Vikan


Vikan - 30.07.1970, Page 4

Vikan - 30.07.1970, Page 4
Munnur á mismœli, en maður leiðrétting orða sinna. íslenzkur málsháttur. Jane Fonda mótmælir Stúdentar i Bandaríkjunum mótmæltu harðlega stríðinu í Vietnam og Kambódíu, eins og kunnugt er af fréttum. Þau mót- mæli urðu dýrkeypt, kostuðu mannslíf, og aðgerðir lögreglunn- ar verkuðu eins og olía á eld. Á meðal ræðumanna við mótmæla- aðgerðir við Columbíuháskóla í Suður-Carólínu var leikkonan unga og efnilega, Jane Fonda, sem við sjáum á þessari mynd brýna raustina kröftuglega. ☆ Tízkuklipping fyrir Ijón Linda, tuttugu og eins árs gömul hárgreiðslustúlka, sem vinnur á stofu rétt hjá Milton Mowbray-dýragarðinum í Mið- Englandi, fékk fyrir skömmu þennan óvenjulega viðskiptavin í heimsókn. Þetta er átta mánaða gamalt karlljón og heitir Phar- vah, og það þurfti að klippa og snyrta á honum makkann fyrir sumarið. Linda sagði á eftir að aldrei hefði hún haft jafn þolin- móðan viðskiptavin og Pharvah. Þriðju dyr til vinstri Maður nokkur leitaði eftir gist- ingu á litlu sveitahóteli. Þetta var síðla nætur og veitingamað- urinn var argur yfir því að vera vakinn. Hann sagði því með þjósti: „Nr. 26 er laust. Farið upp á aðra hæð og fylgið gang- inum, unz komið er að súlunni. Þá eru það þriðju dyr til hægri“. — Maðurinn þreifaði fyrir sér þolinmóður upp stigann, og síð- an hélt hann inn ganginn, unz hann rak sig harkalega á súluna og gaf frá sér öskur. „Gott“, hrópaði veitingamaðurinn að neðan. „Nú eru það þriðju dyr til hægri“. Abdallah dró stoltur hring á fingur sinnar fjögurra ára gömlu brúðar, og œttfólkið óskaði þeim langlífis og margra barna ... Heimsins yngstu Rómeó og Júlía Yngsti Romeó í heimi bæði fyrr og síðar mundi vera Abdall- ah Ahmed E1 Sal, ellefu ára að- eins og til heimilis í Beirút í Líbanon. Þessi ungi sveinn felldi glóandi ástarhug til frænku sinn- ar fjögurra ára gamallar, og heit- ir sú Imane Farid Chemaly. Vildi hann þegar fá þessa ungu dömu Baritónsöngvarinn Sherill Miln- es í hlutverki Macbeths, en í því náði liann hylli Vínarbúanna. STUTT OG LAG- GOTT Þá fyrst finnur drengurinn, að hann er orðinn maður, þegar hann tekur eftir því, að stúlka hefur veitt því athygli, að hann er að gefa henni gaum í laumi. fyrir konu og snerist við önd- verður er reynt var að fá hann ofan af þeirri fyrirætlan. Fjölskyldan vissi ekki sitt rjúkandi ráð og sendi Abdallah í dvöl í aðra borg, í von um að þetta ryki úr honum. En hann lét sig hvergi. „Ég gleymi Imane al- drei,“ sór hann. Hann fékk móð- ur sína um síðir til að lofa því að vera stöðugt góð við Imane, er þau síðar hefðu gengið í hjóna- band. Þegar hann sá stúlkuna næst, tók hann hönd hennar í sína og sór í heyranda hljóði við Alla að eiga hana eða enga ella. Fjölskylda hans var samt ekki að baki dottin og reyndi jafnvel að leiða hug Abdallah frá Imane með því að fá aðrar stúlkur til að reyna að fleka hann, en hann lét sem hann sæi þær ekki. Þá gafst fjölskyldan upp og Abdall- ah og Imane trúlofuðust opinber- lega. Svo var trúlofunarveizla hald- in, ungu hjónaleysin settu upp hringa og skiptust á loforðum um eilífa ást. Eftir öllu að dæma bíður þeirra Abdallah og Imane því langt og farsælt hjónaband — nú er fyrir löngu úr tízku að deyja úr ást, eins og Rómeó og Júlía létu sig hafa á sínum tíma. Ný stjarna á óperuhimni Vínar Hann kom, söng og sigraði. Það á við um hinn unga bandaríska barítón Sherill Milnes, er hann kom í fyrsta sinn fram í Vínar- óperunni. Þar söng hann Mac- beth í samnefndri óperu Verdis. Hljómsveitarstjóri við þetta tækifæri var Karl Böhm, sem heldur sérstaklega upp á þessa óperu. Christa Ludwig söng með fegurstu messósópranrödd hlut- verk Lady Macbeth. Krítikin sagði meðal annars: „Hann hefur sórfallega lýrisk- dramatíska barítónrödd, söng- tæknin er alveg makalaus og hann leikur af mikilli greind og innlifun.“ Þetta hafði prófessor Karl Böhm fundist, er hann var í New York í marz í fyrra og hlustaði og horfði á þennan myndarlega söngvara í Metropolitan. Þar söng Milnes hlutverk Luna greifa í Trúbadúrnum. Þá réð Böhm hann til Vínar. Sherrill Milnes er bóndasonur frá Iowa. Hann lærði í bernsku á fiðlu og píanó og fór að læra söng á tólfta aldursári. Hann hafði um skeið hugsað sér að verða læknir, en hætti við það til alirar hamingju fyrir óperuheim- inn. t Teatro Nuova í Mílanó söng hann í Rakaranum í Sevilla og í Lundúnum fór hann með hlut- verk Barnaba í La Giaconda. Þar vakti hann engu minni hrifningu en í Vín, en í þeirri höfuðborg söngsins hefur hann hugsað sér að starfa um ófyrirsjáanlega framtíð. 4 VIKAN 31. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.