Vikan


Vikan - 30.07.1970, Síða 24

Vikan - 30.07.1970, Síða 24
r V Engin sýn í veröldinni gat verið dásamlegri: Nakin stúlka í vatni, sem var gagnsætt eins og gler, og umvafin þessu undarlega sólarljósi. Hún var sannarlega falleg, vöxturinn eins og á myndastyttu ... Þú lief'ur beðið mig, kæri vinur, að segja þér frá áhrifum mínum og æv- intýrum og umfram allt reynslu minni í ástarmálum á þessu afríkanska svæði, sem mig liefur svo lengi fýst að lcynnast. Þú byrjar bréf þitt á því að minnast á svörtu elskurnar mínar og segist vera við því búinn, að ég komi heim með stóra íbenholtslitaða dömu, sem hafi gulan dúk sveipaðan um höfuð sér og spóki sig í hvítum klæðum. Nújæja, röðin kemur að blökku- stúlkunum, því að ef ég á að vera hreinskilinn, þá hef ég liitt nokkrar, sem vissulega hafa kveikt hjá mér löngun. Atvikin höguðu því þannig, að fyrstu reynslu mína í þessum efn- um öðlaðist ég við mjög óvenjulegar aðstæður. í síðasta bréfi þínu skrifaðir þú: „Þegar ég veit, hvernig menn elska í einhverju landi, þá þekki ég sjálft landið svo vel, að ég mundi treysta mér til að lýsa því, enda þótt ég hefði aldrei séð það“. Nújæja, ég get full- vissað þig um, að í þessu landi elska menn aldeilis ferlega. Allt frá fyrsta degi finnst manni eins og maður sé orðinn fórnarlamb skjálfandi þrár, einhvers konar spennings. Maður verður óstyrkur frá toppi til táar og allt stafar þetta af því, að ástarþrá manns hefur verið vakin upp eins og írekast er unnt, Þetta getur byrjað óskcip sakleysislega með einum litlum kossi á hönd stúlku, en fyrr en varir er maður gagntekinn ólýsanlegri girnd. Við skulum reyna að skilja hvorn annan rétt. Ég veit ekki, hvort það, sem þú kallar ást milli tveggja hjartna, tveggja saklausra sálna, þetta, sem öllum finnst væmið nema viðkomandi aðilum, það sem stundum er kallað platónsk ást, — ég veit ekki hvort það getnr gerzt undir þessum bláa 24 VIKAN 31-tbl-

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.