einstaklingur-
inn getur komið miklu til leiðar í frjálsu þjóðfé-
lagi, jafnvel með því einu að bera fram kvartanir,
sem byggjast á staðgóðum upplýsingum".
Hér á landi er næstum með öllu ónumið land
á þessu sviði. Þótt neytendasamtök hafi starfað
hér um árabil, hefur verið furðu hljótt um starf-
semi þeirra og árangurinn hlýtur að teljast næsta
lítill. En það gefur auga leið, að hér engu siður
en í öðrum löndum, er þörf á að vernda rétt
neytendans; veita kaupsýslumönnum og framleið-
endum nauðsynlegt aðhald frá hlutlausum sam-
tökum, sem styðja kröfur sínar og kvartanir
óyggjandi rökum. G.Gr
VIKAN
Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Gylfi
Gröndal. Blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Matthildur
Edwald og Ómar Valdimarsson. Útlitsteikning: Hall-
dóra Halldórsdóttir. Auglýsingastjóri: Sigríður Ól-
afsdóttir. — Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og
dreifing: Skipholti 33. Símar 35320 — 35323. Pósthólf
533. Verð í lausasölu kr. 50,00. Áskriftarverð er 475
kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, 900 kr. fyrir
26 tölublöð misserislega. — Áskriftargjaldið greiðist
fyrirfram. Gjaldd. eru: Nóv., febrúar, mai og ágúst.
31 tbl- VIIvAN 3