Vikan


Vikan - 30.07.1970, Side 23

Vikan - 30.07.1970, Side 23
Enn einu sinni heyrðist El- myr hrópað í hanastélsveizl- um og enn einu sinni sást ar- istókratísk hliðarmynd hans beygjast er varir hans snurtu gimsteinum skreyttar hendur útlægra konungsdætra. Hvaða máli skipti þá þótt mánaðarlaunin frá Fernand væru heldur lág. Hann fékk nú aftur næði til að mála ó- fölsuð verk og þénaði auka- pening á þeim. Eftir árangursríka ferð til Japans keypti Fernand sér hús við Avenue Henri-Martin í París; hafði það hús áður verið í eigu Hassans konungs í Marokkó. Kaupverð kofans var eitthvað á fjórða tug krónumilljóna, og auk þess lét Fernand innrétta hann upp á nýtt fyrir næstum tuttugu milljónir. Þrjú baðherbergi voru í húsinu og kranarnir í ])eim allir úr gulli. Venjulega sáust fjórar lúxuskerrur fram- anvið hliðið og heyrði til tíð- inda ef þeim var parkerað rétt. Þar var rauði kádiljákurinn hans Fernands, Alfa Romeo Réals og oftast einar tvær Corvettes til reiðu fyrir hina og þessa unga gesti þeirra fé- laga, sem allir voru karlkvns. Sumarið 1965 kvaddi EI- myr allt í einu dyra á lúxus- villu sölustjóra síns. Honum brá illilega. Allir veggir voru þaktir rauðu brókaði eða rauðu flaueli sem spennt var innan í forgvllta rarnrna. Loft- in í herbergjunum voru lögð gulli og meðal húsgagnanna var tröllaukið ítalskt marm- aramatborð. Og í þessum yfir- hlöðnu herbergjum héngu listaverk Elmyrs, og fór lield- Hvernig gat Elmyr de Hory orðið slíkur snilldarfalsari? Var það svona auðvelt að plata sérfræðinga listaheimsins? En ástæðan til þess að Elmyr tókst að koma þúsundum falsaðra málverka í listasöfn og sýn- ingarsali Evrópu og Ameríku var einfaldlega sú að hann var enginn fúskari. Hann var snillingur — á sinn hátt. FRAMHALDSFRÁSÖGN UM LISTAVERKAFALSARA ALDARINNAR ÞRIÐJA OG SÍÐASTA GREIN ur lítið fvrir þeim innan um allt gullið og litadýrðina. _ Hann reyndi að leiða Fern- and fyrir sjónir að listsalar sem kynnu sitt verk legðu áherzlu á að umhverfið yfir- gnæfði ekki listaverkin. ,,Það levnir sér svo sem ekki að þú ert nýríkur,“ andvarpaði El- myr. „Það eru viðskiptamenn mínir lika,“ svaraði Fernand, sem hafði mikið gaman af ógeðssvipnum á Elmyr. En hann flýtti sér bó að ná nokkr- um hundrað dollara seðlum upp úr vösunum og stinga að Elmyr, svo að hann færi sem fyrst. „Þeir kærðu sig ekki um að ég væri lengi í París, og seinna frétti ég hversvegna,“ sagði Elmyr síðar. „Þeir vildu ekki að ég sæi nýja bílinn hans Ré- als, rjómalitaðan, sérhannað- an Alfa Romeo, klæddan inn- an með rauðu skinni. Eg frétti síðar að hann hefði kost- að átta þúsund dollara, og að sjálfur hefði Fernand þá ver- ið nýbúinn að kaupa sér lúx- uskerru og auk þess minka- pels á móður sína, þá bölvaða kerlingarhrotu!“ Eftir þessa snöggu heim- sókn gái'u þeir félagar Elmyr nýjan Mustang. En launa- hækkun fékk hann ekki. „Við vorum tilneyddir að halda honum fátækum,“ sagði Réal síðar. „Annars hefði hann gefizt upp. Hann þurfti eitthvað til að reka á eftir sér. Jafnskjótt og hann hafði eign- ast eitthvað af peningum gat hann ekki skilið að hann þyrfti að vinna. Svo að í stað- inn fyrir að moka í hann pen- ingum ákváðum við að senda honum gjafir á borð við hand- sjónvarpstæki, eða rauðan sportbíl. Hann gladdist alltaf við slíkar gjafir. Hann var eins og barn.“ Ein gjöfin var La Falaise, stórfenglegt herrasetur með útsýn yfir Miðjarðarhafið og sundlaug í trjágarðinum. Auðvitað réði Fernand allri tilhöguninni. „Þú átt að hafa stórt svefn- herbergi og aðliggjandi vinnu- stofu,“ sagði liann. „Þetta á að vera þannig að fólk geti kíkt inn þegar því dettur í hug. Og svo áttu að hafa fallegan trjágarð og útigrill. Og hversvegna ekki dálitla álmu út úr, ef við skyldum líta við og ekki vilja búa á hóteli. Sú álma á öll að inn- réttast í rauðu, því að það er uppáhaldslitur minn. Hafðu engar áhyggjur af kostnaðin- um!“ „Já, en mér líst ekki á þetta,“ sagði Elmyr. „Eg kemst ekki einu sinni eins og er af með það sem ég fæ.“ „En það erum við, sem tök- um á okkur alla áhættuna,“ áminnti telagi hans hann. Og Elmyi' gafst upp fvrir förtölum Fernands, alveg eins og hann hafði gert fyrir þrem- ur árum, er þeir gerðu við- Framhald á bls. 39. Elmyr de Hory í villunni á Ibiza, þar sem listmálarar, rithöfundar og prinsar voru daglegir gestir. 31. tbi. VIKAN 23

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.